Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 30
28
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Soffanías Cecilsson. Formaður frá 1981 til
1998
Hjálmar Kristjánsson fram-
kvæmdarstjóri í Rifi tók við af
honum.
Það vekur athygli að í sextíu og
sex ára sögu félagsins þá eru að-
eins fimm stjórnarformenn í fé-
laginu og þar af eru þrír sem
stjórna því í sextíu ár.
Þrír framkvæmdastórar
Kristmann Jóhansson var ráð-
inn fyrsti framkvæmdarstjóri fé-
lagsins 1938 og gengdi hann því
starfi til ársins 1963 eða í 25 ár.
Ásgeir Ágústsson tók við fram-
kvæmdarstjórastarfinu af Krist-
manni og gegndi hann því til árs-
ins 1975 eða í 12 ár. Fram-
kvæmdarstjóri frá 22. ágúst 1975
til 31.des 1975 var Víklngur Jó-
hansson en frá 1. jan 1976 til 31.
des 2004 gegndi Gissur Tryggva-
son þessu starfi eða í 29 ár.
Aðeins þrír framkvæmdastjórar
hafa stýrt þessu félagi í sextíu og
sex ára sögu þess að undanskyld-
um fjórum mánuðum.
Félagið selt
I maí 2000 var samþykkt á Al-
þingi að gera hlutafélag úr samá-
byrgð Islands og í kjölfarið að
selja félagið. Þar sem bátaábyrgð-
arfélög sem starfandi voru hér á
landi voru með allar sínar trygg-
ingar í gegnum Samábyrgðina þá
var þetta mikið mál fyrir þau og
því úr vöndu að ráða. Á fundi 30.
ágúst 2000 var gengið frá kauptil-
boði til iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins í Samábyrgð Islands
h/f og jafnframt gengið frá samn-
ingi Gróttu og Bátatryggingu
Breiðafjarðar um kaup á hugsan-
legum hlut Varðar á Akureyri í
Samábyrgðinni, en Vörður var þá
að verða sjálfstætt tryggingarfélag.
Á þessum tímamótum hafði Sjó-
vá Almennar tryggingar h/f yfir-
tekið Vélbátaábyrgðarfélag Isfirð-
inga.
Þann 29. des 2000 er það orðið
Ijóst að kaupendur að Samábyrgð
Islands h/f eru Vélbátaábyrgðar-
félagið Grótta, Bátatrygging
Breiðafjarðar og Sjóvá Almennar
tryggingar h/f.
Ætlunin var að gera eitt stórt
tryggingarfélag úr Samábyrgð-
inni, Gróttu og Bátatryggingu
Breiðafjarðar. Ekki gekk það eftir.
Mánudaginn 2. júlí 2001 var
fundur haldinn í stjórn Báta-
tryggingar Breiðafjarðar þar sem
upplýst var að Grótta hefði geng-
Hjálmar Kristjánsson. Síðasti formaður
stjórnar.
ið til samninga við Sjóvá Al-
mennar tryggingar h/f um að
selja þeim hlut sinn í Samábyrgð
íslands og afhenda þeim trygg-
ingarstofn sinn þann 1. okt n.k.
Einnig hefði komið tilboð frá
Sjóvá Almennum tryggingum h/f
í hlut Bátatryggingar Breiðafjarð-
ar í Samábyrgðinni og í trygging-
arfélagið sjálft. Samþykkt var á
þessum fundi með fyrirvara um
samþykki félagsfundar, að ganga
að þessu tilboði þar sem öll
Kristmann Jóhannsson. Framkvæmdastjóri
frá 1938 til 1963. Eigandi myndar er Ljós-
myndasafn Stykkishólms
samningsstaða félagsins væri nú
nánast engin og félagið ekki nógu
öflugt til þess að starfa sjálfstætt.
Félagsfundur var svo haldinn 16.
júlí 2001 og var framangreind
sala þar samþykkt.
Lok félagsins
Á aðalfundi félagsins 29. maí
2002 var svo samþykkt að leggja
félagið niður og gerðar ráðstafanir
um slit á þvf. Næstu tvö árin fóru
svo í ýmis uppgjör og vinnu við
að greiða félagsmönnum út eign
félagsins.
Þar með er sögu félagsins lokið
en að sjálfsögðu þá eru ekki allir
þeir aðilar sem setið hafa í stjórn
félagsins á þessum tíma taldir hér
upp, aðeins stjórnarformenn og
framkvæmdarstjórar.
Að lokum vil ég óska öllum sjó-
mönnum og fjölskyldum þeirra
til hamingju með daginn með
von um að þeim megi vel farnast
um ókomna tíð og þakka ég gott
samstarf í þessi tuttugu og átta ár
sem við höfum unnið saman.