Skógræktarritið - 15.05.2003, Blaðsíða 61
Flókalundur
Hér setti Skógræktarfélag V-Barða-
strandarsýslu upp litla girðingu ofar-
lega í brekkunni ofan við Hótel Flóka-
lund. Hún er ekki á skrá yfir skógar-
reiti á Vestfjörðum í yfirliti Hákonar
1966, né heldur er minnst á hana í
skýrslum Skógræktarfélags V-Barða-
strandarsýslu, meðan þærvoru birtar
í Ársriti Skógrœktarfélags íslands.
Ég kom þar fyrst 23. september
1980, og t minnispunktum mínum úr
þeirri heimsókn stendur:
„Jóhann Skaptason sýslumaður
|sem var í stjórn skógræktarfélagsins|
plantaði þarna á sinni tíð sitkagreni á
gömlum húsarústum, ágætt. Um 5-6
m á hæð. Lakara utan þeirra, enda þurrt lynglendi. Samt ekki
slæmt. lafnvel á mel þarna neðar hefir það spjarað sig furðan-
lega. Skógarfura þarna ólúsug og frískleg".
Annars er þetta ákaflega rýrt land, sums staðar blásinn mel-
ur, en jarðvegur þó efst í reitnum.
Sitkagreni er aðaltrjátegundin og hefir vaxið undravel við
þessar aðstæður. Aðallega þyrpingin á húsarústunum. Þessi
tré hafa lent næstum á kaf í snjó, eins og gerðist 1994-1995 (10.
mynd).
í „Landsúttekt" er yfirhæð sitkagrenis rúmlega 9 m við 45 ára
aldur. Nú var hæsta tré rúmir 10 m. Allt að 60 cm ársprotar
sáust.
Skógarfura. Nokkur tré standa strjált á melnum. Til að sjá
eru þau eins og klipptar kúlur, og eru þannig heilmikið skraut.
Þau eru lúsarlaus, en nálar ofurstuttar, sem vissulega er merki
þess, að þeim líði ekki vel. Furusúlungur (Suillus luteus) var
þarna, sem myndar svepprót með tveggja nála furutegundum.
Góðs viti.
9. mynd ertekin 24. september 1980 og
sýnir góð þrif á sitkagrenitrjánum.
10. mynd tekin af ókunnum ljósmynd-
ara veturinn 1994-1995, þegarsitka-
grenilundurinn var nærri kaffærður í
snjó. Aðeins glittir á þakið á hótelinu
ofan við miðja mynd.
11. mynd var tekin 20. ágúst 2002. Má
þar sjá, hvernig snjórinn hefir rifið
greinar af fremstu trjánum. Sæmundur
stendur lengst til vinstri.
12. mynd, tekin 24. sept. 1980, sýnir 13. mynd, tekin 20. ágúst 2002, sýnir
skógarfururnar á melnum. nokkrar skógarfuranna, sem hafa lifað
af. En einhverjar hafa týnt tölunni á
þessum 22 árum.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003
59