Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 27

Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 27
16 14 12 I 10 I » I 6 n Bækur/mann Leikhúsferðir Bíóferðir Skógarferðir 9. mynd: Arleg þátttaka íslendinga í nokkrum tegundum tómstundaiðju. nokkrar spurningar sem gáfu góðar vísbendingar varðandi þessi atriði. Spurt var: í hvaða tilgangi heim- sækir þú skóga? Þessi spurning var opin og öll svör skráð. Henni var aðeins beint til þeirra sem heimsótt höfðu skóg undanfarna I2mánuði. Svör voru margs- konar en til að einfalda úrvinnslu var þeim skipað í eftirfarandi 6 flokka: l) útivist almennt, 2) náttúruskoðun, 3) til heilsubótar (bæði líkamlegrar og andlegrar), 4) ná sér í skógarafurðir (t.d. sveppi, ber, skreytingarefni eða jólatré), 5) vegna vinnu og 6) annað (10. mynd). Munurinn á fyrstu þrem flokkunum er e.t.v. ekki mikill, einkum sá að svar- endur f flokkum 2) og 3) skýrðu nýtingu sína á skógum til úti- vistar nánar en þeir f flokki l) gerðu. Ekki var marktækur munur milli samfélagshópa varðandi þessi atriði. Vegna skorts á skógarnýtingar- hefðum hérlendis er áhugavert að bera svör íslendinga saman við sambærilega könnun í grannríki til að sjá hvort nýting almennings á skógum hafi þróast öðruvísi hér en þar. Saman- burður við Dani,12 þar sem hefðir í skógarnytjum eru talsvert eldri en hér, leiðir í ljós að áherslur eru engu að síður svipaðar. Danir tilgreina frekar að útivist þeirra tengist náttúruskoðun og meira er um að þeir nýti sér uppskeru skóganna. Sennilega eiga veiðar stærri þátt í Dan- mörku en á íslandi. Athygli vekur að hlutfallslega mun fleiri íslendingar eiga Ieið f skóga vegna vinnu sinnar en Danir. Gæti það skýrst af því að Danir eru 18 sinnum fleiri en íslend- ingar en danskir skógar eru aðeins þrefalt stærri að flatarmáli en þeir íslensku. Á fslandi er því mun meira skóglendi á mann en í Danmörku. Ástæða er til að gefa þeim hópi fólks gaum sem kvaðst ekki hafa heimsótt skóg á undanförnum 12 mánuðum. Fólk sem svaraði á þann veg var sfðan spurt af hverju það hafi ekki lagt leið sína í skóg. Aðeins 16% þeirra (þ.e. 16% af 22% = 4% allra svarenda) viðurkenndu að þeir hefðu ekki áhuga á að koma í skóglendi eða voru neikvæðir í garð skóga. Til samanburðar, samkvæmt breskri könnun, sögðu 32% þeirra sem ekki höfðu heimsótt skóg nýlega það vera vegna áhugaleysis.3 í fslensku könnuninni nefndu 27% tímaskort sem ástæðu fyrir að hafa ekki komið í skóg nýverið. Þau 57% sem eftir eru þá a.m.k. hlutlausir f garð skóga, þjást ekki sérstaklega af tímaskorti og eru þvf mögulegir skógargestir. Fróðlegt væri að skoða þennan hóp nánar til að komast að því hvort ekki sé hægt á einhvern hátt að laða hann inn í skóginn. Hvað er það við skóga sem gerir þá aðlaðandi fyrir gesti? Starfs- fólk í skógum fær oft að heyra að skógurinn mætti vera betur hirtur eða að það vanti hluti eins og merkingar, bekki eða leiktæki fyrir börn. En eru þetta viðhorf meiri- hluta fólks? Spurt var: Getur þú 10. mynd: Skipting mismunandi ástæðna fyrirað heimsækja skóga. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.