Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 28
28 Viðtal Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Beitarhagar í góðu ástandi
viðhalda kolefnisbúskap sínum vel.
Hið sama gildir í túnrækt, nema
þegar rof verður í ræktuninni
við plægingu sem getur valdið
verulegri losun á kolefni.
Frá þessu greindi nýsjálenski
vísindamaðurinn dr. Louis Schipper
á fyrirlestri sínum í húsnæði Land-
búnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti
föstudaginn 27. september.
Aðstæður svipaðar
og á Nýja-Sjálandi
Schipper er einn af fremstu vísinda-
mönnum Nýja-Sjálands á sviði rann-
sókna á kolefni í jarðvegi beitarlanda
og annars konar landbúnaðarlöndum.
Hlynur Óskarsson, prófessor við
Landbúnaðarháskólann, hafði veg og
vanda af komu Schipper og segir hann
aðstæður á Nýja-Sjálandi um margt
svipaðar og hér. Til dæmis má nefna
að þar er eldfjalla- og mýrarjarðvegur
ríkjandi og sauðfjárbeit ein helsta
landnýtingin. Louis hafi um árabil
rannsakað kolefnisbúskap beitar-
landa, en um helmingur af allri
losun gróðurhúsalofttegunda í Nýja-
Sjálandi sé einmitt úr úthögum. Það
er í samræmi við nýjustu losunartölur
á Íslandi sem gefa til kynna að um 63
prósent af losun kolefnis frá Íslandi
komi frá landnotkunarhlutanum,
en sá hluti skiptist svo niður í
mólendi (77 prósent), ræktað
land (19 prósent) og votlendi eða
mýrarjarðveg (11 prósent).
Hvati til eigin rannsókna
Stór hluti af þeim gögnum sem stuðst
er við hér á Íslandi, við útreikninga
á losun gróðurhúsalofttegunda
vegna landnýtingar, kemur
frá stöðlum Milliríkjanefndar
Sameinuðu þjóðanna (IPCC), en
frumvinna stendur nú yfir við
þessa gagnaöflun um losun frá
þessum þremur áðurnefndum
bókhaldsflokkunum landnotkunar.
Gert er ráð fyrir að fyrstu tölur ættu
að koma inn í bókhaldið á næstu
tveimur árum.
Schipper segir að ekki sé
óvana- legt að áætla að þessi
staðalgildi séu íhaldssöm og
mögulega hærri en raunin sé,
spurður um hvort ástæða sé til að
ætla að tölur frá IPCC um losun frá
landnotkunarhlutanum séu ekki í
samræmi við raunverulega losun.
Hann segist skilja fyrirkomulag
losunarstuðlanna þannig að
það sé IPCC sem leggi þá fram
sem staðalgildi, sem lönd geti
notað þegar þau hafi ekki sín
eigin gögn. Það hvetji lönd til
að safna eigin mælingum til
að bæta reikningsbókhaldið
á gróðurhúsalofttegundum.
Sérstaklega þar sem losun frá
ákveðnum þáttum sé mikil.
Grunnmat sem hægt er að bæta
Schipper heldur áfram og segir
að lönd búi gjarnan við ákveðið
samspil landbúnaðar og loftslags
– og um Ísland ætti hið sama að
gilda. Þær losunartölur sem miðað
sé við séu því ekki í eðli sínu rangar
heldur einfaldlega grunnmat, sem
hægt sé að bæta með vandaðri
rannsóknarvinnu, eins og Hlynur
og samstarfsmenn hans séu að vinna
að. Þessar losunartölur geri löndum
einnig kleift að einbeita sér að því
að nýta tækifærin til að draga úr
eigin losun.
Traustar rannsóknaraðferðir
til jarðvegssýnatöku
Spurður um mögulegan ávinning
af rannsóknum hans fyrir Ísland,
segir Schipper að það verði
örugglega gagnkvæmur ávinningur
af rannsóknarvinnu beggja landa.
Til að bæta staðalgildin hafi þau á
Nýja-Sjálandi einbeitt sér að því að
þróa traustar rannsóknaraðferðir til
að meta hversu mikið kolefni tapast
eða bætist við jarðveg sem notaður
er til beitar. Þau hafi þróað sértækar
aðferðir til jarðvegssýnatöku og
leiðir til að mæla bindingu og losun
koltvísýrings úr jarðvegi.
Mikilvægi beitarstjórnar
Þessar aðferðir segir Schipper að hafi
gert þeim kleift að mæla breytingarnar
sem tengjast mismunandi aðferðum
beitar- stjórnar, eins og vökvunar,
ræktunar á nytjaplöntum og mikilvægi
beitarstjórnunar á mýrarjarðvegi.
Með þessu fáist betri gögn um
losun frá mismunandi landnýtingu
og þá verði hægt að einbeita sér að
því að draga úr losun og jafnvel
finna beitarstjórnunaraðferðir
sem geta bundið koltvísýring úr
andrúmsloftinu.
Viðkvæmur mýrarjarðvegur
Schipper segir að mýrarjarðvegur sé
sérstaklega viðkvæmur fyrir raski
og geti losað mikið af gróðurhúsa-
lofttegundum. Bæði löndin hafi
áhuga á því að skoða hvernig draga
megi úr losun frá framræstum
mýrarjarðvegi með annars konar
beitarstjórnun eða með mögulegri
endurheimt yfir í náttúrulegt
vistkerfi.
Hann telur að þó mikið vísinda-
starf sé fram undan hjá báðum
löndum, megi ekki gleyma því að
bæði löndin þurfi að vinna með
bændum og samfélögum þeirra til að
hrinda í framkvæmd nauðsynlegum
breytingum. Bændur séu vörslumenn
landsins og munu því hafa innsýn í
hvað sé mögulegt að gera á þeirra
löndum.
Heimafengin gögn um
metanlosun dýra
Þegar Schipper er spurður um
stöðu losunarrannsókna og
rannsóknargögnum í Nýja-Sjálandi
segir hann að það sé misjafnt eftir
lofttegundum. Flestir losunarstuðlarnir
sem séu í notkun fyrir nituroxíð frá
jarðvegi og metanlosun frá dýrum
séu byggðir á rannsóknum frá Nýja-
Sjálandi.
Stuðlar varðandi breytingar á
kolefnisinnihaldi í jarðvegi þegar
breyting á landnotkun hefur átt sér
stað, til dæmis með umbreytingu
skóga í beitilönd, séu einnig byggðir
á rannsóknum frá Nýja-Sjálandi. Fyrir
framræstan mýrarjarðveg séu notuð
fyrir fram gefin staðalgildi.
Stöðugt sé verið að endurskoða
þessa losunarstuðla til að fínstilla þá,
með árlegum rannsóknarverkefnum
fyrir forgangssvæði.
Beitarlönd í kolefnislegu jafnvægi
Hlynur vinnur sjálfur að rannsóknar-
verkefnum fyrir hönd Land-
búnaðarháskólans sem munu bæta
losunargögn fyrir Ísland. Hann segir
að nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að
fylgjast vel með því sem gert er í Nýja-
Sjálandi í þessum efnum, þar sem þeir
væru komnir svo langt á undan okkur.
Í máli Schipper hafi komið skýrt fram
að staðan á heimsvísu væri alvarleg að
því leyti að kolefni úr jarðvegi væri
jafnt og þétt að tapast. Mikilvægt væri
að spyrna við fótum og varðveita það.
„Mér þótti áhugavert að sjá
að samkvæmt mælingum hans þá
var graslendi beitarlanda jafnan í
kolefnislegu jafnvægi, nema þegar rask
eða rof hefur orðið í jarðveginum og
þá er tap. Svo var áhugavert að heyra
hann segja frá rannsóknum á losun
frá lífræna jarðveginum [framræstu
votlendi], að hann sé talinn vera um
eitt prósent af landi í landnotkunarhluta
Nýja-Sjálands en beri ábyrgð á um átta
prósent af heildarlosuninni.
Í túnræktinni virtist líka allt
vera í jafnvægi, nema þegar plægt
er og landið stendur bert. Þá er
kolefnisbúskapurinn neikvæður og
það verulega. Því ættum við hér á
Íslandi kannski að hugsa um að stýra
okkar jarðrækt þannig að land standi
helst aldrei bert, nema þá í mjög stuttan
tíma. Því er æskilegt að land sé frekar
plægt á vorin en ekki á haustin eins
og þekkist.“
Nýja-Sjáland:
Sjálfbær kolefnisbúskapur
beitilanda í góðu ástandi
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Hlynur Óskarsson.
Samkvæmt rannsóknum Schipper í Nýja-Sjálandi eru graslendi beitarlands jafnan í kolefnislegu jafnvægi, nema
þegar rask eða rof hefur orðið í jarðveginum. Myndir / smh
Dr. Louis Schipper.