Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Page 11

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Page 11
Portúgölum finnst á þá hallað. Gerðu Þeir kröfu um að fslendingar keyptu meira af vörum en áður. Það var úr að ákveðið var af íslenskum stjórnvöldum að smíðaðir yrðu tveirskuttogarar, um 500 lestir að stærð hvor. Mjög mikil ásókn var í þessi bæði skip en fyrir mikinn dugnað Víglundar tókst honum að koma því til leiðar að annað skipið kom hingað til Ólafsvíkur . Hlutafélagið Útver hf. var stofnað í þeim tilgangi að kaupa þetta skip og um vorið 1980 kemur Már SH. 127 hingað til Ólafsvíkur og er hið glæsilegasta í alla staði. Stærstu eigendur í Útver hf. eru Ólafsvíkurbær, Hrói hf. Bakki hf. Hraðfrysti- hús Ólafsvíkur hf. og þrír aðilar á Hellissandi. Víg- lundur var fyrsti stjórnarfor- maður þess. Síðasta skip til þessa sem Víglundur lét smíða er Jökull SH. 215 og kom hann frá Póllandi í júlí 1984, 222 lestir að stærð. Hann varseldurtil Hraðfrysti- húss Ólafsvíkur í febrúar 1986. Hrói hf. sem eins og áður sagði, var stofnað árið 1951, hefur um árabil verið eitt af stærstu saltfiskfyrirtækjum landsins. Ársframleiðsla hefur verið á bilinu 900- 1500 tonn af saltfiski. Víglundursat í stjórn SÍF og einnig varhann í stjórn LÍÚ um árabil. Félagsmálastörfum hefur hann sinnt vel og lengi. Hann var einn af stofnendum Kaupfélagsins Dagsbrúnar. Átti lengi sæti í hreppsnefnd Ólafsvíkur og ennþá lengur í hafnarnefnd og var í mörgum fleiri félögum og stjórnum. í dag eru rúmlega 52 ár liðin síðan útgerðarsaga Víglundar hófst og er hún ennþá í fullum gangi. Ekki er djúpt í árina tekið þegar sagt er að störf hans hafi skilað miklum árangri bæði fyrir Ólafsvík og þjóðina alla. Formennskuár Víglundar gengu vel í alla staði Hann var alltaf með úrvals mannskap, enda var aflinn eftir því. Flestar vertíðir var hann afla- hæstur enda var hart sótt, farið í kannski 100 róðra yfir vertíðina Víglundur kvæntist Kristjönu Tómasdóttur frá Bakkabúð á Brimisvöllum þann 14. mars 1942. Þau eignuðust þrjú börn sem öll starfa hjá Hróa hf. sem nú er sameign þeirra og Víglundar. Kristjana lést í júní 1986. Ég hef hér að framan stiklað á stóru um starfsferil Víglundar Jónssonar. Margt er það sem ekki kemur fram í þessari grein, sem ætti héraðvera,en mjög viðamikið, er að skrifa grein um mann sem tengist svo mikið uppbyggingu heils byggðarlags sem Ólafsvíkur og ætla að taka allt með. Það verður vonandi gert síðar. Pétur S. Jóhannsson ! Framtfðln, bátur Vlglundar og Lárusar Svalnsaonar. 11

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.