Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Síða 9

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Síða 9
 Fróði 36 lesta bátur keyptur vorið 1951. línan úr hampi og var bæöi þung og léleg miðað við það sem nú er. Árið 1943 kaupir Víglundur ásamt Lárusi heit- num Sveinssyni 18 tonna bát sem hét Framtíðin. Það sama ár var Snæfellið látið í heil- mikla viðgerð, hækkaðar lunningar og fleira. Þegar Snæfell kemur úr slipp, tekur Lárus við Framtíðinni, og er með hana þar til hún ferst með svo hörmulegum hætti 27. september 1947 hér á höfninni í Ólafsvík. Árið 1947 selur Víglundur Snæfellið tii Keflavíkur. Sama ár kaupir hann mb. Björn Jörundsson, 28 lesta bát. í febrúar 1951 er Víglundi ásamt fleiri útgerðarmönnum boðið til Lofoten í Noregi af Fiskifélagi íslands. Fær hann þá Guðlaug Guðmundsson til þess að róa bátnum fyrirsig á meðan. Þegar Víglundur er komin suður þá skeður það að Björn Jörundsson sekkur út af öndverðarnesi, mann- björg varð. Allri áhöfninni var bjargað um borð í mb. Egil en skipstjóri á honum var Guð- mundur heitin Jensson. Kokkur á Birni var Vilhjálmur heitin Kristjánsson. Gat hann ekki yfirgefið hið sökkvandi skip fyrr en hann var búin að ná í forláta steikarapönnu sem hann notaði við matseld þar um borð. Hann vissi ekki hvenær hann fengi svona góða pönnu aftur. Við þessi tíðindi hættir Víglundur við Noregsferðina. Fær hann Elinberg Sveinsson sem áður var vélstjóri á Birni Jörundssyni til þess að koma suður og sækja Snæfellið. Þá hafði illa gengið með greiðslur og skipinu illa við- haldið. Þeir komu skipinu í lag og fóru með það vestur og hófu þar róðra. Snæfellið var mörg ár í Ólafsvík eftir þetta og var svo seinna selt Guð- laugi Guðmundssyni. Vorið 1951 kaupir Víglund- ur mb. Fróða 36 iesta bát. Er hann formaður á honum fram á sumar 1953 en þá hættir hann alveg til sjós. Árið 1947 reisa þeir Víglundur og Lárus heitinn fiskverkunarhúsið Hróa og eru þar með aðstöðu til beitn- ingarog húsnæði fyrirveiðar- færi. Hlutafélagið Hrói hf. er síðan formlega stofnað 10. febrúar 1951. Eigendur voru þeir Víglundur, Guðni og Sumarliði Sumarliðason, yngri, Soffanías Guðmunds- son og Lúðvík Kristjánsson. Áttu þeir allir 25% á móti Víg- lundi. Byrjað var að verka fisk hjá Hróa hf. í janúar 1951. Fyrsti verkstjóri þar var Ár- sæll Jónsson og þeir menn sem þar. byrjuðu voru Sigurð- ur Brandsson, Ágúst Lárus- son, Skarphéðinn Guðbrands- son, Júlíus heitinn Sveinsson, Snæfell keypt 1937. 9

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.