Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 85

Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 85
holtasóleyjar að rótinni undan- skilinni til lækninga. Einsogá við margar aðrar lækningaplöntur er best að safna plöntunni þegar plantan er fersk og þar sem holtasóley blómstrar í maf-júní er best að safna henni fyrri hluta sumars. Nokkuð mismunandi er eftir heimildum við hvaða kvillum eða veikindum holtasóley hefur verið notuð en svo virðist sem hún hafi mest verið notuð við ýmsum kvillum í meltingarvegi og þá einkum við særindum í maga. Hún er góð til að stilla hægðir og óhóflega slímmyndun í melt- ingarfærum. Hún er einnig notuð við öðrum kvillum í slímhúð, t.d. er te af holtasóley gott sem skol við bólgum og sárum í tannholdi, munni og hálsi. Hún er barkandi og styrkjandi og örvar aðeins meltingu. Hún er einnig talin styrkja veikt hjarta. Heim- alningum og kálfum var einnig gefið rjúpnalaufste sennilega í sama tilgangi. Te af rjúpnalaufi og blóðbergi var notað við kvefi. Við sama kvilla var einnig ráð að anda að sér reyk af hófsóley og rjúpna- laufi og sjúga duft af þessum tveimur tegundum upp í nefið. Rjúpnalaufste var einnig notað við gulu. Rjúpnalauf var einnig notað f grauta gerða úr þangi, sennilega bæði til að bragðbæta grautinn og bæta meltingu. Best þótti þó að nýta sarpinn úr rjúpunni sem gat verið fullur af rjúpnalaufi og sjóða hann í þanggrautnum. Rjúpnalauf var einnig þurrkað og mulið og blandað saman við reyktóbak til að drýgja það. Þjóðarblóm Eins og komið hefur fram hlaut holtasóley flest atkvæði í skoð- anakönnun um val á þjóðarblómi fslands sem fór fram síðastliðið haust. Holtasóley uppfyllirvel þau skilyrði sett voru um tilvonandi þjóðarblóm. Hún er algeng um allt land, bæði á hálendi og láglendi og setur víða svip á gróðurfar þess svæðis þar sem hún vex. Hún er með stór, myndræn blóm og auðvelt er að teikna bæði blóm og blöð. Þar sem blöðin eru sfgræn er hún einnig vel sýnileg að vetri. Holtasóleyin er sérstök fyrir norðlægar slóðir og útbreiðslu- saga hennar og skyldra tegunda er nokkuð vel þekkt. Hún er á margan hátt bundin íslenskri menningu með sérstaka nafngift fyrir aldin, hárbrúða, og blöð, rjúpnalauf. Þó að holtasóley teljist vart til helstu Iækninga- jurta hér á landi þá var hún samt nýtt sem slfk. Hún á einnig rætur í þjóðtrú (þjófarót) en þó helst í gegnum rjúpuna og fálkann en segja má að rjúpnalaufið sé tengt þeim órjúfanlegum böndum. Holtasóley sómir sér vel sem þjóðarblóm fslendinga. Helstu heimildir Arnbjörg L. lóhannsdóttir 1992. fslenskar lækningajurtir. Söfnun þeirra, notkun og áhrif. (slensk náttúra IV. Örn og Örlygur, Reykjavík. 240 bls. Ágúst H. Bjarnason 1983. íslensk flóra með litmyndum Iðunn, Reykjavík. 352 bls. Guðmundur Páll Ólafsson 2000. Hálendið í náttúru fslands. Mál og menning, Reykjavík. 437 bls. Hultén, E. & Fries, M. 1986. Atlas of North European vascular plants. Koeltz Scientific Books, Königstein. Hörður Kristinsson 1986. Plöntuhandbókin. Blómplöntur og byrkningar. íslensk náttúra II. Örn og Örlygur, Reykjavfk. 306 bls. jón Árnason. íslenzkar þjóðsögur og æfintýri. 1. bindi. Oscar Brandstetter ljósprentaði eftir frumútgáfu 1862, Leipzig 1930. 666 bls. Jónas lónasson frá Hrafnagili 1945. fslenskir þjóðhættir 2. útg. lónas og Halldór Rafnar, Reykjavík. 502 bls. Lilja Karlsdóttir 2004. Blómgun, fræframleiðsla og fjölgun holtasóleyjar og Ijónslappa. Ritgerð til meistaraprófs við Lfffræðiskor Háskóla íslands. Morgan, D.R., Soltis, D.E. & Robertson, K.R. 1994. Systematic and evolutionary implication of rbcL sequence variation in Rosaceae. American lournal of Botany, 81:890-903. Philipps, M. & Siegismund, H.R. 2003. What can morphology and isozymes tell us about the history of the Dryas integrifolia-octopetala complex? American lournal of Botany, 12:2231-2242. Rit Björns Halldórssonar frá Sauðlauksdal. Gísli Kristjánsson og Björn Sigfússon bjuggu til prentunar. Búnaðarfélag fslands, Reykjavík 1983. 497 bls. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.