Bændablaðið - 10.10.2024, Page 54
54 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Bændablaðið fékk til prufu
Hyundai Ioniq 6 sem er stór raf-
knúinn fólksbíll með afgerandi útlit.
Hér er á ferðinni ökutæki sem er
afar sportlegt á að líta. Þegar horft er á
bílinn fyrst að framan gætu sumir þurft
smátíma til að ákveða sig hvort þeim
finnist bíllinn lúðalegur eða töff, en
ekki er víst hvort framljósin höfði til
allra. Undirritaður tók hann í sátt eftir
nokkurra daga notkun.
Frá hlið sést hversu langur
bíllinn er. Formið er jafnframt
mjög einkennandi og minnir að
vissu leyti á hvernig hugmyndabílar
framtíðarinnar voru í huga hönnuða
um miðja síðustu öld. Þökk sé
afturljósinu sem nær yfir allan
afturendann, hinu aflíðandi þaki og
tveimur vindskeiðum er skiljanlegt
ef einhverjir halda að þessi kóreski
fjölskyldubíll sé í raun sportbíll frá
Þýskalandi eða Ítalíu.
Klassísk innrétting
Innréttingin í þessum bíl er öll meira
og minna svört eða í dökkgráum
tónum. Misjafnt er hvort efnin eru
mjúk eða stíf, en áferðin er yfirleitt
áhugaverð. Hönnunin er mjög
klassísk að því leyti að hér eru öll
stjórntæki og takkar til staðar, eins
og til að eiga við hljóðstyrk í útvarpi
eða stilla hitann.
Stýrið er með hnappa fyrir útvarp,
hraðastilli og akstursstillingu. Á
bak við stýrishjólið eru tveir flipar
til að auka eða minnka ákefð
mótorbremsunnar. Þá eru stangirnar
fyrir ljós og rúðuþurrkurnar á sínum
stað og rétt hjá þeim gírstöngin.
Stýrikerfið í snertiskjánum er
nokkuð viðamikið en aðgengilegt
þannig að flestir ættu að ná tökum
á því hratt og örugglega. Neðan
við skjáinn eru flýtihnappar
fyrir hinar og þessar valmyndir í
snertiskjánum.
Eins og með stóran hluta nýrra
bíla í dag gefur þessi frá sér píp
þegar ekið er yfir hámarkshraða.
Hægt er að slökkva á þessu væli, en
til þess þarf alltaf að fara í gegnum
nokkur skref í snertiskjánum í hvert
skipti sem ökutækið er ræst.
Á milli sætanna eru tveir
glasahaldarar og þar undir í gólfhæð
er rúmgott geymslutrog þar sem
er til að mynda hægt að geyma
húfur, vettlinga og innkaupapoka.
Aftast í miðjustokknum er lokað
hólf. Hanskahólfið er dregið út á
svipaðan hátt og eldhússkúffa og er
rúmgott. Hurðavasarnir eru ekkert
sérlega breiðir, en eru með smádæld
svo hægt sé að koma fyrir einni
flösku. Fremst í miðjustokknum
er þráðlaus hleðsla fyrir síma og
eru nokkur usb-tengi hér og þar.
Lítill skotthleri
Skottið í bílnum er ágætlega stórt.
Hlerinn er hins vegar lítill og getur því
verið erfitt að koma fyrir stærri hlutum
eða nálgast eitthvað sem er alveg innst.
Undir húddinu er pínulítið geymsluhólf
sem rúmar einn hleðslukapal, átta
samlokur eða tvo snakkpoka.
Framsætin eru þægileg og stillanleg
með rafmagni. Að auki við hinar
hefðbundnu stillingar er hægt að eiga
við mjóbaksstuðninginn og afstöðu
sessunnar. Eins og með alla Hyundai
og Kia myndi undirritaður vilja að
stýrið gæti teygst út aðeins lengra, en
fyrir flesta er það ekki stórvægilegt
atriði. Í aftursætunum er mikið
fótapláss og er gólfið alveg flatt. Hið
aflíðandi þak gerir það að verkum að
höfuðrýmið er skert og munu farþegar
í hærri kantinum kvarta á löngum
ferðalögum, en miðað við hvað þetta
er sportlegur bíll mætti rýmið aftur í
teljast ágætt.
Afslappandi aksturseiginleikar
Upphaf ökuferða á þessum bíl er
afar hefðbundið. Þegar bílstjórinn
sest um borð er bifreiðin ræst með
því að ýta á hnappa á sama tíma og
bremsufetlinum er haldið inni og er
akstursgír valinn með gírstönginni
á bak við stýrið. Hljóðvistin inni í
bílnum er prýðileg, jafnvel þó að ekið
sé á grófum malarvegi. Fjöðrunin er
í mýkra lagi miðað við rafmagnsbíl,
þó að jarðefnaeldsneytisbílar hafi
yfirleitt vinninginn í þeim efnum.
Útsýnið er nokkuð skert þar sem
framrúðan er lág og skynjararnir við
baksýnisspegilinn gera stóran blindan
punkt. A-bogarnir hefðu jafnframt
mátt vera örlítið grennri.
Í stýrinu er hnappur til að velja
á milli akstursstillinga sem eru
nefndar Normal, Sport og Eco. Sú
síðastnefnda er sérlega þægileg og var
notuð megnið af þessum prufuakstri.
Þá verður inngjöfin löt, stýrið létt
og finnst hvernig púls ökumannsins
lækkar sem leiðir af sér afslappað og
virðulegt aksturslag. Í sportstillingunni
er þetta sprækur bíll, eins og við er að
búast af 325 hestafla ökutæki. Hvor
sinn takkinn er fyrir hraðastillinn og
akstursaðstoðina. Því er hægt að láta
bílinn eingöngu hjálpa til við að stýra á
meðan ökumaðurinn sér um inngjöfina
og öfugt. Þá dettur akstursaðstoðin
ekki út þó svo að ýtt sé á bremsuna,
ólíkt mörgum bílum þar sem slökknar
á öllu við hemlun. Allt virkar þetta
fumlaust og á bíllinn yfirleitt auðvelt
með að halda sér á miðri akrein og vera
í öruggri fjarlægð frá næstu bifreið.
Að lokum
Á undanförnum árum hefur Hyundai
eingöngu gert afbragðsgóða bíla sem
eru nánast allir fallegir. Sama um
hvaða bíl ræðir finnst strax að það er
ökutæki sem hægt er að treysta, enda
bilanatíðnin lág. Það sem Hyundai
Ioniq 6 hefur umfram aðra bíla frá
sama framleiðanda er að þetta ökutæki
er með afar sterkan karakter. Í þessum
stærðarflokki eru fjölmargir rafbílar
sem eru ýmist betur eða verr verðlagðir
með tilliti til útbúnaðar. Helstu mál í
millimetrum eru: Breidd, 1.880; lengd,
4.855; hæð 1.495.
Ódýrasta útgáfan af Ioniq 6 nefnist
Comfort og fæst í afturhjóladrifinni
útgáfu á 7.590.000 krónur með vsk. og
styrk frá Orkusjóði. Bíllinn í þessum
prufuakstri var fjórhjóladrifinn og
af Style útfærslu, sem er næsta gerð
þar fyrir ofan, og kostar með styrk
Orkusjóðs 8.590.000 krónur með vsk.
77,4 kílóvattstunda rafhlaðan á að gefa
allt að 519 kílómetra akstursdrægni.
Nánari upplýsingar fást hjá BL
sem er með umboðið fyrir Hyundai
á Íslandi.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Hyundai Ioniq 6
Vélabásinn:
Alveg eins og sportbíll
Hyundai Ioniq 6 er kóreskur fjölskyldubíll með mikið rými fyrir farþega miðað við hversu sportlegur hann er í útliti. Þetta er vel útbúið og vandað ökutæki
sem stenst ágætlega samanburð. Myndir / ál
Skottið er stórt en hlerinn er lítill. Aflíðandi þak, tvö vindskeið og áberandi ljós. Innréttingin er dökk en vönduð.