Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 70

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 70
68 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 greinarmun á lífsgæðum og flokk- ar þau í þrjá flokka: Veraldargæði, sem eiga sér rætur utan við manneskjuna eins og t.d. peningar, kvóti, völd og fl. Andleg gæði eru aftur tengd sál- argáfum fólks og eiga rætur í mannfólkinu sjálfu og menning- ararfi þjóðarinnar. Hlutverk menntastofnanna er meðal annars að auka hin andlegu gæði, það er hæfileikann til þess að ímynda sér, skilja og skapa. Siðgæði er sá hæfileiki sem fólg- inn er í góðri dómgreind sem skapast af þrem þáttum; frelsi, réttlæti og kærleik sem eru undir- stöður allrar dómgreindar, sem hlúa verður að, annars rýrna þau og dómgreindin í samfélaginu minnkar. Ekki er allt gull sem glóir Margur Islendingurinn hefur nú týnt sjálfum sér í lífgæða- kapphlaupinu. I kjölfar góðæris- ins hefur verðmætamat okkar skekkst, fólk hefur fjarlægst hvert annað, firrst veraldlegum tengsl- um, firrst ábyrgð og sannri lífs- gleði. Þetta hefur síðan birst okk- ur í auknu þunglyndi, fíkniefna- neyslu, hóflausri skemmtanafíkn, endalausum gerviþörfum, skiln- uðum og sjálfsvígum. Skýringin á þessu er að hluta til sú, að nú til dags þarf enginn að bíða eftir neinu né safna fyrir nokkrum sköpuðum hlut. Allt gerist fljótt og fyrirhafnarlaust og því vantar þessa sameiginlegu bar- áttu og markmið og með því hverfur stór hluti af tilgangi brauðstritsins og hins daglega lífs. Með öðrum orðum góðærið hefur fært okkur betri efnahag en lakara og innihaldslausara líf. Það hefur auðvitað enginn áhuga á því að snúa aftur til fyrri fátæktar og allsleysis, en öll viljum við leitast við að njóta þeirra gæða, sem okkur hefur hlotnast. En það má samt ekki vera á kostnað þeirrar hamingju sem býr innra með okkur og þeirra verð- mæta, sem felast í gleðinni og gæfunni að vera til. Því eins og máltækið segir þá er ekki allt gull sem glóir. Viðfangsefni okkar eru meðal annars að hlúa að þeim verðmæt- um sem felast í mannlegum sam- skiptum, andlegum lífsgæðum, frjórri hugsun, tómstundum og daglegri velferð. Það mikilvægasta í okkar lífi eru fjölskyldur okkar og ástvinir og það er á okkar ábyrgð að fmna tíma fyrir hvort annað. Ástin og vinskapur verður hvorki keyptur né seldur þannig að það er á allra færi að skapa sér og sínum hamingjuríkt líf, því eins og sagt er þá veit enginn hvað átt hefur fyrr en misst hefur og sæll er sá er sínu unir. Lifið heil. S/@^ar r / ÖÍ4SJS WÉgSti DYRKORNAS ■BSSSSSSBi__ Skútuvogi 6 - 104 Reykjavík Síml 553 3311 - Fax 553 3336 www.sjo.ls - sjo@sjo.ls TiC fiamincjju með daginn, sjómenn d SruefeCCsnesií \ Guðmundur Rundlfssdn hf Sólvöllum 2, 350 Grundarfirði. RA6NAR & ÁSCEIR STYKKISHOLMI - CRUNDARFIRÐI -SNÆFELLSBÆ Scadum <rýómömtum d Stuv£elid*ie<ii Afgreiðsla í Snæfellsbæ: Snoppuvegi 4, Ólafsvík &eitt<zá<i4tfo c titefati Símar: 436 1619 & 892 1807 &jám<z*M<zdjzy4i#i&!

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.