Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Side 6
SJÓMANNADAGURINN f
ÓLAFSVfK
Ekki eru til áreiðanlegar
heimildir um hvenær fyrst
hefur verið haldinn Sjó-
mannadagurinn í Ólafsvfk. Þó
er vitað um hátíðahöld 1942
i en eftir þann tíma munu hátíða-
höld hafa legið niðri sum árin
til 1951, en þá er hér góð
skemmtun, bæði úti og inni.
1952 er fyrst starfandi sjó-
mannadagsráð og er það
skipað frá Útvegsmanna-
félagi Ólafsvíkur og V.f. Jök-
li og í því voru þessir menn,
frá útvegsmönnum: Guðni
Sumarliðason, Markús Ein-
arsson og Kristmundur Hall-
dórsson, frá V.f. Jökli voru:
Haraldur Guðmundsson,
Bergþór Steinþórsson og
Sveinbjörn Þórðarson. For
maður þessarar fyrstu nefnd-
ar var Guðni Sumarliðason.
Síðan hefur þaðveriðkjörið
með svipuðum hætti.
Frá 1952-1966 hafa verið
tveir formenn sjómannadags-
ráðs: 1952-1956 Guðni Sum-
arliðason, 1957-1962 Kristján
Jensson, fyrv. form. V.f. Jök-
uls og 1963-1966 Guðni Sum-
arliðason.
Á árunum frá 1956 ti! þessa
dags hefur verið almenn þátt-
taka allra þorpsbúa í hátíða-
höldum dagsins. Frá 1951-
1960 hafa hátíðahöld hér haf-
ist með því að sjómenn og
aðrir þorpsbúar söfnuðust
saman við Félagsheimilið og
gengu síðan undir fánum til
kirkju og hlýddu þar á messu.
En frá 1961 hefur verið safn-
ast saman við sjómanna-
garðshliðið og 15 mín fyrir
messutíma leggur sjómanna-
dagsráð blómsveig að fót-
stalli sjómannastyttunnar og
síðan ergengiðá sama hátt til
kirkju.
Fyrstu árin var aðalinni-
hald dagsins útikappbeitn-
ing og reiptog á milli
skipshafna, en nú seinni árin
hefur það verið kappróður og
stakkasund og fl. og fer það
yfirleitt fram við höfnina. Síð-
an 1961 hafa hátíðahöldin
verið sett um kl. 16.00 við
Sjómannastyttuna og þarflutt
ræða dagsins og fl. og aldrað-
ir sjómenn heiðraðir nú s.l.
tvo sjómannadaga.
1965 þessir menn: Sveinn
Einarsson, þá vistmaður á
Hrafnistu, Ari B. Einarsson,
Sæmundarhlíð Ólafsvík,
Stefán Kristjánsson, Uppsöl-
um Ólafsvík og Kristján S.
Jónsson, Sandholti 9 Ólafs-
vík.
1966 þessir menn: Magnús
Jónsson, Gíslabæ Ólafsvík,
Jóhann Ágústsson, kenndur
við Fagurhó! Ólafsvík og Jó-
hann Lúter Guðmundsson,
Grundarbraut 24 Ólafsvík.
Eitt fyrsta áhugamál sjó-
mannadagsráðs var að safna
fé til kaupa á kappróðrabátum
og var ráðist í að láta smíða
báta á Akureyri 1957.
Svavar Þorsteinsson, báta-
smiður þar, smíðaði bátana og
útbjó að öllu leiti og kostuðu
þeir þá fullbúnir kr. 54.000.00.
Guðnl Sumarliðason.
Bátarnir voru komnir hér fyrir
sjómannadag 1957 og voru
skírðir og hlutu nöfnin ”Bárð-
ur Snæfellsás” og Björn
Breiðvíkingakappi”. Tvær
ungar stúlkur, búnar íslensk-
um þjóðbúningum, skírðu bát-
ana. Þærvoru EsterGunnars-
dóttir og Kristín Lárusdóttir.
Til bátakaupanna var
safnað af Árna Vigfússyni kr.
11.000.00 og kr. 18.000.00
voru ágóði af hátíðarhöldum
dagsins frá 1951-1956, og
fengin var víxill hjá Spari-
sjóði Ólafsvíkur að upphæð
kr. 25.000.00 sem greiddur
var síðan á nokkrum árum. 27.
okt. 1957 voru gerð kaup á
húseigninni "Útgarðar” í
Ólafsvík, eign Eliníusar Jóns-
sonar, ásamt tilheyrandi lóð
sem er um 3000 ferm.Kaup
þessi voru gerð vegna sérstak-
6