Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 55
55Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Bóndinn:
Sauðfé passleg stærð
Hjónin Jón Atli Jónsson og Bryndís Karen Pálsdóttir
reka sauðfjárbúið Gröf í Skaftárhreppi og telja sig
hafa sauðfjárræktina í blóðinu. Lesendur geta fylgst
með daglegum störfum þeirra á Instagram-reikningi
Bændablaðsins á næstu dögum.
Jón Atli ólst upp í Gröf frá fimm ára aldri. Hann tók
virkan þátt í bústörfum sem krakki. Bryndís kemur frá
Fossi/Rauðalæk í Rangárvallasýslu og hefur ávallt verið
mikill dýravinur. Þau fluttu saman í Gröf eftir útskrift
úr búfræði vorið 2017.
Hvenær hófu ábúendur búskap og hvers vegna? Haustið
2017 völdum við ásetning þar sem foreldrar Jóns vildu
hætta búskap. Við tókum við búrekstrinum 2018 og
leigjum jörðina, tæki og skepnur enn sem komið er en
það stendur til að gera kaupsamning. Sauðfjárræktin er
í blóðinu og við erum við þakklát fyrir að geta stundað
sauðfjárbúskap.
Býli, gerð bús, staðsetning og stærð jarðar? Sauðfjárbú
í Gröf í Skaftártungu, Skaftárhreppi. Jörðin er 643 ha að
heildarstærð. Þar af eru 49 ha ræktaðir.
Ábúendur, fjölskyldustærð (og gæludýr)?
Við hjónin eigum tvö börn, Melkorku Sif,
6 ára og Patrek Þór, 4 ára. Svo eru tveir
aðrir ættliðir í sama húsi, foreldrar Jóns
Atla, bróðir og amma og afi. Til viðbótar
eigum við þrjá Border Collie hunda, þau
Ás, Bellu og Tinna.
Fjöldi búfjár? Síðasta vetur var 320 fjár
en munum ná að fjölga aðeins í haust
samkvæmt okkar ræktunarmarkmiðum.
Hvers vegna veljið þið þessa búgrein?
Aðallega vegna þess að sauðfé er í passlegri
stærð fyrir okkur stubbana. Svo er sauðkindin
falleg, skemmtileg, bragðgóð og allt bras í
kringum hana er svo gefandi.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur
fyrir sig á bænum? Það er svo sem ekkert
hefðbundið í sveitinni en dagurinn byrjar yfirleitt á kaffi
eða morgunmat. Jón Atli vinnur utan bús hálft árið við
rafvirkjun á Kirkjubæjarklaustri. Yfir innistöðutíma byrjar
hann á því að gefa fénu áður en lagt er til vinnu á Klaustri.
Bryndís vinnur í ferðaþjónustu á næsta bæ svo það eru
oftast þrif og þvottar fram yfir hádegi. Gefur svo oftast
seinniparts-gjöfina. Þá er reynt að nýta helgar í tímafrekari
vinnu í fénu, t.d. bólusetningar, rúning og þess háttar.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður,
smalamennskur og fjárrag á haustin er toppurinn, einnig
heyskapur. Bryndís getur svo aftur á móti sturlast yfir því
að gera við gamlar girðingar! Þó er allra leiðinlegast að
þurfa að aflífa veik dýr.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þann 18. maí
2020, á miðjum sauðburði, var Bryndís komin sex mánuði
á leið. Ærnar voru úti að viðra sig í blíðskaparveðri þegar
hún ssá eingöngu haus standa út úr burðarliðnum hjá einni
ánni. Bryndís ætlaði sér heldur betur að ná kindinni hratt
og örugglega til að bjarga lambinu en þá sneri kindin sér
við og stefndi beint á hana.
Það fór ekki betur en svo að þegar Bryndís reyndi
að grípa kindina þá datt hún um hjólför og þurfti að
bruna á bráðamóttökuna á Selfossi. Út úr þessu kom
illa tognaður ökkli, hækjur og gips í viku og ekki meiri
þátttaka í sauðburði það árið.
Hvað er það jákvæða við að vera bóndi? Svo margt,
þú færð að búa og vera í náttúrunni. Taka á móti ungviði
og sjá það dafna. Rækta þitt eigið og sjá árangur. Einnig
skapa fæðu fyrir íbúa landsins.
Hverjar eru áskoranirnar? Þær eru alls konar t.d. að
ná ræktunarmarkmiðum, einnig er veðurfar á Íslandi
talsverð áskorun og að standast álag sem fylgir þeirri
vinnu að vera bóndi.
Hvernig væri hægt að gera búskapinn ykkar
hagkvæmari? Sennilega með því að gera áætlun og
fylgja henni eftir eins og á við um margt. Ná upp betri
gerð svo meira fáist fyrir hvern dilk.
Hvernig sjáið þið landbúnað á Íslandi þróast næstu
árin? Það er margt stórmerkilegt að gerast, eins og
arfgerðargreiningar gegn riðu og kyngreint sæði í
kúabúskapnum. Vonandi halda bændur sínu striki þrátt
fyrir erfiðleikana. Bændastéttin á skilið meiri virðingu frá
samfélagi sínu og stjórnvöld mega ekki gleyma hvernig
landið er uppbyggt. Íslenskt – Já, takk!
Fjölskyldan á Gröf tekur yfir Instagram Bændablaðsins næstu daga. Þar er stundaður sauðfjárbúskapur. Jón Atli
heldur á Melkorku Sif og Bryndís ber Patrek Þór á háhesti. Myndir / Aðsendar
Fjölskyldan sækir búpening
sinn í réttir. Þau stefna á að fjölga í hjörðinni.
Fylgist með lífi bænda
á samfélagsmiðlum
Bændablaðsins
Umboðsaðilar:
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðarkróki.
Lyngás, Hellu. Bikevik, Reykjanesbæ,
AB varahlutir, Egilsstöðum.
1.349.000,-
Án vsk.1.087.903,-
Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848 - nitro.is
CFORCE 450
Rafmagnsstýri
Hátt og lágt drif
með læsingu Sjálfstæð fjöðrun
Spil
Álfelgur
Handahlífar
Dráttarkrókur
Bein innspýting
Sætisbak
Tveggja manna