Skógræktarritið - 15.05.2003, Side 102

Skógræktarritið - 15.05.2003, Side 102
MINNING Ólafía G. E. Jónsdóttir F. 7. júní 1904. • D. 15. september 2002. 15. september s.l. andaðist, nær tíræð að aldri, frú Ólafía Gróa Eyþóra Jónsdóttir, einn af helstu velgjörðar- mönnum Skógræktarfélags íslands. Ólafía og eiginmaður hennar, Guðmundur Þorsteins- son gullsmiður, sem andaðist 11. júní 1989, arfleiddu Skógræktarfélag íslands fyrir allmörgum árum að eigum sínum. Frá gefendum fylgdu ekki önnur skilyrði en þau að féð skyldi renna til eflingar starfs á vegum félagsins. Stjórn Skógræktarfélags fslands samþykkti að með gjöfinni skyldi stofnaður sjóður sem bæri nafn þeirra hjóna. í reglum sjóðsins er kveðið á um að hann skuli vera í vörslu Skógræktarfélags íslands, að hann skuli ávaxta á tryggilegan hátt og að 70 % raunvaxta skuli varið til starfs á vegum félagsins í þágu skógræktar í landinu. Gumundur Þorsteinsson gullsmiður fæddist árið 1897 í Blönduhlíð f Hörðudal í Dalasýslu. Hann fluttist til Reykjavíkur um tvítugt og lærði gullsmíði hjá Jóni Sig- mundssyni gullsmiði. Guðmundur setti á fót eigið gull- smíðaverkstæði og verslun við Bankastræti 12 og rak það fyrirtæki um áratugaskeið. Hann gat sér gott orð fyrir vandaða gullsmfði og naut vinsælda og trausts í faginu. Guðmundur var einn af stofnfélögum Félags íslenskra gullsmiða og var gerður að heiðursfélaga á 50 ára af- mæli félagsins árið 1974. Guðmundur Þorsteinsson lést árið 1989 en fyrir andlát hans höfðu þau hjónin tekið sameiginlega ákvörðun um gjöfina til Skógræktarfélags íslands. Ólafía G. E. Jónsdóttir fæddist að Votmúlaklausturkoti í Sandvíkurhreppi. Foreldrar hennar voru Jón Eiríksson bóndi í Arnarstaðakoti í Hraungerðishreppi og Margrét Þórarinsdóttir Wilson húsmóðir. Ólafía varyngst f hópi sex systkina og eru þau öll látin. Ólafía ólst upp í Flóan- um til 8 ára aldurs en fluttist þá til Reykjavíkur þar sem hún bjó alla tíð síðan. Hún fékk hefðbundna barnaskóla- menntun eins og þá tíðkaðist. Hún réðst til starfa hjá fyrirtæki Guðmundar og starfaði að gullsmíði með hon- um. Þau Ólafía og Guðmundur gengu f hjónaband árið 1932 ogbjuggu lengstafaðVffilsgötu 17 í Reykjavfk. Ólafía vann að gullsmíðinni til ársins 1946 en annaðist rekstur fyrirtækisins að mestu eftir það, eða þar til þau hættu honum árið 1978. Ólafía og Guðmundur, eða Lóa og Mundi, eins og þau voru jafnan kölluð, voru samhent hjón. Þau höfðu yndi af tónlist, voru í kórum og spiluðu á hljóðfæri. Þau voru hestafólk og áttu marga góða hesta sem þau hýstu á jörð sem þau áttu á Kjalarnesi. Þau hjón voru lengi fé- lagar í Hestamannafélaginu Fáki og voru mjög vinsæl í þeim hópi, enda fylgdi þeim jafnan glaðværð og jákvætt viðhorf. Þá var Ólafía góður bridgespilari. Ólafía var mjög söngelsk, hafði mikla og fagra rödd og var oft fengin til liðs þegar halda átti tónleika á árum áður. M.a. söng hún með Pétri Jónssyni, þeim fræga óp- erusöngvara. Hún Iærði söng hjá þekktum tónlistar- mönnum og söng m.a. undir stjórn Róberts Abrahams Ottóssonar og Jóhanns Tryggvasonar. Þá var Ólafía líka þekkt í hópi bridgemanna og þótti góður spilamaður. Um margra ára skeið sótti Ólafía ýmsar samkomur á vegum Skógræktarfélags íslands, þar á meðal aðalfundi þess. Frá þessum samverustundum eiga margir félagar í skógræktarhreyfingunni góðar minningar um Ólafíu. Hún átti afar auðvelt með að kynnast fólki og hafði ánægju af því að koma á mannamót félagsins. Þegar hún hóf að sækja samkomur félagsins var hún lífsglöð þrátt fyrir háan aldur og naut samverunnar við skógræktarfólk í rík- um mæli. Hún hafði yndi af söng og stutt var í græsku- laust gaman, þar sem hún gerði óspart grfn að sjálfri sér og kom jafnan auga á hinar bjartari hliðar tilverunnar. Hún var hrókur alls fagnaðar. Ólafía var alla tíð heilsuhraust og ágætlega ern, allt fram á síðustu ár. Hún hélt heimili á Vífilsgötu 17 þar til snemma á sfðasta ári þegar hún flutti á öldrunarheimilið Sóltún. Þar naut hún góðrar umönnunar og leið vel síð- ustu ævidagana. Gjöf þeirra Guðmundar og Ólafíu til Skógræktarfélags íslands og velvildin í garð félagsins, sem gjöfin endur- speglar, mun halda minningu þeirra hjóna á lofti meðal skógræktarfólks. Með gjöfinni var styrkari stoðum skotið undir starf Skógræktarfélags íslands og gjöfin mun veita auknum krafti í starfsemi félagsins, f þágu skógræktar á íslandi, um ókomna tíð. Blessuð sé minning Guðmundar Þorsteinssonar og Ólafíu G. E. Jónsdóttur. Magnús Jóhannesson 100 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.