Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 6

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Bændablaðið kemur út 23 sinnum á ári. Upplýsingar um dreifingarstaði er að finna á vef Bændablaðsins: www.bbl.is Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (23. tölublöð) kostar kr. 17.500 með vsk. Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar kr. 13.900 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Borgartún 25, 4. hæð - 105 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Kt: 631294-2279. Útgefandi: Bændasamtök Íslands. Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0300 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 866 3855 Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: 33.000 – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Að sögn Hrólfs Sigurðs- sonar, formanns íslensku matvælarannsóknarnefndarinnar og starfsmanns Matís, sýna svona dæmi hversu mikilvæg almenn vitneskja um hættuna af sýkingum sem þessum sé hér á landi. Hann segir að 24 einstaklingar hafi sýkst í öðru tilfellinu í Noregi og fengu níu þeirra nýrnasjúkdóminn „Hemolytic Uremic Syndrome“, sem sé alvarlegur og getur leitt fólk til dauða. Í hinu tilvikinu sýktust níu manns en enginn þeirra fékk þennan skæða nýrnasjúkdóm. Börn borði ekki óbakað deig „Um er að ræða bakteríu sem stundum hefur verið kölluð „hamborgarabakterían“ (E. coli STEC) og getur verið í mörgum vörum sem við neytum. Hún finnst þó aðallega í hökkuðu nautakjöti, ógerilsneyddum mjólkurvörum og grænmeti. Hún finnst líka stundum í hveiti og því ekki ráðlagt að börn borði óbakað deig,“ segir Hrólfur. „Viðkvæmustu einstaklingar sem fá þessa sýkingu eru börn og gamalmenni. Það þarf mjög lítið magn til að smitast af völdum þessarar bakteríu. Því er nauðsynlegt að steikja hamborgara í gegn – og að kjarnhiti nái 72 gráðum – til að drepa þessa bakteríu,“ útskýrir Hrólfur enn fremur. Smitið í Efstadal var umhverfissmit Hrólfur telur nauðsynlegt að upplýsa neytendur, aðallega barnafjölskyldur, um þessar hættur. Í Evrópu hafi á síðasta ári tæplega 11 þúsund manns sýkst af þessari bakteríu. „Það er bara tímaspursmál hvenær við fáum aðra hópsýkingu, en fyrsta hópsýkingin varð í Efstadal 2019 þegar 22 börn veiktust. Í Efstadal var stía með þremur kálfum og hún var þrifin með háþrýstibúnaði og svo virðist sem bakterían hafi úðast yfir nálæg borð. Þannig að smitið í Efstadal var vegna umhverfissmits sem barst í fólk sem var að borða á staðnum.“ Heilir nautavöðvar ekki með bakteríuna inni í sér Hann bendir á að E. coli bakteríur séu hluti af þarmaflóru manna og dýra. Hluti þeirra geti verið sjúkdómsvaldandi, en alls ekki allar. „Ástæðan fyrir því að það þurfi að gegnumsteikja hamborgara er að E.coli bakterían er komin inn í miðju borgarans með því að hakka kjötið. Heilir nautavöðvar eru ekki með bakteríuna inni í sér og því er hægt að borða lítið eldaðar steikur. Bakterían er þá bara á yfirborði steikanna og við drepum hana þegar við steikjum á pönnu. Í sambandi við grænmetið þá getur vatnið verið smitað sem það er vökvað með. Uppruninn er alltaf úr þörmum dýra og manna. Hvað varðar smit í hveiti, þá eru villt dýr á ökrum og smitið kemur líklega frá þeim. Það var gerð könnun á kornökrum í Svíþjóð og það kom í ljós að 12 prósent sýna innihélt bakteríuna. Svipaðar kannanir hafa verið gerðar í öðrum löndum með svipuðum niðurstöðum,“ segir Hrólfur. /smh Hópsýking: Upplýsa þarf um smithættu af vanelduðum hamborgurum – Ekki ráðlagt að börn borði óbakað deig Hrólfur Sigurðsson. Lágmarkskröfurnar Tíunda grein laga um velferð dýra fjallar um getu, hæfni og ábyrgð umsjónarmanna dýra. „Hver sá sem hefur dýr í umsjá sinni skal búa yfir eða afla sér grunnþekkingar á þörfum og umönnun viðkomandi dýrategundar og skal enn fremur búa yfir nægjanlegri getu til að annast dýrið [...].“ Í reglugerðum um velferð hinna ýmsu dýra má gjarna finna ítarlegri útlistun á skilyrðum sem dýraeigendur eiga að uppfylla. Til að mynda er sú krafa gerð til umráðamanna nautgripa, minka og svína að þeir hafi lokið prófi í búfræði frá landbúnaðarháskóla, lokið námskeiði viðurkenndu af Matvælastofnun (Mast) eða hafi starfað við umsjá tiltekinna dýra sem nemur tveimur árum í fullu starfi. Í reglugerð um velferð hrossa segir að sá sem heldur hross skuli hafa aflað sér grunnþekkingar á eðli þeirra og þörfum. Umráðamaður sauðfjár eða geitfjár þarf að sjá til þess að „hver sá sem ber ábyrgð á umönnun kinda eða geita í hans eigu, hafi hæfni til þess, þekkingu á umönnun og þörfum dýranna og á lögum og reglum um sauðfjár- og geitfjárhald og hafi líkamlega og andlega getu til þess að annast dýrin“. Hluti af því að annast og halda dýr er að lúta opinberu eftirliti Mast sem hefur gæsluhlutverki að gegna og fylgist með því að ákvæðum laga um dýravelferð sé framfylgt. Til þess framkvæma eftirlitsmenn úttektir á þeim stöðum sem dýr eru haldin. Þar huga þeir að tilteknum þáttum samkvæmt gátlistum með skoðunaratriðum sem byggðir eru á lágmarkskröfum samkvæmt reglugerðum. Þar er tekið á leyfum, byggingum og búnaði, verklagi, hollustuháttum, neytendavernd, velferð og dýrasjúkdómum, svo eitthvað sé nefnt. Lög um velferð dýra eru nú orðin áratugagömul og á þeim tíma hafa ýmsar umbætur verið gerðar í utanumhaldi dýra sem talið er að hafi bætt töluvert stöðu dýra í landbúnaði. Sem dæmi hafa búrhænsn nú verið bönnuð svo öll íslensk egg eru nú frá lausagönguhænum. Lögin hafa líka gert Mast kleift að beita sér skilvirkar í krefjandi málum í eftirliti með dýrum og um það er fjallað í þessu tölublaði Bændablaðsins. Þótt sjónarmið og skilningur talskonu hins opinbera og talsmanns bænda sé að mörgu leyti svipaður ber þeim í milli hvernig hið opinbera, í þessu tilfelli eftirlitsmönnum Mast, er ætlað að leiðbeina þeim dýraeigendum sem uppfylla ekki lágmarkskröfur í eftirlitsheimsóknum. Á meðan talsmenn Bændasamtakanna tala um leiðbeiningarskyldu og „leiðbeinandi hvatningu til úrbóta“, segir talskona Mast eftirlitsmenn mega stunda fræðslu en ekki ráðgjöf, og „örlítill eðlismunur [sé] þar á“. En hvort sem um fræðslu, ráðgjöf eða leiðbeiningar er að ræða þá er það öllum skýrt að ábyrgð á að tryggja velferð og heilbrigði dýra liggur hjá eigendum dýranna. Þegar fólk tekur að sér störf sem það hefur virkilegan metnað fyrir liggur það í hlutarins eðli að það vilji gera betur en lágmarkskröfur kveða á um. Allir, sem starfa af heilindum, ættu að vilja stefna hærra en að slefa yfir lágmarkið. Langflestir bændur eru einmitt sammála um það og þetta sýnir tölfræði yfir heildarniðurstöður Matvælastofnunar á eftirliti með dýravelferð í ársskýrslu hennar eins og fram kemur í blaðinu. Mesta hagsmuni af góðri dýravelferð hafa bændur, því ímynd þeirra og gæðaafurða landbúnaðarins er það verðmætasta sem þeir búa að. Guðrún Hulda Pálsdóttir ritstjóri. Allir, sem starfa af heilindum, ættu að vilja stefna hærra en að slefa yfir lágmarkið ... 20% afsláttur af sápu og sýru 10. - 25. okt Íslenskur hamborgari sem ekki er nægilega vel eldaður. Hann er hrár í miðjunni og hefur ekki náð 72 gráðum í eldun sem þarf til að drepa „hamborgarabakteríuna“. Myndir / Aðsendar Tvær nýlegar hópsýkingar hafa orðið í Noregi sem raktar voru til hamborgarakjöts sem ekki var nægilega vel eldað. Sérfræðingur hjá Matís telur þörf á að upplýsa íslenska neytendur um nauðsyn þess að steikja hamborgara í gegn. Bændablaðið kemur næst út 24. október Hvar auglýsir þú?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.