Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 56
56 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Ég segi ekki að Bændasamtökin
séu á bakinu á mér með að skrá
mig í félagið en tæknilega séð á
ég þar heima – sem ávaxtabóndi.
Enda stoltur eigandi þriggja
eplatrjáa sem tvö gáfu ávöxt þetta
sumarið. Vandamálið, fyrir utan
að uppskeran var rétt tæplega tvö
hundruð og fimmtíu grömm, er að
mér finnast epli ekki góð.
Þegar hálf uppskeran var fallin í
jörðina eins og hjá Newton forðum
var ekki á annað hættandi en að
taka restina á hús. Hún komst fyrir í
morgunverðarskál og samanstóð af
eplum á stærð við útlensk bláber upp
í stærð á við plómutómat.
Við fyrstu smökkun komumst við
bændurnir á heimilinu að því að þetta
eru ekki beinlínis Pink Lady epli. Þau
voru súr en þó var eplabragð af þeim.
Hvað gera bændur þá? Jú, þeir skella
í böku.
Þarf alltaf að vera bras?
En þá var komið að vandamáli númer
tvö. Eins og mér finnast fersk epli
ekki góð, finnst mér heit og mjúk
epli enn þá verri. Eftir að hafa horft
á eplaskálina í kæliskápnum í á fjórðu
viku var bökugerðin ekki umflúin.
Eitt finnst mér gott við eplaböku-
hornin. Þau bera smá keim af eplum
en engin eiginleg epli. Ég ákvað því
að gera sætt eplamauk og pakka því
inn í smjördeigskodda.
Þegar ég var búinn að afhýða
og skera aldinið frá kjarnanum átti
ég 160 grömm af eplum. Til að þau
verði ekki brún undir eins er gott
að kreista yfir þau sítrónusafa en
viti menn! Ég er ekkert sérstaklega
hrifinn af honum heldur. Þannig að
ég muldi 1/3 af C-vítamín-freyðitöflu
(C-vítamín er fullt af sítrussýru) út
í nokkrar matskeiðar af eplasafa og
velti uppskerunni upp úr blöndunni.
Bætti svo við matskeið af sykri og
hálfum desílítra af vatni og mallaði
blönduna í potti með loki þangað til
eplin voru mjúk. Meðan á suðunni
stóð bætti ég hálfum desílítra í viðbót
út í maukið þegar það var við það
að skrælna. Næst stappaði ég eplin
með kartöflustappara og smakkaði
til með örlítið meiri sykri og klípu af
salti. Maukið hepnaðist vel og ef mér
þættu epli góð hefði mér svei mér þá
þótt það gott.
Deigið
Til að gera deigkoddana þarf smjördeig.
Það er hægt að kaupa í frystideild
nánast hvers einasta súpermarkaðar
á Íslandi. En ef við ætlum að kaupa
deigið er alveg eins hægt að sleppa
því að rækta eplin og kaupa þau
líka. Þannig að við hrærum í deig.
Eða tætum í deig. Því til að
koma smjördegi saman er best að
nota matvinnsluvél. Út í hana fer
325 grömm af allrahanda hveiti,
125 grömm smjör; best að það sé
skorið í bita og ískalt – helst frosið.
20 grömm sykur.
Ég notaði saltað smjör þannig
að ég bætti sirka 3 grömmum
af salti við. Þeir sem eiga ósalt
smjör geta aukið saltmagnið um
2–3 grömm. Þetta er púlsað saman
nokkrum sinnum.
Ekki of mikið. Smjörið á að
vera í sæmilegum stykkjum. Þá er
að hræra 90 grömm af jökulköldu
vatni saman við. Deigið á að vera
eins og fín möl sem klessist saman
milli fingra eins og leir.
Hvolfa deiginu á borð og koma
því saman. Einfaldast að gera eins
og verið sé að hnoða snjóbolta. Búa
til sirka þriggja sentimetra þykkan
disk úr deiginu, helst ferkantaðan
af því að koddarnir eiga að vera
ferkantaðir. Vinna hratt svo deigið
hitni ekki mikið af lófunum. Setja
svo í kæliskáp í minnst klukkutíma.
Allur þessi kuldi; kalda smjörið,
kalda vatnið, kaldar hendur og svo
að kæla deigið er til þess að smjörið
bráðni ekki og samlagist hveitinu,
heldur hangi milli hveitikornanna
og rétt haldi því saman. Þannig
verður deigið brakandi gott.
Klárt í ofninn
Þegar deigið hefur tekið sig í
kæliskápnum er að fletja það út.
Þunnt en ekki þannig að hægt sé
að lesa Bændablaðið í gegnum það.
Skera í ferninga. Sirka 10 cm á kant.
Setja slettu af eplamauki í miðjuna,
smyrja kantana með pískuðu eggi
og brjóta koddann í helming þannig
að hann verði þríhyrndur. Klemma
samskeytin svo með gaffli. Þegar
hér kemur sögu er hægt að kæla
koddana aftur og baka þegar hentar.
Það er jafn vel ákjósanlegt eða baka
þá bara strax.
Píska nokkra dropa af mjólk út
í eggið og smyrja koddann með
blöndunni, strá kanelsykri yfir.
Skera þrjár rendur eða svo í miðjuna
á koddanum svo gufan sem kemur
af maukinu nái að sleppa út. Baka
við 190 gráður í sirka 20 mínútur
eða þangað til koddinn verður
gullinbrúnn og gljáandi.
KROSSGÁTA
Lausn á krossgátu í síðasta blaðiSPLÆSTU
SKRÁ
GRUNDA
SKAGI
Í ASÍU
FÍNGERÐ
FRAM AÐ
VEIÐAR-
FÆRI
ÞEKKJA
LEIÐ
KAUÐI
VÍÐ-
FRÆGING
BEDRÍFUR
GRÍPA
NÍÐA
MISSA
EINS
AFDREP
ÖRK
GEYMSLA
HVÍLA
SMÁN
ÁTT
FUGL
RUGLING-
URDROLLA
NÓTA
BEYGÐU
SNIGIL-
SKEL
TVEIR EINS
GRAMUR
NASL FRAM
MEÐ
FÉLAGI
PLÁSS
GLEÐI
BENDU
VERKFÆRI
VARKÁRNI
BORINN
GJALD-
MIÐILL
HJÁ
HLUTDEILD
ÝFA
DÁLKAR
EINFALT
Á NÝ
SÁÐJÖRÐ
SLYS
SPIL
NAFN
UM-
KRINGJA
FJÖRGAST
HÖFGI
ÍÞRÓTTA-
FÉLAG
SLEKT
HLÍFÐAR-
LAG
MANNA-
LÆTI
ALA
SKIL
RIFTUN
SKEMMU
HÓTUN
YRKJA
NÆÐI
INN-
BLÁSTUR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
228
SAMAN-
LAGT
ÁTELJA A HLUTU F ELJU
VÍS-
BENDING
TRÍTLA H
H
SKART-
GRIPUR
TORVELDA Á L S F E S T I LÝJA
AH M L A NIFTEIND N E I N D
RSKORIÐ I S GÆFA
FORVIÐA G I F T A
N AÐGÆTA
SVIPAN Í H U G A MIKLU S
Ö GAGNSÆR
ÁVÖXTUR
NAFN B A N A N I FUGL L ÁTT
SORG S A
EFNISÝTA
MÍ RÖÐ
LJÓMI
HLJÓÐ-
FÆRI
T
R G E L BRÁÐRÆÐI
SEPPA A N SKAMMT S T U T T AFMÁO
Y L L I R MÁSI D Æ S I UPPTÖK
HENTA R Ó TRUNNI
G Æ S K A HLAUP R HELBER
KANNA A L G E R OMILDI
STORKA
G R A LOSTÆTI
SKOT K R Á S NAFN
VÉFENGJA D A G U RÖ
I ÚTSKOT
ATVIKAST
INNVOLS S K E ÞRJÓSKA K E R G I HEIÐUR T
S K I P A N NIÐUR
FISKUR O F A N STÖÐUGT
TÆKI S ÍSKIPULAG
L I Ð A FYRIR-
GEFA N Á Ð A FRUMEIND
SKYLDIR A T Ó MBYLGJA
Á
S
M
I
U
R
R
K
SKADDA
I
S
L
L
L
A
FREMST
Á FÆTI
S
T
A
Á
BERG-
MÁLA
S
Ó
L
M
A
AKER
HRING-
FARI
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
227
www.bbl.is
Matarkrókurinn:
Vandamál eplabónda í Kópavogi
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Eplamauk
160 grömm af súrum eplum
frá eplabónda í Kópavogi
1 dl vatn
2–3 msk. sykur
5 msk. eplasafi
1/3 C-vítamín-freyðitafla
¼ tsk. salt
Smjördeig
325 g hveiti
125 g smjör
90 g vatn
15 g sykur
5 g salt
---
1 egg
Kanilsykur
Nokkrir dropar af mjólk
Nautnaseggir þeyta svo auðvitað rjóma með eplakoddunum. Mynd / Hari