Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 12
10
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Skarðsvík SH 205 smíðuð í Danmörku 1960
lendan her. Ég man eftir því að ég
var staddur í Reykjavík og þá var
ég beðinn, ásamt sérfræðingum,
að fljúga vestur og ég gæti trúað
því að í framhaldi af þessari ferð
hafi náðst samkomulag, sem allir
gátu sætt sig við. Ég sé ekki betur
en að allt hafi farið vel að lokum.
En núna erum við sjálfstæðis-
menn í meirihluta og Asbjörn
Óttarsson, sonarsonur minn
stendur sig vel.
Hvemig finnst þér sameining sveit-
arfélaganna í Sruefellsbte hafa geng-
ið?
Síðan hún kom til tals hef ég
alltaf verið hlynntur henni, þetta
er eðlileg þróun á nútímanum. Ég
á marga góða vini undir jökli en
það er eðlilegt að einhverjir eigi
erfitt með að sætta sig við þetta til
að byrja með og þá sérstaklega
eldra fólk, sem hefur með dugn-
aði sínum byggt upp sína heima-
byggð.
Jieja, Sveinbjöm. Þú ert búinn að
lifa tímana tvenna en nú ertu sest-
ur að í Stykkishólmi.
Ég hætti störfum sem póst- og
símstöðvarstjóri þegar ég varð sjö-
tugur og hálfu ári betur, árið
1989. Þá var nú mikið breytt
maður, komin ný póst og símtöð
upp á Klettsbúðartún með íbúð
uppi en einhvern veginn kunnum
við Ástrós ekki við að flytja úr
Hraunpýði fyrr en við fluttum
okkur alfarið um set árið 1997.
Við keyptum okkur fyrst raðhús í
Mosfellsbænum, á fallegum stað,
en þegar við ætluðum að flytja var
búið að byggja fyrir húsið, þannig
að við sáum ekki sjóinn og það
gekk bara ekki upp, svo að við
flúðum. Stuttu seinna vorum við
svo heppin að vera í heimsókn í
húsi í Stykkishólmi og þegar við
komum út mættum við ðlafi bæj-
arstjóra á reiðhjóli. Ég næ að
stoppa hann og spyrja hvort það
væri rétt að verið væri að byggja
dvalarheimili á staðnum og hvort
við gætum sótt um íbúð. „Já, það
er rétt“, svaraði hann. „Og það er
aldrei að vita, sæktu bara um“ og
það varð úr og við fengum þessa
fínu íbúð með fallegu útsýni. En
verst þótti mér að missa hana
Astu mína, aðeins einu og hálfu
ári eftir að við fluttum. Hún var
alveg einstök kona hún Asta, fé-
lagslynd, og það var alltaf mildð
að gera hjá henni. Það voru svo
margir sem komu í Hraunprýði,
alltaf líf og fjör. Það var mikil
ánægja og skemmtilegt að við
skyldum fá að lifa saman í 60 ár.
Það kom aldrei neitt upp á, við
áttum svo vel saman og við feng-
um að njóta þess. En börnin mín
og blessuð barnabörnin hafa sam-
band við mig á hverjum degi.
Hver verða lokaorðin þín Svein-
bjöm íþessu viðtali okkar?
Ég vil taka það fram að mér líð-
ur vel. Það er alveg sérstaklega
góður aðbúnaður hérna. Starfs-
fólkið er til allrar fyrirmyndar og
gott sambýlisfólk. Ég tek þátt í fé-
lagslífi og þá sérstaklega spila-
mennsku.
En síðustu orð mín eru:
Sjómenn hafa alltaf verið mínir
menn og ég hef alla tíð reynt að
gera allt fyrir þá sem ég hef getað.
Ingi Dóri Einarsson.
Sendum sjómönnum okkar bestu kveöjur
á sjómannadaginn !
^iSTEINPRENT
W Sandholt 22, Ólafsvík
f S: 436 1617 • Fax: 436 1610