Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 44

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Af vettvangi Bændasamtakanna Norrænu fjölskylduskógarnir – Bændasamtökin áttu tvo áheyrnarfulltrúa á fundi í Finnlandi Skandinavíuþjóðirnar eiga mikið undir timburiðnaði, mismikið þó. Þessar frændþjóðir okkar halda úti hagsmunasamtökum; Norrænu fjölskylduskógunum (NFS), í frjálslegri þýðingu. Þau eru með starfsstöð í Brussel og árlegir aðalfundir eru haldnir með b r ó ð u r l e g r i skiptingu milli l a n d a n n a . Síðustu ár hafa þau boðið f u l l t r ú u m skógarbænda á Íslandi að sitja fundi og kynnast fólkinu og samtökunum. Rætt hefur verið um hvort íslenskir skógarbændur væru gjaldgengir aðilar að samtökunum. Bæði hefur það verið rætt meðal Íslendinga um hvort það væri mögulegt, æskilegt og hvað það hefði í för með sér. Einnig kemur umræðan reglulega komið upp innan norrænu samtakanna sjálfra og þau gera sér grein fyrir mikilvægi samstöðunnar þrátt fyrir að Ísland komist ekki í hálfkvisti við hinar þjóðirnar Nú í september síðastliðnum fóru tveir fulltrúar á vegum búgreinadeildar BÍ til Finnlands á aðalfund NFS. Íslensku fulltrúarnir voru Dagbjartur Bjarnason, stjórnarmaður deildarinnar og Hlynur Gauti Sigurðsson starfsmaður. Hér á eftir verður greint frá því helsta sem fór fram í ferðinni, hvernig tengslin styrkjast og hvað fór fram á aðalfundinum í landi jólasveinsins. Í hópi Norðurlandaþjóða eru Íslendingar yfirleitt fremur bláeygðir í málum timburiðnaðar. Það er ekkert skrítið. Á meðan þær hafa í aldaraðir byggt hús og jafnvel háhýsi út timbri úr þeirra eigin heimaræktuðu skógum hafa Íslendingar lagt megináherslur á ósjálfbæran innflutning steinefna til húsbygginga. Við erum eftirbátar þeirra, um það verður ekki spurt en íslensku sendiboðarnir tveir voru allavega komnir á fundinn til að hlusta og blanda geði. Ferðalagið Finnska borgin Oulu er við Helsingjabotn, þ.e. nyrsta hluta Eystrasaltsins, og deilir hnattrænni breiddargráðu með Reyðarfirði og Stykkishólmi. Á flugvellinum í Oulu hittust fundarmenn í rjómablíðu, sunnudaginn 8. september, fyrir utan tvo Dani sem höfðu ákveðið að keyra. Það fór reyndar þannig að þau sameinuðust ekki hópnum fyrr en að morgni þriðjudags, sem var hinn eiginlegi fundardagur en líka dagur heimferðar. En allt í góðu. Föruneytið var skipað einum Dana (hann kom með flugi), tveimur Íslendingum, þremur Norðmönnum, fjórum Finnum, sjö Svíum og starfsmanni NFS, Ungverja búsettum í Brussel. Strax við upphaf ferðar var komin seinkun sem varð þess valdandi að á fyrsta skoðunarstað var ekki farið út úr rútunni heldur einungis horft út um gluggann. Það var áhugaverður barna- og unglingaskóli í smábænum Pudasjarvi þar sem byggingar voru sérstaklega vistvænt hannaðar og skólastarfið tók mið af því. Skólasvæðið er um einn hektari og var byggt fyrir átta árum. Þessi nálgun á námið skilar sér í meiri vellíðan og betri námsárangri. Og talandi um uppbyggjandi leik og starf fyrir krakka þá eru Finnar nýlega búnir að kynna skemmtilegan tölvuleik sem heitir Pocket Forest, gefið út af Koko games. Á leiðinni á náttstað á hótel Iso-Syöte, mátti víða sjá hreindýr inni í víðfeðmum barrskóginum. Íslendingar furðuðu sig á því hvað lítið væri um hefðbundið landbúnaðarland á þessum slóðum. Það kemur víst til út af rótgrónum búskaparháttum. Leið okkar lá við jaðar Lapplands, ekki langt frá heimili jólasveinsins í Rovaniemi þar sem er fyrst og fremst stundaður hjarðbúskapur með hreindýr. Svo virtist sem hreindýrin nytu þess að spígspora þurrum fótum innan um stæðileg furutrén, en manni sýndist að án trjánna hefði landið verið ein stór mýri. Við sólarupprás morguninn eftir sáum við döggina læðast yfir viði vaxnar hæðir og spegilslétt vötn allt um kring. Stórfengleg sýn. Að hugsa sér, að svona gæti það litið út alla Skógarströndina við Breiðafjörð. Að loknu morgunkaffinu var farið á fyrsta skipulagða viðkomustað dagsins; Pölkky Oy sögunarmylluna í sveitarfélaginu Taivalkoski. Vinnsluálmurnar voru risastórar, vélarnar voru tæknilegar og öll gólf voru með ólíkindum þrifaleg. Að jafnaði skilar vinnslan 85 metrum af flettum borðviði á mínútu. Það virtist því sem flokkunin færi fram bæði vélrænt og sjónrænt því vaktmenn fylgdust vel með öllu. Uppistaða hráefnisins var skógarfura 80% og rauðgreni 20%. Vinnslusvæðið er á um 100 hekturum og þjónustusvæðið er í um 150 kílómetra radíus. Til samanburðar er bein lína frá Siglufirði til Víkur í Mýrdal 300 kílómetrar. Í Pölkky starfa 80 manns í allt og unnið er á tveimur vöktum á sólarhring. Þegar eftir því var spurt sagði hæstráðandi að það væri ekkert útilokað að þeir réðu Íslending til starfa yrði eftir því leitað. Á hótel Kiannon Kuohut í sveitarfélaginu Suomussalmi var næst fyrirlestur frá einu finnsku landshlutabundnu félagi skógarbænda en umfang þess er ögn landminna en Ísland. Síðustu ár hefur starfið gengið þungt og hafa bændur selt jarðir sínar til stórfyrirtækja. Samstöðumátturinn er aftur að koma saman enda mikið í húfi fyrir bændur. Að lokum var straujað í átt til rússnesku landamæranna með örstuttu túristastoppi hjá elstu sjoppu Finnlands; Jalavan Kauppa, þar sem Hlynur Gauti Sigurðsson. Hópmynd af fundarmönnum Finnlandsmegin við landamæri Rússlands. Við Raate-veginn má finna ýmis ummerki eftir stríðsátök, svo sem skotgrafir. Í elstu sjoppu Finnlands var allt gamalt. VARAHLUTIR Í KERRUR Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og Bílabúðin Stál og stansar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.