Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 6
4
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Sveinbjörn Benediktsson
f.v. póst- og símstöðvarstjóri og útgerðarmaður á Hellissandi
Þegar komið var að máli við
mig um að fróðlegt gæti verið og
gaman, að spjallað yrði við
Sveinbjörn Ben. þá vakti það
strax áhuga minn vegna þess að
ég vissi hann hafsjó af fróðleik
um nánast alla síðustu öld.
Vorið 2005 heimsótti ég hann
á dvalarheimili aldraðra í Stykk-
ishólmi. Hann var þá andlega
mjög hress og sagðist dvelja þar í
góðu yfirlæti. Það eina sem
skyggði á væri missir eiginkonu
hans, Astrósar, árið 1999. Svein-
björn tók umleitan minni um
viðtal vel og sagði glettnislega:
„Á ná að fara að rekja garnirnar
ár mér“? Því miður náði ég ekki
nema einu spjalli við hann vegna
þess að hann andaðist þann 26.
janáar s.l.
Sveinbjöm, ertu fieddur á Hell-
issandi?
Nei, en ég er samt Snæfellingur,
fæddur í Grafarnesi í Grundarfirði
þann 6. október 1918. Faðir
minn, Benedikt S. Benediktsson,
var fæddur og uppalinn á Patreks-
firði og starfaði hann þar hjá Pétri
Halldórssyni konsál og fiskkaup-
manni, sem lét reisa hás og setti
upp fiskvinnslu árið 1915 í Graf-
arnesi. Fékk hann pabba til að
standa fyrir þeim viðskiptum.
Þetta var fyrsta hásið sem reist var
á þeim stað sem ná stendur hinn
myndarlegi kaupstaður, Grundar-
fjörður. Það var einlyft með risi,
stóð á kampinum rétt hægra meg-
in við aðalbryggjuna. Fiskverkun-
in var niðri en báið uppi á loft-
inu. Það var rysjótt veðurfar á Is-
landi á þessum tíma, miklar frost-
hörkur og ísavetur. Ekki furða
þótt ungum manninum yrði kal-
samt á loftinu einsömlum, nóg
var af fríðum og föngulegum
stálkum í firðinum. Hann réði sér
ráðskonu sem stóð fyrir heimilinu
í Gröf um þessar mundir, Geir-
þráði Kristjánsdóttur, sem fædd
var í Ólafsvík 26. október 1889.
Svo fór að þau felldu hugi saman
og giftust. I þessu hási fæddist ég
frostaveturinn mikla, þann 6.
október 1918 og Halldór bróðir
minn líka árið 1920. Við fluttum
til Patreksfjarðar árið 1920 og þar
fæddist Unnur systir okkar. Faðir
minn starfaði við skrifstofustörf
hjá Pétri Halldórssyni til ársins
1927 er fjölskyldan flutti til Hell-
issands og hann tók að sér að reka
fiskverkun og verslun fyrir Tang
og Riis. Á þessum tíma var
heimskreppan mikla að byrja og
mjög erfitt með kaup og sölu á
vörum til og frá landinu og af
þeim sökum varð fyrirtækið gjald-
þrota árið 1932. Faðir minn hafði
hug á að kaupa hásnæðið og
reksturinn. Kaupfélag Hellissands
var þá nýlega stofnað og versluðu
þeir í hási Sæmundar Halldórs-
Sveinbjörn Benediktsson og Ástrós Friðbjarnardóttir.
Flytjum öllum sjómönnum í Snæfellsbæ
og fjölskyldum þeirra
bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins
Landflutningar
JJ SAMSKIP