Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 58

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 58
56 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 Þorsteinn Jakobsson Fyrsta sjóferðín Ég var kominn hátt á þrítugs- aldurinn þegar ég flutti frá Vík í Mýrdal til Hornafjarðar. Ég hafði búið í Vík í tvö ár og unnið þar á bílaverkstæði er ég fékk vinnu í Vélsmiðju Hornafjarðar, í bíla- deild. A Hornafirði kynntist ég góðum vini, Kristmundi Inga- bjömssyni eða Didda eins og hann var kallaður, sem þá var kokkur á Þóri SF 77, 120 tonna bát á Hornafirði. Hann var ættað- ur frá Skagaströnd og búinn að vera á sjó frá blautu barnsbeini. Eitt af því fyrsta sem hann spurði mig um, við okkar fyrstu kynni, var hvar ég hefði verið á sjó. Ég sagði sem var að um borð í bát hefði ég aldrei komið, og því síður á sjó, en mig hálf langaði til þess að prófa þann atvinnuveg. Ég var samt hálfhræddur um að ég yrði sjóveikur, minnugur frásagnar föður míns, sem sagði mér frá því að hann hefði róið heilan vetur í Garðinum og orðið sjóveikur upp á hvern einasta dag. Þetta kom flatt upp á Didda en hann hafði víst varla hitt mann fyrr, sem ekki hafði verið til sjós. Diddi taldi mig á að koma með í einn túr. á Þóri sem farþegi og kynnast sjómannslífi af eigin raun. Þeir voru á línu og lágu alltaf eina nótt úti. Ég lét til leið- ast og fór með þeim í róður á föstudegi, ákveðinn í að verða ekki sjóveikur. Þetta var alveg nýtt fyrir mér. Ósinn spegilsléttur Þetta var föstudagskvöldið 23. júní 1978. Á Hornafirði voru beituskúrarnir nánast á bryggj- unni á þessum tíma. Þegar ég mætti til skips var verið að bera línubalana um borð. Menn tóku í handföngin á bölunum og röðuðu sér í keðju. Sex menn hlupu með fimm bala í einu. Ekki man ég hvað fóru margir balar um borð en þetta voru allt ný verk fyrir mér og svona lagað hafði ég aldrei séð áður. I minni vinnu sem bif- vélavirki gilti það að vanda sig án þess að vera of lengi með verkin. En þarna kynntist ég nýju verklagi þar sem hraðinn á öllu virtist skipta mestu máli. Fyrr en varði komust allir balarnir um borð og landfestar voru leystar. Það er gaman að sigla um ósinn á Hornafirði í góðu veðri eins og ég fékk í þessari fyrstu sjóferð minni. Það var að vísu ekki góð fjallasýn, því þoka lá yfir Vatnajökli, en ós- inn var spegilsléttur þetta kvöld. Þegar út fýrir ósinn var komið var nú samt ekki alveg sléttur sjór þrátt fyrir gott veður. Það var smá gura af suðvestan og báturinn stakk sér dálítið í ölduna. Stefnan var tekin í vestur í átt að Hrollaugseyjum og ég stóð í brúnni og fylgdist spenntur með. Eklti dugði þessi gura til þess að gera mig sjóveikan og voru skip- verjar dálítið undrandi á þessu, en ég heldur montinn. Það var farið vestur fyrir Hrollaugseyjar og ekki man ég lengur hvað við vorum lengi þangað. Við fórum út að kvöldi til og línan var lögð fyrripart nætur. Það var beðið í 3- 4 tíma þar til línan var dregin aft- ur. Þegar búið var að leggja línuna stungu menn sér í kojur, nema einn sem tók baujuvaktina. Ruslfiskur í hafið Ég sofnaði fljótlega þrátt fyrir hreyfmgu á bátnum og vaknaði ekki fyrr en búið var að draga þrjá eða fjóra bala. Ég vaknaði við að Diddi kokkur ýtti við mér og Ors/iu/ti xj'órnörmii/n oa /jö/'S'/iu/c/u/nþein/Ht ti//ictrning/tt rneo (/ttyinn ! Höfum þjónað sjávarútveginum frá árinu 1982 Vélsmiðja Árna Jóns Rifi S. 436 6773

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.