Skógræktarritið - 15.05.2005, Side 55

Skógræktarritið - 15.05.2005, Side 55
lögfestu hins", þ.e. hann skal halda búpeningnum eins fjarri granna sínum og unnt er. „Nú hafa fleiri menn lögfest, þá skal hann láta reka f miðjan haga um aptna. Hann skal hafa rekit fé sitt ór haga hins þá er sól er í austri miðju, þat er hann mátti finna. Þat heita hirðis rismál. Hann skal láta sitja at um dag...", þ.e. féð skal vaktað að deginum til að halda því f eins tryggri vörslu og unnt er, og þvf smalað til baka sem leita kann inn á land grannans. Um bótaskylduna segir að „þá bæti fyrir skaða ... þeim er gras á". Fyrstu aldir íslandsbyggðar var fé haft einkum til ullar, enda vaðmál verðmætasta verslunar- vara fslendinga. Fénu mun í upphafi einkum hafa verið beitt ofan skógarmarka, svo sem fram kemur í Egilssögu, þannig að minna hefur reynt á ágang en ella. Miklir garðar, sem finna má vfða um land, bera þess þó vitni hve mikið menn lögðu á sig til að verja land, enda „garður granna sættir". Öldum saman voru ær mjólkaðar og því fylgdi mikil varsla. Þá takmarkaðist lausagangan að mestu við það geldfé sem var að jafnaði rekið á fjall. Á vetrum var grannt fylgst með fénu. Lengst af virðist engum manni hafa dottið í hug að beita á land annarra (Sigurður Arnarson 2002). Fé fór að fjölga mikið á síðari hluta 19. aldar, meðan sauðasalan til Bretlands var ein af megintekju- lindum íslendinga. Þá virðast hin fornu ákvæði fara að gleymast, og virðing eigenda búfjár fyrir annarra manna landi að minnka. Það er þó ekki fyrr en fer að draga úr fráfærum í kringum heims- styrjöldina fyrri, en þó einkum eftir að fénu fór hvað mest að fjölga upp úr miðri síðustu öld að hinar fornu hefðir og lög um vörslu búfjár fóru að bregðast fyrir alvöru. Núgildandi lög um vörsiu búfjár Vart er ofsagt að dregið hafi úr þeirri skipan sem fyrri lög settu um að eigandi búfjár eða umráðamaður héldi því í vörslu. Vfðast hvar hefur búféð, í seinni tfð einkum sauðfé, mikið svigrúm til að ráða sjálft hvar það gengur, óháð umráðarétti eigenda bú- fjárins yfir því landi þar sem það gengur. Þessi skipan er reyndar í megindráttum staðfest í lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl., nr. 6 frá 1986 (sfðast breytt 1997), og lögum um búfjárhald o.fl. nr. 103 frá 2002 (sjá nánar Ketil Sigurjóns- son 1999). Graðpening er að vfsu skylt að hafa í vörslu, sem er vafalaust fyrst og fremst til verndar búfjár- rækt bænda og annarra búfjár- eigenda. Lengra nær hin al- menna vörsluskylda ekki, og í raun má segja að í löndum hinnar „vestrænu menningar" er sennilega einsdæmi að búfjár- lausum umráðahöfum lands sé gert jafn erfitt að verja sfn lönd ágangi og raun ber hér vitni. Rafgirðingar eru hentugar til vörslu búfjár. En ætti að þurfa girðingar á auðnum miðhálendisins? SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 53
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.