Skógræktarritið - 15.05.2005, Blaðsíða 70
Fátœkt er skelfileg í afar mörgum Afríkulöndum. AIgengt er að fólk hafi minna úr að spita en
einum dollar á dag, eða 65 krónum. Þessi ffölskylda frá Kabale- héraði í Úganda er ein af
ffölmörgum slíkum. Bœttur hagur þessa fólks er mikilvægasta samfélagsmál þessara ríkja.
Hér er unnið að skógrækt og landgrœðslu. Með þvíað grafa þessa skurði er verið að hindra
vatnsrof í hlíðunum, og síðan eru gróðursett tré í rásirnar til að hindra rofið enn frekar.
í mörgum hfríkuríkum er mikil togstreita sjónarmiða verndunar og nýtingar náttúruauðlinda. Á
Sesee- eyjum CViktoríuvatni er nú verið að eyða skógi af um 10.000 hekturum lands til þess að
koma upp olíupálmaplantekrum. Vmhverfisáhrifin eru auðvitað gríðarleg, en aftur á móti eru
eyjaskeggjar almennt bláfátækir. Spurningin er hins vegar hvort hugsanlegur ábati af
plantekrunni renni til þeirra?
manns í óeirðum vegna deilna
um jarðnæði í Vestur-Kenýa.
BÁG STAÐA KVENNA
Bág staða kvenna er einnig æp-
andi þegar farið er um dreifbýli
Kenýa, sem og annarra landa
Austur-Afríku. Á heimilum fá-
tækra, barnmargra smábænda er
það yfirleitt hlutverk konunnar að
afla eldiviðar, samhliða þvf að
ala upp börnin, sinna heimilis-
verkum og helstu viðfangsefnum
við jarðyrkjuna. Leiðir til þess að
bæta lífsafkomu fólks á þessum
slóðum þurfa því að ná til kvenna
til að skila árangri. Á vegum
Grænbeltishreyfingarinnar hefur
einmitt verið lögð áhersla á að
vinna með konunum, með
góðum árangri.
ÁHERSLUR MAATHAI
Ég hafði tækifæri til þess að
hlýða á Maathai, nú í febrúar,
halda fyrirlestur við Norska
Lffvfsindaháskólann á Ási, en
þaðan hefur hún heiðursdoktors-
nafnbót. Þar lagði hún ríka
áherslu á réttan skilning á þeim
öflum sem lægju bakvið eyðingu
náttúruauðlinda Afríku. Alltof
algengt væri að skuldinni væri
skellt á fátæka smábændur, sem
hún taldi að væru þolendur en
ekki gerendur f því samhengi. í
Kenýa væru það til dæmis fyrst
og fremst öflug fyrirtæki og
einstaklingar sem hyggju skóg-
ana og legðu sfðan undir sig lönd
í óljósri ríkiseigu. Spilling og
óstjórn væru því helstu drifkraftar
eyðingar náttúruauðlinda Afríku,
sem bitnaði síðan harkalega á
fátækum smábændum, ekki síst
konunum sem ættu allt sitt undir
þessum auðlindum.
Það er hins vegar erfitt viðfangs-
efni Maathai að takast á við
embætti aðstoðar-umhverfis-
ráðherra, ef marka má sfðustu
68
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005