Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 53
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
51
af fjörðum um að fáir aðkomu-
bátar hafi komið og menn bera sig
illa og eru hafnirnar svipur hjá
sjón, þegar trillurnar komu í hóp-
um vestur þar, sem fiskiríið var og
sköpuðu atvinnu við löndun, fisk-
vinnslu og flutning á fiski, svo og
gjöld sem runnu inn í hafnarsjóði.
Þessum bátum hefur nú þegar
fækkað og á eftir að fækka enn.
Það hefði verið skynsamlegt að
halda í sóknardagakerfið, en lag-
færa það og rýmka.
Meðan fiskveiðikvótastjórnun
skilar ekki árangri heldur gengur á
þorskstofninn, er sýnt að endur-
skoðunar er þörf. Endurskoða
þarf hvernig við veiðum fiskinn,
með hvaða veiðarfærum og á
hvaða svæðum. Hvernig veiðar-
færin fara með umhverfið neðan-
sjávar, botn og dýralíf.
Einnig þarf að komast að því
hvort stóri þoskurinn er önnur
arfgerð en sá smái, sem virðist
vera orðinn kynþroska undir 50
sm, og ef svo er, þá er litla arfgerð-
in að smjúga möskva, verndaður
sem undirmál og fær að hrygna en
sá stóri er hundeltur af öllum
þorskveiðiflotanum. Eftir nokkur
ár verður fiskveiðistofninn okkar
ef til vill samsettur úr mjög smá-
um fiski. Þetta skiptir sjómenn
miklu máli því laun þeirra helgast
meðal annars, af fiskverði. Svo er
það ætið, loðnan. Gengið er
gegndarlaust í þann stofn og ekki
líst mér á þegar nýja Engeyin fer
að svolgra hana í sig.
Sjómenn, haldið því áfram að
láta skoðun ykkar í ljós um fisk-
veiðistjórnunarkerfið og þá vit-
neskju sem þið öðlist við vinnu
ykkar við fiskveiðar. Sú milda um-
ræða, sem varð um lokun veiði-
svæðis fyrir framan Ólafsvík í
haust, sýndi að þið unnuð það
mál með félagi ykkar, Snæfelli.
Lengdarmæling eingöngu til að
ákvarða aldur fisks er ekki lengur
boðleg
Hér stend ég í sjóklæðum,
fannst það eiga við til að minna á
aðstæður sem sjómenn vinna við,
ágjöf, vosbúð og slor. Liturinn er
heldur ekki tilviljun. Margir sjó-
menn þurfa að klæðast flotvinnu-
göllum, vera með hjálma, í örygg-
isstígvélum og tengdir við öryggis-
línu. Þetta lýsir vel hvað starfsum-
hverfi þessara manna er oft hættu-
legt'
Slysavarnafélagið Landsbjörg er
nú með átak til að bæta þremur
sjóbjörgunarbátum við þá ellefu
björgunarbáta sem nú eru stað-
settir allt í kringum landið, á þeim
stað sem styst er á fiskimið. Hvet
ég því alla að leggja þessu góða
máli lið.
A sjómannadaginn minnumst
við horfinna atvinnuhátta með
kappróðrum. Minnumst áratoga
vermanna gegnum aldirnar. Vega-
lengdir hér áður voru jafnvel
mældar í áratogum eins og segir í
gamalli vísu.
Frá Eyrarbakka út í Vog
er það mældur vegur.
Átján þúsund áratog
áttatíu og fégur.
Ég vil að endingu þakka fyrir
þann heiður sem mér er sýndur
með að fá að flytja hér ræðu. Þá
vil ég óska öllum enn og aftur til
hamingju með daginn.
Os/uim s/ómönnum r/yr j/Ö/s/uj/c/um /yeiwHi
ti/ /uiminay'u med c/cujinn /
VALHÖLL FASTEIGNflSALfll SiOumúla 27 • Sími 588 4477 ■ Fax 588 4479 Svalþúfa ehf. X VERSLUNIN f \ BLÓMSTURVELLIR V jSm hell.ssandi JKjr S: 436 6655
optimar 3 w fish handling with care 0r brimborg Sími 55 I0 500 http^/fiskifelag.is FISKIFÉLAG fSLANDS
Netagerð Aðalsteins ehf.
Norðurgarði 1 • 355 Ólafsvík • Sími: 436 1544
íð
íslandstrygging hf.
Hafnarbraut 25 • 200 Kópavogur
Sími: 554 0000 • Fax 554 4167
www.klaki.is • klaki@klaki.is
KÆIIVER EHF
Hafliði Sæualdsson GSM: 893-1906
Steinar Vílhjálmsson GSM: 8944310
Súðarvogi 28 S:5874530 - 5303100
F plús
borqar sig alltaf