Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 62
60
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
indi til að sjóða járn frá 5mm
þykkt og upp úr. Þessum réttind-
um verð ég að viðhalda með því
að mæta í próf eða úttekt á 2 ára
fresti hjá Iðntæknistofnun þar
sem allar suður eru röntgenmynd-
aðar í bak og fyrir“. Árið 1998 tók
Elías hið svokallaða pungapróf
Elías við rennibekkinn á verkstæðinu.
sem gefur skipstjórnarréttindi á
30 tonna báta.
Standa sig í starfi
Snemma beygðist krókurinn hjá
Elíasi er snéri í átt til starfa og þar
var áðurnefndur metnaður sann-
arlega til staðar. Þegar hann var 8
ára gamall, eða á Reykjavíkurár-
um sínum, var hann farinn selja
dagblöð í Austurstræti. Þar var
metnaður lagður í selja sem mest
því þeir sem það gerðu fengu for-
gang að því að sækja sér blöð í
prentsmiðjuna og gátu því tekið
sér fleiri blöð en hinir sem ekki
komust þangað og fengu aðeins
úthlutað ákveðnum fjölda. „Já, ég
komst nokkrum sinnum í verk-
smiðjuforgang“ segir Elías og
brosir út í annað. Hann var 10 ára
gamall þegar hann var farinn að
vinna í skreið í Ólafsvík og gaf
ekkert eftir. Eftir önnina í Iðn-
skólanum í Reykjavík tóku við 5
sjómennskuár frá 1987-’92 á ýms-
um bátum. Samningsárin á
Hornafirði voru blanda af námi
og starfi, sem átti eftir að nýtast
vel þegar fram liðu stundir. Árið
1998 ákvað Elías að nýta sér
pungaprófið og keypti sér trillu en
honum fannst það ekki álitlegur
kostur að starfa við til langframa.
„Þetta skilaði litlu þegar upp var
staðið. Eilífur eltingarleikur við
fiskinn út af Vestfjörðum og norð-
ur af Skagaströnd. Þetta var hálf-
gert sígaunalíf og síður en svo fjöl-
skylduvænt. Það eina góða sem
þetta gaf af sér var að ég kynntist
konunni á Suðureyri er ég gerði út
þaðan“. Árið 2000 var trillan því
seld og ekkert hefur verið gælt við
trilluútgerð síðan. Þegar Elías og
Elín fluttu til Ólafsvíkur fyrir fjór-
um arum og var hann vélstjóri um
borð í Leifi Halldórssyni í nokkra
mánuði. Fyrri hluta árs 2003 fór
Elías að vinna í Vélaþjónustu Þor-
gríms. Eftir að Þorgrímur veiktist
um mitt ár 2003 varð það úr að
Elías keypti fyrirtækið og hóf það
starfsemi á hans nafni 1. ágúst
2003 undir nafninu Vélsmiðjan
Víkurhöfn. „Þetta er þjónustu-
starf og maður þarf að standa sig í
starfi ef þetta á að ganga upp en
vinnudagarnir geta stundum verið
býsna langir“ Elías segist vera
þakklátur fyrir þær góðu móttök-
ur sem fyrirtækið en uppbygging-
in taki vissulega tíma. „Þetta ger-
ist hægt og bítandi. Við erum
tveir starfsmennirnir í dag auk
konunnar minnar, sem sér um
bókhaldið, auk þess að vera í rúm-
lega 60% starfi á Leikskólanum.
Það þarf að halda vel á spöðunum
ef allt á að ganga upp“. Stærstu
kúnnar Víkurhafnar eru smábáta-
útgerðarmenn og aðalstarfsemin
gengur út á viðhald og vélaniður-
setningar í smábátana. Einnig er
Elías þjónustuaðili á öllu Snæfells-
nesi fyrir vélar frá Volvo penta og
Yanmar auk þess að þrykkja
glussaslöngur og vera með vörur
frá Barka. Þá smíðar hann allt
Verslun - veitingar - bensín - olíuvörur
Smur- dekkja- og vélaviðgerðir
Opið frá 900-2300 - Verið velkomin