Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 80
78
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Sjómannadagurínn
Hellissandi og Rifi 2005
Hátíðarhöldin hófust eftir há-
degi á laugardeginum í blíðskap-
arveðri. Byrjað var á því að keppa
í kappróðri, sem hefur verið í
hvíld síðustu 2 ár vegna dræmrar
þátttöku. Að þessu sinni var mjög
góð þátttaka og alls tóku þátt 8
keppnislið. Það var áhöfnin á
Magnúsi SH sem bar sigur úr být-
um eftir geysilega skemmtilega
keppni.
Því næst var haldið
upp í smábátakrik-
ann þar sem var smá
tímaþraut. I hana
þurfti 4 menn í lið
og voru meðal annars
dregnir belgir, staflað
körum, stutt hlaup
og endað á því að
hver maður átti að
kasta netahring frá
flotbryggju út í kar
sem var í höfninni.
Gefnar voru +10 sek
í refsingu fyrir hvern
hring sem ekki fór í
karið. Það voru sam-
einaðir snurvoðarkarlar sem urðu
fljótastir og munaði ekki nema
einum netahring á 1. og 2. sæti,
og voru það netamennirnir sjálfir
á Saxhamri, sem klikkuðu á ein-
um hring og þurftu því að láta í
minni pokann að þessu sinni, eftir
afar skemmtilega keppni.
Að lokinni tímaþraut var farið í
hinn árlega koddaslag, sem er í
miklu uppáhaldi hjá yngri kyn-
slóðinni og geysileg bárátta var
um titilinn koddakóngur og
koddadrottning.
Einnig var keppt í lyftarakeppni
sem er ný grein og er ekki annað
að sjá en að hún sé komin til að
vera. Þátt tóku keppendur frá KG
fiskverkun, Sjávariðjunni, Fisk-
markaði Islands og Hraðfrystihúsi
Hellissands, og var það Bjarni
Hauksson frá Hraðfrystihúsi Hell-
issands sem vann nauman sigur á
Andra Steini Benediktssyni, sem
keppti fyrir Fiskmarkað Islands.
Síðan var farið í skemmtisigl-
ingu með Báru SH, Esjari SH og
björgunarskipinu Björgu. Að lok-
inni skentmtisiglingu var hljóm-
sveitin Bít með bryggjuball.
Sunnudagurinn hófst svo með
sjómannamessu í Ingjaldshóls-
kirkju fyrir hádegi þar sem blóm-
sveigur var lagður að minnisvarða
um sjómenn sem hvíla í votri
gröf.
Hátíðarhöldin voru svo með
venjubundnu sniði í sjómanna-
garðinum kl. 13:30. Hátíðarræð-
una flutti Konný Breiðfjörð Leifs-
dóttir trillusjómaður frá Arnar-
stapa. Heiðraður var aldraður sjó-
maður og var það Kristinn Jón
Friðþjófsson sem sá um að heiðra
Kristján Þorkelsson og konu hans
Sigríði Mat'kúsdóttir. Þá voru
veitt verðlaun fyrir hinar ýmsu
keppnir sem fram
fóru á laugardeginum.
Að því loknu kom
Bjarni töframaður og
var hann með töfra-
brögð og sprell fýrir
yngri kynslóðina, og
þeir eldri skemmtu sér
ekkert síður yfir. Að
sjálfsögðu var svo
reiptog og tunnu-
hlaup fyrir krakkana.
Að hátíðarhöldum
loknum í Sjómanna-
garðinum var haldið í
hið árleglega kaffi-
hlaðborð SVD Helgu
Bárðardóttur í
Röstinni.
Hátíðarhöldunum lauk svo um
kvöldið með sjómannahófi í
Rösdnni þar sem voru bornar
fram kræsingar frá Múlakaffi og
Bjarni töframaður sá um veislu-
stjórn og skemmtiatriði, og
hljómsveitin BufF sá um að halda
uppi fjöri fram eftir nóttu.
Stefán Jóbann Svansson
Bjarni Hauksson sem vann lyftarakeppnina ásamt Sjómannadagsráðsmönnum.
Sendum sjómönnum oq (jölskyldum þeirra
haminqjuóskir á sjómannadaginn.
* HOTEl.
OlafsOtk
9íóteí Óíafsvf
Otafsbraut 20, Snœfettsbœ
* HOTEE
OlafsVík