Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Landbúnaðarháskóli Íslands
Skipulagning frístundahúsabyggða á
tímum náttúru- og loftslagskreppu
– Rannsóknaráðstefnan PLANNORD
Nýverið fór norræna skipulags rann-
sóknarráðstefnan PLANNORD
fram á Íslandi, en um er að
ræða stærsta viðburðinn á
Norðurlöndum um skipulagsmál
og miðlun rannsóknaafurða.
Á ráðstefnunni kemur saman
fræðafólk við háskóladeildir í
skipulagsfræði á Norðurlöndunum.
Yfirskrift ráðstefnunnar var
„Skipulag í norrænu samhengi –
tækifæri og áskoranir“ en tilgangur
hennar var að fjalla um á hvaða hátt
skipulag á Norðurlöndum stendur
frammi fyrir sérstökum áskorunum
tengdum staðbundnum aðstæðum
eða hvort þær bjóði upp á tækifæri
sem skoða ætti í auknum mæli til
að mæta markmiðum um sjálfbæra
og lífvænlega framtíð. Þessar
staðbundnu aðstæður gætu varðað
samfélag, menningu, réttarkerfi,
skipulagsaðferðir, hnattræna stöðu,
náttúrufar sem og byggt umhverfi.
Ógnvænleg þróun í Noregi
Eitt af umræðuefnunum varðaði
frístundahúsabyggð og sjálfbærni
svæða sem fara undir frístundahús,
en Jin Xue, prófessor í
skipulagsfræði við norska
umhverfis- og lífvísindaháskólann
(NMBU), leiddi málstofu um efnið
og greindi frá mjög alvarlegum
áskorunum sem Norðmenn standa
frammi fyrir vegna ógnvænlegrar
þróunar. En Harpa Stefánsdóttir,
prófessor í skipulagsfræði við LbhÍ,
hefur um árabil unnið með Jin að
rannsóknum um frístundabyggð
í Noregi. Þar sem málefnið hefur
lítið verið rannsakað hérlendis, er
mikilvægt að staldra við og velta
fyrir sér hvort ekki sé ástæða til
að læra af Norðmönnum áður en
í óefni er komið. Á Íslandi hefur
nefnilega notkun frístundahúsa
færst í vöxt og uppbygging verið
hröð ekki síður en í Noregi.
Frístundahús eða sumarbústaðir
hafa langa hefð á Norðurlöndunum. Í
Noregi er litið á ferðir í sumarbústaði
staðsetta uppi í fjöllum, í skógum
og meðfram ströndum, sem
órjúfanlegan hluta af þjóðerniskennd
Norðmanna. Að hafa tækifæri til
að upplifa og njóta náttúrunnar á
meðan dvalið er í bústaðnum hefur
djúpar menningarlegar rætur hjá
Norðmönnum. Eftir nokkra áratugi í
stöðugri uppbyggingu frístundahúsa
þar sem þróunin hefur lítið verið
gagnrýnd, eru komnar upp miklar
deilur, aðallega vegna neikvæðra
áhrifa sem ágeng þróun þeirra
hefur haft á náttúru og loftslag.
Bústaðir, sem áður voru taldir
tákn um lífsstíl sem endurspeglaði
ástríðu Norðmanna fyrir náttúrunni
og frumstæðum lifnaðarháttum,
eru í dag taldir ógna líffræðilegri
fjölbreytni, aðlögunarhæfni búsetu
og loftslagi.
Mikið land tekið undir
frístundahúsabyggð
Í gegnum tíðina hefur hvorki
skipulagsgerð á Norðurlöndunum
né rannsóknir tengt frístundahúsum
sýnt umhverfislegum afleiðingum
þeirra sérstakan áhuga. Hins vegar
hefur á síðustu árum verið lögð
aukin áhersla á umhverfistengd
málefni. Í Noregi hefur átt sér stað
hröð uppbygging á fjallasvæðum
inn til landsins, þar sem náttúra
og vistkerfi eru oft viðkvæm.
Smáskammtauppskipting lands fyrir
byggingu frístundahúsa í Noregi
hefur leitt til sundrungar búsvæða
dýra, einkum villtra hreindýra.
Hins vegar er raunverulegt landnám
oft margfalt stærra en það sem
húsið sjálft tekur, vegna mikillar
landþarfar fyrir tengda innviði
eins og vatn, rafmagn, fráveitu og
vegi. Mikið af landinu sem breytt
hefur verið í frístundahúsasvæði
hefur verið tekið frá skóglendi og
jafnvel votlendi, sem eykur einnig
á loftslagsbreytingar.
Notkunin ekki síður orsök
umhverfisvandamála
Notkun frístundahúsa er jafn-
mikil eða jafnvel meiri orsök
umhverfisvandamála. Ferðir milli
heimilis og frístundahúsa skapa
stóran hluta bílaumferðar á helstu
þjóðvegum milli borga og helstu
frístundahúsasvæða um helgar og
á frídögum.
Á Íslandi er staðan ekki ósvipuð frá
höfuðborgarsvæðinu, og umferðar-
stíflur algengar bæði austur og
norður. Auk þess veldur aukin notkun
bústaða meiri staðbundinni umferð
inn á friðlýst svæði, sem leiðir til
ágangs á náttúrulegt umhverfi
og raskar villtu dýralífi. Aukin
orkunotkun vegna hás standards
nútíma frístundahúsa skapar einnig
þrýsting á staðbundna orkuinnviði.
Hlutverk skipulags í
að stýra uppbyggingu
Í Noregi hefur samfélagsumræðan
beint spjótum sínum að þessum
umhverfsislegu áskorunum. Sam-
félagshópar í nokkrum sveitar-
félögum með frístundahúsabyggð
hafa mótmælt frekari uppbyggingu,
ásamt umhverfissamtökum og
rannsakendum. Pólitískur klofningur
er orðinn mikill tengt málefnum
frístundahúsa, bæði í sveitarfélögum
og á landsvísu.
Í þessu samhengi snýst mikilvægur
hluti umræðunnar um hlutverk
skipulags í að stýra uppbyggingu
í átt að umhverfislegri sjálfbærni.
Stefnumótandi skipulag sem tekur til
langtíma- og heildrænna markmiða
býður upp á þann möguleika að
tengja frístundahúsauppbyggingu
víðtækari staðbundinni samfélags-
þróun, með tilliti til bæði félagslegs
og umhverfislegs þols. Staðarmótun
(e. place-making) og stjórnun
ferðamannastaða geta verið gagnleg
hugtök og ákjósanleg nálgun fyrir
sveitarfélög til að koma slíkri
stefnumótun til framkvæmda.
Landnotkunarskipulag getur á
hinn bóginn staðsett og stjórnað
uppbyggingu frístundahúsabyggða
og dregið úr umfangi notkunar lands,
orku- og auðlinda ásamt umferð.
Fyrir utan deiliskipulag svæðanna
sjálfra, þá getur svæðisskipulag
stærri svæða verið heppilegra til að
halda utan um verndun heildstæðra
náttúrusvæða og til að forðast að
þau verði smám saman skorin
sundur í minni einingar.
Umræða nauðsynleg á Íslandi
Frístundahúsanotkun er einnig í
örum vexti á Íslandi, en þeir bústaðir
sem hafa verið byggðir síðustu
áratugi hafa farið stækkandi og eru
með aðstæðum sem gætu frekar talist
til lúxuss frekar en naumhyggju.
Álag á umferðarkerfi hefur aukist
mikið og sama má eflaust segja um
álagið á þjónustuframboð þeirra
sveitarfélaga sem eiga í hlut. En
engu að síður, þá hafa spurningar
þar um fengið takmarkaða athygli
hvorki frá rannsakendum, samfélagi
eða stjórnmálamönnum. Skipulag
sem getur verið bæði bölvun eða
blessun umhverfisvandamála þarf
að taka alvarlega.
Höfundar eru prófessorar í
skipulagsfræði, Harpa við LbhÍ og
Jin Xue við NMBU í Noregi.
Nýleg frístundahúsabyggð í Beitostølen, Jötunheimum í Suður-Noregi. Mynd / Aðsend
Harpa
Stefánsdóttir.
Jin Xue.
FJÁRMEISTARI
SAUÐFJÁRRÆKTARBÚINU
Á HESTI
HELSTU VERKEFNI
» Umsjón með allri starfsemi á fjárbúinu Hesti
» Umsjón með ræktunarstefnu í samráði við bústjóra, umsjón
með lögbundnu hjarðskýrsluhaldi og öðru skýrsluhaldi fyrir
rannsóknir og kennslu
» Umsjón með aðbúnaði búfjár og viðhaldi á aðstöðu
» Vélavinna við gegningar, heyskap, jarðrækt og fleira
» Skipulagning og umsjón sauðburðar
» Þátttaka í rannsóknum og mælingum
» Móttaka nemenda, kennara og tilfallandi gesta
» Virk þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar
í búrekstri sem og önnur störf er tilheyra búrekstri
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Búfræðimenntun og/eða BS próf í búvísindum eða öðrum
landbúnaðarfræðum
» Önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
» Reynsla af sauðfjárrækt og vélavinnu
» Sjálfstæð, skipulögð og snyrtileg vinnubrögð
» Færni í mannlegum samskiptum
» Góð almenn tölvukunnátta
» Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 2. janúar 2025. Laun eru samkvæmt gildandi
kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LBHÍ, gudmunda@lbhi.is, s. 433 5000
Egill Gunnarsson, bústjóri Hvanneyrarbúsins, egill@lbhi.is, s. 433 5000
Starf fjármeistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er laust til umsóknar
Hlutverk Hvanneyrarbúsins er búrekstur í þágu kennslu- og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands.
Félagið á að skapa aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn LbhÍ og samstarfsaðila þeirra til fræðslu og
rannsókna sem tengjast sauðfjárrækt, nautgriparækt, jarðrækt, auðlindanýtingu og umhverfisvernd.
Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi LbhÍ sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði
við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til 24. október 2024