Skógræktarritið - 15.05.2003, Síða 93

Skógræktarritið - 15.05.2003, Síða 93
5. mynd. (a og b) Alaskaösp og sitkagreni á Eystri Skógum sem misstu allt lauf og barrsnemma hausts 2001. Ársprotar grenisins hafa náð að vaxa út með nýju barri 2002. (c| Greni í Hornafirði sem missti hluta barrsins haustið 2000, en mun jafna sig. Myndir: BDS, 27.07.2002 og LH, 15.09.2001. fundust aðeins örfáar ertu- yglulirfur. Lirfurnar höfðu ein- ungis lagst á lúpínuna og engar skemmdir sáust á birki, ösp eða greni, þrátt fyrir talsverða leit. Svo virðist því sem ertuyglan for- gangsraði mjög ákveðið hvað hún étur. Hún kýs tvíkímblöð- unga umfram einkímblöðunga og hún leggst ekki að neinu ráði á trjágróðurinn fyrr en það mesta af lúpínunni er uppétið, og það gerist ekki nema í árum sem þétt- leiki stofnsins er mikill. Við heimsóknir í Hornafjörðinn 2001 og 2002 kom í ljós að allar trjátegundir hafa náð að jafna sig þrátt fyrir umtalsvert og jafnvel algjört barrfall af völdum beitar ertuyglunnar haustið 2000 (mynd 5c), og staðfestir það mælingarn- ar frá Eystri Skógum. Getur ertuyglan orðið plága í skógrækt líkt og jarðyglan á Austurlandi? Skaðar á trjáplöntum vegna ertuyglunnar hafa flestir orðið innan um eða í næsta nágrenni við alaskalúpínu. Lúpína hefur verið mikið notuð til uppgræðslu síðustu áratugi, og hefur hún víða myndað stórar samfelldar breiður8. Það er fyrst á seinni árum sem menn hafa byrjað að nýta lúpínubreiðurnar til skóg- ræktar, oft með ágætum árangri.9 Búast má við fleiri áföllum á ung- um gróðursetningum í eða í námunda við lúpínubreiður á sunnanverðu landinu. í árum sem þéttleiki ertuyglu er mikill getur hún slegið sér niður í öðr- um gróðurlendum, eins og þekkt er til dæmis úr þjóðgarðinum í Skaftafelli og Hornafirði. Einnig má búast við að með aukinni út- breiðslu alaskalúpínu verði skað- ar af þessu tagi algengari. Þó er ólíklegt að ertuyglan verði eins skeinuhætt skógrækt og jarðygl- an, þar sem lirfustig hennar leggst á trén seinna á vaxtartím- anum. Þetta er þó með þeim fyr- irvara að ertuyglufaraldrar standi ekki lengur en eitt ár á hverjum stað. Þakkir Borgþór Magnússyni, Erling Ólafssyni og Hlyni Óskarssyni er þökkuð ómetanleg liðveisla við skrif þessarar greinar. English summary Broom motfi causes problems on afforestation sites in S and SE lceland In recent years broom moth (Melancfira pisi) has been found to cause damage on number of afforestation sites in south and southeast Iceland. The moth is native to Iceland, but it has become more prevalent lately following expansion of the introduced Nootka lupin (Lupinus nootkatensis), which now forms the moth’s most important habitat. The population dynamics of the moth are characterised by infrequent and localised tops. The larvae are hatched in late summer and are most active in early autumn. When larvae population density booms, it can invade afforestation areas and has been found to defoliate saplings of both coniferous and deciduous origin. However, because of how late in the season it appears, deciduous tree saplings (Betula pubescens and Populus trichocarpa) were little affected the following year, even if they were completely defoliated. Even coniferous saplings (Pinus contorta, Picea sitchensis and P. engelmannii) that lost all their needles were found to recover. SKÓGRÆKTARRITiÐ 2003 91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.