Bændablaðið - 10.10.2024, Page 10

Bændablaðið - 10.10.2024, Page 10
10 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar Matvælaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar samkvæmt reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. Umsóknum skal skilað á mar@mar.is, umsóknareyðublöð fást á vef ráðuneytisins, mar.is. Stuðningur til söfnunar ullar er háður eftirfarandi skilyrðum: • Umsækjandi skal vera reiðubúinn að taka við allri vinnsluhæfri ull af öllum framleiðendum sem þess óska. • Sækja þarf ull heim til framleiðanda eða taka á móti ullinni á móttökustöð sem innan 100 km fjarlægðar frá hverjum einstökum framleiðanda. • Að minnsta kosti 30% allrar ullar sem aðili móttekur skal þvegin hér á landi og band, lopi eða samsvarandi vara unnin úr þessari sömu ull hérlendis. Umsóknarfrestur er til 24. október næstkomandi. → Nánari upplýsingar veitir matvælaráðuneytið — mar@mar.is Sláturgerð: Vambir liðnar undir lok Ekki fást lengur vambir með slátri frá SS. Neytendur sakna þeirra. Þeir sem taka slátur virðast ekki lengur geta fengið vambir nema þá eftir einhverjum sérleiðum, þær eru almennt orðnar ófáanlegar til sláturgerðar. Ýmsir eru ósáttir, segja annað bragð af slátrinu, auk þess sem rótgróin matarhefð glatist. Munar um bragðið af vömbunum „Við hjónin erum búin að taka slátur í 52 ár, telst okkur til,“ segir Ásgeir Eiríksson, sem hafði samband og lýsti áhyggjum sínum af því að fá ekki vambir lengur. „Þetta er mikill uppáhaldsmatur í fjölskyldunni og yfirleitt mörgum boðið í mat þegar soðið er slátur hjá okkur. Það er til dæmis mjög vinsælt hjá unga fólkinu. Nú ætla þeir ekki að hleypa okkur í vambirnar meir. Ég fór í Hagkaup og ætlaði að kaupa slátur, eins og ég geri venjulega, en þá var ekki hægt að fá vambir lengur,“ segir hann. Ásgeir segist hafa brugðið á það ráð að hringja beint í SS og spyrjast fyrir. „Það stóð heima, mér var sagt að engar vambir yrðu leyfðar á Reykjavíkursvæðinu. Við þekkjum aðeins til norður á Akureyri og þar hefur vinafólk okkar tekið slátur í mörg ár en mátt una við að fá ekki vambir um árabil. En við hjónin ætlum að gefa slátrinu frí hér eftir og hætta þessu. Það munar um bragðið sem kemur af vömbunum í slátrið og öðruvísi slátur sem kemur úr gervivömbum. Það er bara allt annar matur,“ segir hann jafnframt. Prótínkeppurinn sigrar Ásgeir hefur séð um að gera vambirnar tilbúnar fyrir slátrið öll árin og er síður en svo sáttur við þessa niðurstöðu. Þau hjónin séu bæði fædd árið 1945 og hann gruni að vambaleysið muni marka endalok sláturgerðar hjá í það minnsta einhverjum hluta eldra fólks. „Ég á von á því að sú kynslóð leggi þetta af að stórum hluta til, því miður.“ Lengstum voru vambir sniðnar, skornar niður og saumaðir úr þeim keppir sem síðan voru fylltir með blöndu af niðurskornum mör, rúgmjöli og annaðhvort blóði eða hakkaðri lifur og stundum líka nýrum. Notkun á vömbum hefur þó orðið minni á síðari árum og nú notast við tilbúna keppi, m.a. svokallaða prótínkeppi. SS hefur séð Hagkaup fyrir slátri og fylgja prótínkeppir slátrinu. Í fyrra voru 90% af öllum vömbum hjá SS seld í dýrafóðursframleiðslu og hitt selt með slátri. Þótti í raun ekki svara kostnaði að kalóna og selja vambir. Ekki fengust viðbrögð fyrir fyrirspurn til SS um stöðu mála í ár. Árið 2014 var reynt að hætta með vambir hjá SS og þá eingöngu seldir prótínkeppir. Bar SS fyrir sig minnkandi sölu, kostnaði, rýrnun við vinnsluna og úreltum tækjabúnaði. Um 15 þúsund vambir höfðu selst haustið áður, allar frá SS. Kalónaðar vambir (hreinsaðar með leskjuðu kalki og sjóðheitu vatni) fóru þó aftur í sölu um tíma en nú virðast vambirnar heyra sögunni til. /sá Vambir utan um slátur virðast nú heyra sögunni til í matarmenningu Íslendinga. Mynd / Úr safni Verkefnið Brothættar byggðir hlýtur 135 milljóna króna aukafjárframlag frá Byggðastofnun. Með fjárframlaginu á að auka viðspyrnu byggðarlaga sem glíma við erfiðleika. Verkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir, hófst fyrir rúmum áratug, en meginmarkmið þess er að sporna við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarkjörnum og sveitum landsins. Verkefnið hefur almennt gengið vel og ánægja verið ríkjandi hjá þeim byggðarlögum sem tekið hafa þátt, en þau eru fjórtán talsins. Teljanlegar framfarir hafa orðið nær undantekningarlaust, enda virk þátttaka, frumkvæði og samstaða íbúa og sveitarfélaga almennt góð. Kristján Þ. Halldórsson, sérfræðingur á þróunarsviði og fulltrúi verkefnisins frá upphafi, segir að samkvæmt byggðaáætlun hafi verkefnið úr 120 milljónum kr. að spila árlega en nú bætast við 45 milljónir kr.. á ári í þrjú ár með nýsamþykktu viðbótarframlagi. Mun framlagið skiptast á þrjú ár, 2025–2027, og er markmiðið að auka viðspyrnu í þeim byggðarlögum sem á þurfa að halda, liðka fyrir þátttöku fleiri byggðarlaga, lengja gildistíma nýrra samninga og auka þannig stuðning við frumkvæðisverkefni. Til viðbótar verður tveimur byggðarlögum sem hafa verið þátttakendur í verkefninu en glíma enn við örðugleika, boðið að taka þátt í tilrauna-/ átaksverkefni til að fylgja eftir frekari árangri. Á málþingi sem haldið var á Raufarhöfn fyrir ári síðan sögðu þau Kristján og Helga Harðardóttir, sem einnig er sérfræðingur þróunarsviðs, að unnið væri að því að taka fleiri byggðarlög sem falla undir hatt verkefnisins. Kristján og Helga segja aukaframlag Byggðastofnunar skipta verulega miklu máli og kærkomin viðbót við að styrkja starf Brothættra byggða enn frekar. Auk þess gefi það tækifæri til að kanna leiðir og gera tilraun til að koma til móts við byggðarlög sem voru þátttakendur á fyrri árum verkefnisins en eru þrátt fyrir það í þröngri stöðu um þessar mundir. „Við erum að bræða með okkur og þreifa á áhuga á slíku tímabundnu tilrauna- og átaksverkefni til þriggja ára. Því erum við á þessari stundu ekki í stöðu til að upplýsa hvaða byggðarlög munu verða þátttakendur. Á hinn bóginn getum við sagt að stuðningurinn frá Byggðastofnun inn í þessi verkefni er fyrst og fremst hugsaður til að styðja við bakið á frumkvöðlum í viðkomandi byggðarlögum. Verkefnin verða unnin í samstarfi við landshlutasamtök og sveitarfélög og það er jafnframt von okkar að þetta geti orðið til þess að íbúar nýti tækifærið til frekara samtals og samstarfs um hagsmuni og möguleika síns samfélags,“ segir Kristján. /sp Byggðastofnun: Aukið fjármagn til Brothættra byggða Helga Harðardóttir og Kristján Þ. Halldórsson, umsjónar- aðilar Brothættra byggða. Mynd / Byggðastofnun Fyrir Alþingi liggur þings- ályktunartillaga um niður- greiðslu á raforku til garðyrkju- bænda. Lagt er til að við búvörulög nr. 99/1993 verði bætt nýju ákvæði til bráðabirgða um að þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 58. gr. skuli ríkissjóður niðurgreiða garðyrkjubændum allan kostnað við flutning og dreifingu raforku vegna framleiðslu garðyrkjuafurða á árunum 2025, 2026, 2027 og 2028, að þeim skilyrðum uppfylltum að orkukaupin séu vegna atvinnustarfsemi. Niðurgreidd raforka sé sérmæld og fari einungis til loftræstingar eða lýsingar plantna til að örva vöxt þeirra. Framleiðslan sé ætluð til sölu og að ársnotkun sé meiri en 100 MWst á ári. Heildarfjárhæð niðurgreiðslna skv. 1. málsl. skuli ekki takmarkast við heildarframlög í samningum sem íslenska ríkið geri við framleiðendur garðyrkjuafurða Jafnframt skuli ríkissjóður niðurgreiða garðyrkjubændum helming kostnaðar vegna uppbyggingar á dreifikerfi raforku til garðyrkjubýla, gróðrarstöðva og garðyrkjustöðva á árunum 2025, 2026, 2027 og 2028. Ráðherra verði heimilt að fela Matvælastofnun eða öðrum opinberum aðila að annast faglega umsjón með niðurgreiðslu á kostnaði við flutning og dreifingu raforku, enda sé skipulag þeirra og starfsreglur í samræmi við ákvæði laga. Flutningsmaður þingsályktunar- tillögunnar er Inga Sæland, Flokki fólksins og er þetta í fimmta sinn sem hún er flutt. Bændasamtök Íslands lýstu í umsögn á 153. löggjafarþingi yfir stuðningi við frumvarpið. /sá Raforka verði niðurgreidd Mast: Fuglainflúensa víða Rökstuddur grunur er um fuglainflúensu í hröfnum og öðrum villtum fuglum. Matvælastofnun (Mast) greinir frá því að uppi sé rökstuddur grunur um fuglainflúensu, bæði í hröfnum og öðrum villtum fuglum. Bráðabirgðaniðurstöður úr sýnum úr villtum fuglum gefi til kynna sýkingu með fuglainflúensuveirum. Samhliða hafi í auknum mæli borist tilkynningar til Mast um veika eða dauða villta fugla. Almenningi er ráðlagt að handsama ekki villtan fugl sem er hættur að forða sér í burtu, heldur skal tilkynna slíkan fund til Mast og fylgjast með fuglinum. Allir sem halda alifugla og aðra villta fugla skulu viðhafa ýtrustu smitvarnir til að koma í veg fyrir smit frá villtum fuglum í eigin fugla. Sýni hafa verið tekin úr tveimur hröfnum sem fundust annars vegar á Laugarvatni og hins vegar í Öræfum. Þá hefur verið tekið sýni úr hettumávum á Húsavík. Annar hrafnanna fannst veikur og drapst svo, hinn hrafninn virtist vera heilbrigður en gat ekki flogið. Hann var tekinn til aðhlynningar en um síðustu helgi, tveimur vikum eftir að hann fannst, var hann aflífaður þar sem ástandi hans hrakaði mikið. Hettumávarnir fundust dauðir á Húsavík. Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum greindi fuglainflúensuveirur í þessum sýnum en beðið er staðfestingar á meinvirkni og gerð fuglainflúensuveiranna. Vísbendingar eru þannig um að fuglainflúensa gæti verið víða í villtum fuglum um þessar mundir. Mast ítrekar að allir sem halda alifugla og aðra fugla skuli gæta ýtrustu smitvarna, því meiri hætta er nú á að smit leynist í umhverfi fuglahúsa. Stofnunin mun endurskoða viðbúnaðarstig þegar endanlegar niðurstöður um gerð veiranna liggur fyrir. /sá Fuglainflúensa hefur nú greinst í hröfnum m.a. Mynd / Logga Wiggler

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.