Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 56

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 56
54 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 Sjómannadagurínn í Ólafsvík 2005 Hátíðarhöldin vegna sjómann- andagsins í Ólafsvík hófust með málverkasýningu Sjafnar Har í Pakkhúsinu í Ólafsvík föstudag- inn 3. júní. Sýningin var opnuð kl. 18:00 að listamanninum við- stöddum ásamt fjölda gesta. Er- lingur Helgason skipstjóri spilaði á harmoniku við opnunina og boðið var upp á léttar veitingar. Þetta var fyrsta eiginlega jöklasýn- ing Sjafnar, en sýningin var opin til 12. júlí. A laugardeg- inum fóru keppnisgrein- arnar fram þ.e. kappróð- ur, trukkadráttur og boð- hlaup á milli skipshafna en einnig kepptu kvennasveitir. Að auki var keppt í brettahlaupi. Kvennasveitin „Dívurn- ar“ vann kappróður kvenna en áhöfnin á Guðmundi Jenssyni sigr- aði í karlaróðrinum. Veður var gott og fjöldi fólks að fylgjast með þótt keppnin hafi byrjað kl. 11:00 f.h. Um miðjan dag kom Bjössi Bolla í heimsókn og skemmti krökkunum. Um kvöld- ið var sjómannahóf í Félagsheim- ilinu Klifi þar sem sjómenn skemmtu sér ásamt eiginkonum, kærustum og öðrum gestum. Ym- islegt var til skemmtunar, m.a. söng áhöfnin á Steinunni SH eins og þeim er einum lagið og söng- hópurinn „Tveir í kór“ söng við mjög góðar undirtektir. Jóhanna Jónasdóttir, sjómannskona, flutti minni sjómanna. Ekki gleyma sjó- menn eiginkonum sínum á sjó- mannadegi en tvær sjómannskon- ur voru heiðraðar, þær Svanhildur Pálsdóttir og Björg Elíasdóttir. Á sunnudeginum hófst athöfnin í Sjómannagarðinum eftir hádegið með ræðu Bjarna Ólafssonar bónda í Geirakoti. Tveir sjómenn voru heiðraðir, þeir Finnur Gærdbo og Magnús Þorsteinsson sem stundar enn sjómennsku á frystitogara, en Magnús er að verða 69 ára gamall. Þá voru verð- laun veitt fyrir keppnisgreinar. Úr Sjómannagarðinum var farið í skrúðgöngu að minningarreitn- um við kirkjugarðinn í Ólafsvík, sem vígður var árið 2004. Þar fór fram útimessa í blíðskaparveðri þar sem sr. Óskar H. Óskarsson predikaði og Gunnar Örn Gunn- arsson sjómaður flutti ræðuna að þessu sinni. Kirkjukórinn söng undir stjórn Veronicu Oster- hammer og Valentina Kay spilaði sálmana á harmoniku. Fjöldi fólks var við messuna og var þetta afar hátíðleg stund. Sjó- mannadeginum lauk svo seinni partinn með skemmtisiglingu á fjórum bátum og veglegu pylsupartíi fyrir börnin. Um undirbúning Sjómannadags- ins sáu að þessu sinni skips- hafnirnar á Agli SH og Magnúsi Ingimarssyni SH og fór allt mjög vel fram undir þeirra stjórn. Sjómannadagurinn 2006 verður í höndum áhafnar- innar á Sveinbirni Jakobs- syni SH 10 og útgerðarmannanna á Smyrli og Nonna í Vík. Þá var skorað á áhöfnina á Ólafi Bjarna- syni að sjá um skemmtiatriði á sjómannahófmu 2006. PSJ. Svava Hrönn Þorsteinsdóttir, Anton Jónas Illugason og Arnar Þór Ragnarsson taka við verðlaunum íyrir flekahlaup. Fasteignasalan Valhöll Óskurn sjómönnum ogjjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Komið til heimamanna og við munum aðstoða ykkur við kaup og sölu á fasteignum - mikil reynsla VAJLHOLL |FASTEIQN»SAI.A| Bárður H. Tryggvason sölustjóri Ingólfur G. Gissurarson lögg. fasteignasali Þórarinn M. Friðgeirsson Kristinn Kolbeinsson lögg. fasteignasali Sesselja Tómasdóttir. Ellert Róbertsson Guðrún Pétursdóttir Margrét Sigurgeirsdóttir Þóra Þorgeirsdóttir Magnús Gunnarsson Pétur S. Jóhannsson Sandari Skagamaður Sandari jrá Gljúfrasteini Ólsari frá Bifröst á Sandi Ólsari Akureyringur Ámesingur Sölmnaður Sölumaður Fasteignasalan VALHÖLL Síðumúla 27 - s: 588 - 4477 - fax: 588 - 4479 - E.mail: bardur@valholI.is

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.