Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 56

Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 56
Landeigendum er gert skylt að hreinsa eigin heimalönd þó engin kind sé á þeirra vegum. Slík skipan má teljast eðlileg þar sem þúfé er á öllum bæjum, en er þungur baggi á þeim vaxandi fjölda sem á jarðir í allt öðru skyni en að halda sauðfé. Slík almenn skylda var eðlileg við aðstæður liðinna tíma í sveitum, þegar búfé var á hverju býli og sameiginlegt hagsmunamál allra að koma búfé til réttra eigenda. Sama má segja um fjallskila- samþykktir, en aðstæður hafa breyst mikið frá þeim tíma þegar þær voru settar. Fjallskilagjöld eru lögð á fé og jarðir til að standa straum af nýtingu afrétta til beitar. Vfða miðast gjald- stofninn að hluta, jafnvel veru- legu leyti, við verðmæti jarða, húsa sem lands. Slík útfærsla sætir vaxandi gagnrýni, og nauð- synlegt er að fá úr þvf skorið hvort hún er lögformlega rétt, m.a. gagnvart fjárlausum jarð- eigendum. f a.m.k. einu sveitar- félagi hefur nú verið horfið frá því að krefja gjaldið af öðrum en þeim sem nýta viðkomandi afrétt til beitar. Meginregla íslensks réttar er að ekki hvílir skylda á eiganda eða umráðamanni búfjár að halda fénaði sfnum í vörslu. Vilji búfjárlausir landeigendur verja sig ágangi þurfa þeir að ná sam- komulagi við eigendur aðliggj- andi jarða um uppsetningu girðinga, jafnvel þótt þeir séu einnig fjárlausir og ágangurinn stafi frá þúum sem fjær eru. Sem dæmi um það hve erfitt er að verja land samkvæmt gildandi réttarreglum má nefna að lög nr. 103/2002 um búfjárhald og fleira, 8. gr., heimila umráðamanni lands að ákveða og tilkynna til viðkomandi sveitarfélags „að tiltekið og afmarkað landsvæði sé friðað svæði og er þá um- gangur og beit búfjár þar þönn- uð". Sveitarstjórn skal augiýsa Dæmi um fíárheldar girðingar íeigu opinberra aSila í landnámi Ingólfs. Grænu Knurnar sýna nýjar beitargirðingar sem teknar voru í notkun vorið 2005, en tpcer gulu beitargirðingar sem fyrír voru. Rauðu línurnar sýna hluta af þeim tugum kílómetra af girðingum íeigu opinberra aðila sem taka ma upp þegar búið verður að banna lausagöngu búfjár með tilkomu beitarhólfanna. 54 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.