Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Page 22

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Page 22
alltaf sama manninn vera við baujuna, í hverjum róðri, það var aldrei skipt. Ég lenti í því, svo ég fékk að sofa bæði stím og tvo tíma meðan verið var að draga. Þetta var mikið betra. Eitt sinn rérum við einskipa. Spáin var slæm en kallinn sullaði sér í þetta. Við rérum norður eftir, undir Jökul. Eitt sinn pegar ég er að keyra að baujunni sé ég blá- leitt Ijós rétt við baujuna. Ég var síðast að skilja í hvaö Ijós þetta gæti verið. Jæja, ég fer niöur í mótorhús að hella olíu á apparatið til aö smyrja vélina. Þegar ég er niðri, byrjar báturinn að velta þessi lifandi ósköp. Ég hélt að komið væri hávaðarok, það hafði verið blankalogn þegar ég fór ofan. Þegar ég kem upp í stýrishús og lít út um annan gluggann, þá sé ég að það er blankalogn en báturinn veltur þessi ósköp. Þegar ég lít út um hinn gluggann sé ég þetta ferlíki við síðuna. Alveg klossfast viðsíöuna. Þetta var kafbátur. Ég hennti mér á gólfið í stýrishúsinu og læt mig velta úrdyrunum niðurá dekkið og skríö eftir dekkinu fram í lúkar. Ég var svo hræddur Þegar ég kem fram í lúkar til kallsins, segi ég honum að það sé kafbátur við síðuna. Kallinn stekkur fram úr og upp stigann. Þegar hann kemur upp í gatið, hoppar hann niður sjálfur. Svo segir hann mér að fara aftur í og setja fulla ferð í land. í því vaknar mótoristinn Bjarni hét hann frá Selhól og spyr hvort viö séum vitlausir aö ætla að keyra í land, það sé ekki til annars en að láta skjóta okkur niður. Það yrði bara til þess, að þeir á kafbátnum héldu að við værum að fara segja til þeirra. Þá myndu þeir frekar skjóta okkur en láta okkur sleppa í land. Svo það var hætt við að fara í land. Síðan stóðum við ég og kallinn saman baujuvaktina. Eftir skamma stund lét hann sig síðan hlunkast niður og við sáum ekki meira til hans. Ég var drulluhræddur, ég held að ég hafi ekki verið hræddur út á sjó fyrr en þá.” Þorsteinn Hansson er en vinnandi. Hann vinnur hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur og lætur ekki deigan síga. í vetur vann hann á meðan unnið var og gaf mörgum yngri mann- inum ekkert eftir. Hann seg- ist vera að hugleiða að fara draga eitthvað úr vinnunni. En þegar hann var spurður hvort það hafi ekki staðið til áður, þá jánkaði hann því. Segist vera að vinna fyrir bíl- skúrnum sem hann reisti í fyrra. Hann segist vera góður til heilsunnar. "Drottinn gaf mér dýrlega heilsu. Það er Hann sem held- ur lífinu í mér. Ég veit það.” Þorsteinn hætti til sjós á árinu 1973. Þá var hann með Gunna Gunn á Skálafellinu. Þó Þorsteinn hafi hætttil sjós 1973, þá eru ekki nema tvö ár frá því að hann hætti að beita. Hann er orðin langur og afkastamikill vinnudagurinn sem Þorsteinn hefurskilaðað sér. Eftir alla þá erfiðisvinnu sem hann hefur leyst svo vel að hendi, erekki nema von að hann sé æðri máttarvöldum þakklátur fyrir hve góða heilsu hann hefur. Við óskum öll Þorsteini að hann megi hafa ástæðu sem lengst til að vera þakklátur fyrir heilsu sína og óskum honum alls góðs. Sigurjón Egilsson. COSTA DEL SOL, TYRKLAINID, TÚNIS, GRIKKLAND, KÍNA FLUG, BÍLL OG SUMARHÚS, RÚTUFERÐIR. ÓLAFSVÍK SJöfn og Guðrún Aðalstelnsdætur Brautarholtl 7 síml 93-6155 - 6444 355 Ófafsvík FERÐASKRIFSTOFAN 22

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.