Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Qupperneq 12

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Qupperneq 12
Hugleiðing á sjómannadegi Sjómannasöngur Og út á íslands mið meö sólu sigldum við, hið salti drifna lið. Og farið jók sinn skrið, -við stóöum hlið við hlið og heyrðum þungan nið. Og þegar kom á Svið, við gáfum engan grið, -sá guli haföi ei lengur nokkurn frið. Er stafn i bylgju hjó varð sumum um og ó, þvi enn var hert á kló. Og vestangarrinn sló á stögin strengd og mjó - og stráklingur spjó. En þegar hann svo dró hinn fagra fisk úr sjó, hann fann, hve gaman varaðlifa- og hló. Oft vöknaði okkar laf, er skutinn keyrði í kaf hið kalda Ránar traf. Eri æðið fór þó af - og saklaus aldan svaf við sælan geislastaf. Og dátt var okkar skraf um gullið, sem hún gaf. - Ó, góða skip! Ó, fagra Atlantshaf! I dag er okkar fri. - Við erum engin þý: Við elskum brimsins gný, en einnig hopp og hí, og út um borg og bý sem bræöur syngjum þvi, uns gleðin björt og hlý skín hverju auga í. - Og einhvern daginn siglum við á ný. Jóhannes úr Kötlum. Já, i dag er sjómannadagurinn, sem er eins og nafnið bendir til, dagur sjómanna. Þá eiga þeirallir fri. Koma i land og gera sér dagamun. Allirsagoi ég. Nei þvi miður er það ekki svo. Allt og margir sjómenn fá alls ekki fri á sjómannadaginn. Heyrt hefur maður um útgerðir sem stila upp á það að vera búnar að koma i höfn nógu snemma, svo ekki þurfi að liggja i landi á jólum, páskum og jafnvel sjálfan sjó- mannadaginn. Oft hef ég verið hissa á sjómannadegi, yfir þvi hversu margir sjómenn eru á sjó, og spurt sjálfa mig og reyndar sjómenn líka, hvers vegna ekkisé gert ráð fyrir þessum fridegi sjó- manna í vinnuplaninu, og þeim öllum gert kleift að sigla i land þennan dag. Eg hef syo sem heyrt skýringarnar, það yrði svo hræðilega dýrt. Já það er svo margt í félagslega þættinum sem þykir allt of dýrt í þessu blessaða þjóðfélagi okkar, þarsem alltmiðast út frá beinhörðum peningum. Það er t.d. dýrt að eiga börn, þau eru ekki inn i planinu. Þjóðfélagið hefur ekki efni á því að konur séu heima, og helaur ekki á því að reka dagheimili sem skyldi. Sama sagan er um dvalarheimili aldraðra. Helst vilja fyrirtæki ekki vinnukraft sem verður eitihvað frá vegna barneigna eða umónn- unar barna og gamalla. Ég ve't um dæmi þar sem mjög fær og vel menntuð (ung) kona varð að fullvissa vinnuveitanda um að hún myndi ekki eignast barn i náinni framtíð, áður en hún fékk Ester Gunnarsdóttir. starfið. Það sem ég vildi segja,er að mér finnst vanta nokkuð mikið á að atvinnufyrirtæki almennt i landinu, með undantekningum þó, aðlagi sig manninum, heldur er það alltaf hann sem verður að aðlaga sig fyrirtækinu, hvað sem það kostar. Allir þekkja afleiðingarnar. Fólk hefur engan tíma, hvorki fyrir sjálfan sig, heimili sín, né ættingja og vini. Er ekki kominn timi til að stokka upp spilin, staldra við til að endurmeta hlutina, okkur sjálf. Taka þá tillit til þeirra sjálfsögðu mannrétt- inda að fá að njóta lifsins, börn,alaraðir og ailir hinir. En ekki meira um þetta. Ég ætlaði að tala um sjómannadaginn. Svo langt sem ég man hef ég haldið hann hátið- legan, oftast hér i Ólafsvik og alltaf þótt jafn gaman að sjá þessa blessaða “dáðadrengi“ bregða á leik, i pokahlaupi.beitn- ingu, reiptogi,knattspyrnu,boö- hlaupi o.ft. o.fl. Stundum hefur 12

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.