Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 30
30
Fréttir
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Viðtal
Leitið og þér munuð finna
er heiti verkefnis Sigrúnar
Magnúsdóttur sem hún vann við
Hallormsstaðaskóla og sýndi í
Hallormsstaðarskógi fyrr á árinu.
Markmið Sigrúnar var að kanna
hvernig fólki liði innan um tré
og gróður og hver áhrifin væru á
líkamlega og andlega heilsu.
„Ástæða þess að ég valdi að skrifa
ritgerð um tré og gróður eru hrein og
bein áhrif sem ég varð fyrir þegar
ég kom fyrst á Hallormsstað til að
hefja nám í Hallormsstaðaskóla,“
segir Sigrún. „Skógurinn skartaði
sínum fallegu haustlitum í öllum
regnbogans litum. Ég fann það strax
að ég myndi vilja kynnast þessu
gróðursæla umhverfi betur og finna
áhrifin innan um trén. Ég er sjálf
mikið náttúrubarn og líður alltaf best
innan um tré og gróður frá því ég
man eftir mér,“ segir hún um tilurð
verkefnisins.
Hún vildi fá fólk til að skoða þann
möguleika að gera einfalda hluti til
að stuðla að betri líðan og heilsu, eins
og t.a.m. að fara í göngutúr í skógi,
faðma tré og staldra við og leita eftir
hughrifum frá gróðrinum í kring.
„Ósjálfrátt gerist eitthvert undur í
huga okkar og hjarta, hjartslátturinn
verður hægari, blóðþrýstingur
verður jafnari og við leitum inn á
við, hlustum betur á innsæið okkar
og tilfinningar,“ útskýrir Sigrún og
bætir við að öll séum við mismunandi
eins og við séum mörg og upplifum
alls konar áhrif úti í náttúrunni. „Í
þessu fallega lífsformi eins og við
mennirnir erum hver á sinn hátt. Ég
finn líka fyrir auðmýkt í hjarta mínu
fyrir lífi náttúrunnar og fullkomleika
hennar,“ segir hún.
Tré draga fólk að sér
Sigrún tók viðtöl við 22 ólíka
einstaklinga sem svöruðu spurninga-
lista hennar um viðfangsefnið.
Einn svarenda, sem hefur búið
í skógi í 47 ár, sagði að í skógi liði
sér betur en í öðrum vistkerfum.
Þar væru ekki eingöngu tré heldur
einnig fuglar, skordýr, sveppir og
ótal plöntutegundir svo eitthvað væri
nefnt. Trén ynnu saman og töluðu
saman neðanjarðar.
Annar talaði um að upplifa frið í
skóginum og jafnvel upplifa að verða
að trénu, tré drægju viðkomandi að
sér. Minnst var á ýmsar trjátegundir
í svörunum en einum viðmælenda
sagðist sem svo: „Birkiætt vex víða
um norðurhvel jarðar, er hægvaxta,
ljóselskt, vind- og frostþolið eins og
við Íslendingar urðum að vera til að
lifa af hér áður fyrr. Ætli þessi tegund
sé ekki í svona miklu uppáhaldi
hjá mér þar sem hún líkist okkar
uppruna og hefur fylgt okkur frá því
við námum Ísland. Birkiafurðir eru
heilnæmar fyrir mannslíkamann, að
vera úti í birkiskógi gefur manni orku,
að drekka birkisafa gefur manni orku.
Birkitréð er mögnuð lífvera.“
Styrkur, stöðugleiki og
sveigjanleiki
Talað var um trén sem efnivið til
smíða, sem hitagjafa og skjól. Þau
gefi frá sér holl efnasambönd, gefi
verndandi tilfinningu, mildi veður og
ilmurinn og litir þeirra séu heilnæmir,
auk þess sem unun sé að heyra
vindinn þjóta um krónur trjánna. Þau
merki styrk og stöðugleika, en ekki
síður sveigjanleika.
„Mér líður yfirleitt vel í skógi og
við tré,“ svaraði annar og sagðist títt
sækja þangað styrk og ró. „Tré þykja
mér afar merkilegar lífverur, m.a.
vegna stærðar og aldurs margra þeirra,
og mikilvægis fyrir lífið á jörðinni og
ekki síst vegna fegurðar þeirra.“
Á jörðinni vaxa um þrjár billjónir
trjáa, eða um 422 tré á hvern
einstakling, segir í verkefninu.
Samanlagt sé þetta verulegt magn
laufblaða sem sannarlega hafi áhrif á
líf okkar, bæði hvað varðar loftgæði
og tónlist. Án laufblaða verði trén
hljóðlát. Brotni þau vaxi þau yfirleitt
aftur, ef til vill bara í aðra átt. Þau teygi
sig til sólar og blómstri og visni á víxl.
Maðurinn upplifi ró og frið í skógum.
Nokkrir sögðust finna fyrir
nærveru krafta og vera sem jafnan
væru ósýnileg mannsauganu, svo sem
ljósálfa, álfadísa og blómálfa.
„Tré fyrir mér er eitthvað stabílt en
sveigjanlegt. Eitthvað sem þolir mikla
mótstöðu og hreyfist með vindinum.
Tré er merki lífs og þroska en fyrst og
fremst þolinmæði í gegnum erfiða,
kalda tíma,“ hljóðaði eitt svaranna.
Annar viðmælandi minnti á að trén
veittu endalausan innblástur í myndir,
smásögur og ljóð, auk tónlistar. Þá var
skógurinn sagður kjörinn staður til
að hugsa og velta öllum mögulegum
hlutum fyrir sér.
„Ég elska skógargöngustíga, ég
baða mig í orku trjánna. Japanir kalla
það skógarbað. Það er mikil heilun að
ganga um fallegan furulund um leið
og það heilar þig og alla þína veru. Að
anda að sér súrefni og tíðni trésins er
dásamlegt að upplifa, það er alltaf til
staðar að njóta gjafa frá trjám. Þetta
er ein besta orkuhleðsla sem ég nýti
ef þörfin kallar á að endurnærast,“ var
enn eitt svarið.
Tónverk um Hallormsstaðarskóg
Eitt svarið vakti sérstaka athygli en sá
viðmælandi sagðist einfaldlega ekki
verða fyrir nokkrum einustu áhrifum
af trjám og var það eina svarið af því
tagi. Annar minnti á að þrátt fyrir að
skógar væru oft friðsælir og hrífandi
gætu þeir einnig verið ógnandi svæði,
t.d. í myrkri, þau gætu verið hættuleg í
óveðrum og erlendis væri víða ýmsum
dýrum, eins og björnum og úlfum,
að mæta í skógum. Tónlistarmaður
nokkur, sem var einn svarenda,
kvaðst nýlega hafa samið tónverk skv.
pöntun, um Hallormsstaðarskóg og
íslensku skógana almennt. Er verkið
samið fyrir einleiksfiðlu.
Uppáhaldstré voru, auk birkis,
sögð vera t.d. hengibjörk, askur,
heggur, furur, þ.á m. lindifura,
fjallaþinur, beyki, blóðheggur,
síberíulerki, kirsuberjatré, reyniviður,
þ.á m. ilmreynir, íslenski einirinn og
blæösp. /sá
Fyrirferðarlítil með 25 ára ábyrgð
Engin rotþró eða hefðbundin siturlögn
Margar stærðir í boði
Tæming seyru á 3 - 5 ára fresti
Skógar:
Trén lyfta anda manneskjunnar
– Könnun á líðan fólks innan um tré
Leikið í laufum. „Ósjálfrátt gerist eitthvert undur í huga okkar og hjarta, hjartslátturinn verður hægari, blóðþrýstingur
verður jafnari og við leitum inn á við, hlustum betur á innsæið okkar og tilfinningar,“ segir Sigrún Magnúsdóttir.
Myndir / Aðsendar
Nútímamaðurinn ver minni tíma úti
við heldur en forfeður okkar gerðu,
því eru tengsl okkar við náttúruna
að dvína. En á sama tíma hefur
kannski aldrei verið meiri þörf fyrir
náttúrutengingu en áður og hefur
rannsóknum sem benda á ávinning
þess og mikilvægi að verja tíma í
náttúrunni fleygt fram.
Sigrún Magnúsdóttir
Hallormsstaðaskóli í haustfegurð
skógarins.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is