Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Landbúnaðarháskóli Íslands
Heilsa og velferð búfjár
– Af ráðstefnu evrópskra búfjárvísindamanna. Annar hluti.
Yfirskrift mál-
stofu sem ætluð
var öllum gestum
ráðstefnunnar
var „Endurmat á
sambandi okkar
við búfé“ þar
sem fulltrúum
m i s m u n a n d i
s j ó n a r h o r n a
á samband manna og búfjár var
boðið að vera með erindi og taka
þátt í pallborðsumræðum. Linda
Keeling, sérfræðingur í dýravelferð
frá Sænska landbúnaðarháskólanum
(SLU), fjallaði í sínu erindi um
sjálfbærnimarkmið Sameinuðu
þjóðanna og hvernig þau tengjast
velferð búfjár. Í einhverjum tilfellum
hafa sjálfbær þróun og velferð
búfjár verið talin illa samrýmanleg
markmið vegna þess að auknar
velferðarkröfur geta dregið úr
skilvirkni matvælaframleiðslu.
Linda taldi aftur á móti að bætt
dýravelferð hlyti að vera hluti
af lausninni á vegferð okkar til
sjálfbærrar þróunar og hvatti fólk
til að sameinast við að vinna á þeim
sviðum þar sem bætt dýravelferð og
sjálfbær þróun eiga saman.
Ekkert búfé 2050?
Elena Nalon dýralæknir talaði fyrir
hönd félagasamtaka um réttindi
dýra. Samtök hennar hafa komið
að því að tala máli búfjár við
Evrópusambandið og stuðla að
reglusetningu í þágu þess, svo sem
með banni við því að halda varphænur
í búrum. Að mati Elenu er í gangi
faraldur skertrar dýravelferðar vegna
fjölgunar búfjár. Elena kallaði eftir
róttækni vísindamanna – þau sem
hafa þekkinguna verði að vera
óhrædd við að beita sér t.d. hvað
varðar framleiðsluaðferðir sem
rannsóknarniðurstöður hefðu sýnt
að væri skaðlegar fyrir dýravelferð.
Sú framtíðarsýn sem samtök Elenu
hafa sett fram vakti nokkra athygli
á ráðstefnunni. Þau sjá fyrir sér að
árið 2050 verði búfé sárafátt og því
ekki slátrað til manneldis. Búfé væri
aðeins haldið til að skaffa frumur
sem væru svo ræktaðar áfram í
frumuræktun til að framleiða mat.
Nokkuð annan tón kvað við
hjá fulltrúa samtaka sláturhúsa og
gripaflutningafyrirtækja, Carolinu
Cucurella. Í sínu erindi talaði hún
um að velferð búfjár væri líka
hagsmunamál iðnaðarins vegna
þess að það væri liður í að tryggja
gæðavöru og að það þyrfti líka
að tryggja velferð framleiðenda,
bændanna. Hún lagði áherslu á
fræðslu almennings; þekking stórs
hluta almennings á því hvernig
matur verður til væri mjög lítil.
Samt sem áður væri þessi sami
almenningur með miklar skoðanir
um framleiðsluaðferðir sem oft væru
ekki á rökum reistar. Carolina setti
spurningarmerki við þá hugmynd að
stærri einingar þýddu endilega verri
dýravelferð. Til dæmis væri frekar
til peningar fyrir dýralæknakostnaði
í stærri einingum og frekar hægt að
fara í stórar fjárfestingar til að bæta
aðstæður dýranna.
Fjórði og síðasti fyrirlesarinn
í þessari dýravelferðarmálstofu
var Achim Spiller, prófessor
í markaðsmálum matar og
landbúnaðarafurða við Göttingen-
háskólann í Þýskalandi. Hann
sagði frá tilraunum til að
beita landbúnaðarkerfinu og
markaðsaðferðum í Þýskalandi til
að stuðla að bættri dýravelferð,
bæði því sem hefði gengið vel og
því sem ekki hefði tekist að koma
í kring. Ítarlega unnar tillögur hafa
ekki náð fram að ganga vegna
andstöðu stjórnmálaflokka þrátt
fyrir að þær njóti stuðnings úr
röðum framleiðenda og neytenda.
Líkt og Carolina benti Achim
á þann mun sem getur verið á
hugmyndum almennings og
raunverulegri aðstöðu á búum en
samkvæmt könnun í Þýskalandi
héldu 36% að algengt væri að
varphænur væru í búrum þar í
landi, meira en 20 árum eftir að
bannað var að hafa hænur í búrum
og búrhænuhald lagðist af.
Kunnugleg vandamál varðandi
velferð sauðfjár í Skotlandi
Michelle Reeves frá Háskólanum
í Edinborg í Skotlandi sagði frá
rannsóknum á nokkrum áskorunum
er varða velferð sauðfjár og
rannsóknum á mögulegum
umbótum. Í fyrsta lagi talaði hún
um flutning fjár lengri leiðir.
Þrátt fyrir bann við flutningum
sauðfjár með bílum lengur en í 8
klukkustundir án hvíldar er sláturfé
flutt frá skoskum eyjum með ferjum
í 10–14 tíma. Atriði sem væri hægt
að bæta í slíkum ferðalögum eru
aðgangur að drykkjarvatni og
minnkuð hávaðamengun. Gelding
hrútlamba er enn víða stunduð í
sauðfjárræktarlöndum svo sem
Bretlandi. Ný tækni við það sem
kallast ClipFitter virðist valda
minni sársauka við geldingu
smálamba en hefðbundnari aðferðir
en ekki ef tæknin er notuð á eldri
lömb. Enn annað velferðarmál
sauðfjár í Bretlandi sem og annars
staðar er ormaveikin og Michelle
sagði frá tilraunum til að meta
ormaveiki og líðan sauðfjár út frá
hegðunarupplýsingum sem er safnað
með stafrænni tækni.
Sauðfjárrækt á Skotlandi
glímir við vandamál sem hljómar
kunnuglega í eyrum íslenskra
sauðfjáráhugamanna – afföll fjár
á heiðum. Í framleiðslukerfi sem
byggir á útiveru allt árið og því
að féð gengur mikið til sjálfala
verða afföll þar sem ástæðan er
ekki endilega þekkt. Í Skotlandi
er þetta kallað Blackloss. Fiona
McAuliffe var með tvö erindi um
þetta efni. Annars vegar sagði
hún frá spurningakönnun meðal
sauðfjárbænda um hvert þeir teldu
umfang vandans vera og helstu
ástæður. Þær ástæður sem helst
er horft til eru sníkjudýr, rándýr,
sólarofnæmi og næringarskortur.
Niðurstöðurnar sýndu að
sauðfjárbændurnir töldu afföllin
allt að 17,5%, sem er reyndar lægra
en gögn benda til. Seinna erindi
Fionu fjallaði um einn orsakavald,
sambærilegt við það sem er kallað
sólarofnæmi eða álfabruni í
íslensku. Niðurstöðurnar benda til
þess að hann geti verið áhrifaþáttur
þar sem hærra hlutfall dauðra lamba
var með einkenni sólarofnæmis
heldur en tíðni sjúkdómsins í
hjörðinni í heild.
Baráttan við sjúkdóma
Baráttan við sjúkdóma í búfé er
stöðugt strit sem snýr bæði að
velferð búpenings og skilvirkni
framleiðslunnar. Nú sem fyrr
voru allmörg erindi sem tengdust
þessu efni, meðal annars hvernig
hægt er að kynbæta fyrir þoli fyrir
ýmsum sjúkdómum. Til dæmis
sagði Roel Meyermans frá Belgíu
frá rannsóknum á erfðum psoroptic
mange, húðsjúkdóms á nautgripum
sem orsakast af mítli. Þessi sjúkdómur
er algengur í holdanautakyninu
vöðvastælta Belgískum bláum. Eins
og með svo marga aðra sjúkdóma
í búfé er hluti af breytileikanum
í næmni gripa fyrir sjúkdómnum
tengdur erfðum og því getur einn
þáttur í lausninni verið að velja
fyrir minnkuðu næmi, t.d. með
erfðamengjavali.
Hvernig smitsjúkdómar bregðast
við úrvali og hvernig þeir eiginleikar
sem hafa áhrif á útbreiðslu þeirra
tengjast er rannsóknarefni sem hefur
fengið nokkra athygli að undanförnu.
Tvö erindi á ráðstefnunni sögðu frá
tilraunum á þessu en í báðum tilfellum
var horft til aðstæðna í fiskeldi.
Annars vegar stór smittilraun í fiskum
sem sýndi fram á erfðabreytileika sem
tengist líkum á því að fiskar smitist
af sjúkdómi annars vegar og hversu
líklegir þeir eru til að smita aðra fiska
hins vegar. Hvort tveggja reyndist
hafa erfðabreytileika og óhagstæða
erfðafylgni sín á milli. Annað
erindi sagði frá hermirannókn á því
hvernig val gegn smitsjúkdómi virkar
miðað við mismunandi erfðafylgni
á milli þessara undirliggjandi
faraldursfræðilegu þátta.
Heilsa og velferð búfjár
eru stór viðfangsefni
Mörg önnur erindi komu inn á
velferð eða heilsu búfjár á EAAP
enda mikilvæg atriði í allri
búfjárrækt. Mörg erindanna tengdust
tækniframförum við að fylgjast með
þessum þáttum, en í næsta blaði
verður fjallað um nýjungar í tækni
og aðferðum sem fjallað var um á
EAAP í ár.
Höfundur er lektor við LbhÍ.
Jón Hjalti
Eiríksson.
Hér held ég áfram að fjalla um erindi á árlegri ráðstefnu Evrópusamtaka
búfjárvísindamanna (EAAP) sem var haldin í Flórens á Ítalíu 1. til 5.
september síðastliðinn. Í þessari grein verður kastljósinu beint að nokkrum
erindum sem fjölluðu á einhvern hátt um heilsu og velferð búfjár.
Samt sem áður
væri þessi sami
almenningur með
miklar skoðanir um
framleiðsluaðferðir
sem oft væru ekki á
rökum reistar ...
Sauðfjárrækt á Skotlandi glímir við vandamál sem hljómar kunnuglega í eyrum íslenskra sauðfjáráhugamanna –
afföll fjár á heiðum. Mynd / jhe
skralli@skralli.is
779 1886
BILAÐ SMURKERFI?
VIÐ REDDUM ÞVÍ.
MIKIÐ ÚRVAL AF
VARAHLUTUM Á LAGER
ÞJÓNUSTUM ALLAR
GERÐIR SMURKERFA