Skógræktarritið - 15.05.2005, Síða 14
Vinaslwgur hefur verið Migiísi hugleikinn. He'r er hún að srjúka birkiplöntu að lokinni
gróðursetningu með Mary Robertson forseta írlands. í fíarska sést Kristinn Skœringsson
sem um árabil var umsjónarmaðurMinaskógar.
Upp frá þessu var ekki hlegið
að þessari táknrænu athöfn. Fólk
var búið að átta sig á því að í
henni var fólgin djúp og falleg
hugsun. Athöfnin er tákn um
ræktun lands, þjóðar og tungu.
Til þess að rækta þjóð þarf að
virkja ungu kynslóðina og börnin.
Börnin eru vaxtarbroddur þjóðar-
innar og það er mikil áþyrgð sem
hvílir á foreldrum í dag, að koma
þeirri hugsun að í uppeldinu að
það þurfi að leggja rækt við land
og að rækta tunguna.
Um táknrænu athöfnina, þá
gerði ég það f bókstaflegri merk-
ingu alveg upp á eigin spýtur,
trjáspýtur, sem einstaklingur og
þjóðkjörinn embættismaður. Ég
hef síðar farið marga pílagríms-
förina að þessum trjám. Þau eru
þarna öil og greinilegt að sett
hafa verið niður tré f staðinn ef
þurft hefur. Svo er líka það
ánægjulega að margir eru enn að
koma til mín í dag og segja: Ég
gleymi því aldrei þegar ég
gróðursetti með þér trén.
Til liðs við Skógræktarfélag
íslands
Menn voru farnir að átta sig á því
að ég var orðin sterkur talsmaður
skógræktar og átti vináttu margra
í skógræktarhreyfingunni. Mér
var boðið að koma á aðalfund
Skógræktarfélags íslands á
Kirkjubæjarklaustri árið 1984. Sá
fundur var alveg ógleymanlegur
en þar var ég gerð að heiðurs-
félaga. Það er ein sú mesta sæmd
sem mér hefur hlotnast á ævinni.
Það er ekkert í lífinu sem gefur
manni eins mikið og þegar
maður finnur að maður hefur lagt
sitt lóð á vogarskálarnar.
Síðar koma fleiri verkefni til
sögunnar, f samvinnu við skóg-
ræktarhreyfinguna, eins og t. d.
Vinaskógur á Þingvöllum. Fram-
kvæmdanefnd Landgræðsluskóga
valdi staðinn en hugmyndin var
að hægt væri að sýna erlendum
gestum hvað hægt væri að gera í
uppgræðslu og skógrækt á ís-
landi. Sérstaklega er ég þakklát
Huldu Valtýsdóttur, sem þá var
formaður Skógræktarfélags
íslands, Sigurði Blöndal skóg-
ræktarstjóra, Sveini Runólfssyni
landgræðslustjóra og Sveinbirni
Dagfinnssyni ráðuneytisstjóra
fyrir þeirra framsýni.
Hún varð nú reyndar fleyg
spurning Elísabetar Englands-
drottningar, þegar við vorum að
hefja fyrstu gróðursetninguna í
Vinaskógi árið 1990: "And where
is the forest?" Það tók dálítinn
tíma fyrir mig að útskýra það fyrir
henni. Lengi vel var líka gert grfn
að Vinaskógi en í dag er þetta að
verða fallegasti skógur. Þarna var
í upphafi nánast örfoka melur svo
12
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005