Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 5
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 3
Um mynd á kápu
Kápu Skógræktarritsins prýðir nú verkið Dádýr eftir
Írisi Elfu Friðriksdóttur.
Írís Elfa Friðriksdóttir er fædd í Reykjavík árið
1960. Listmenntun Írisar hófst í Myndlista- og handíða-
skóla Íslands, sem hún lauk árið 1984. Framhaldsnám
stundaði hún í Hollandi, við hina þekktu akademíu,
kennda við Jan van Eyck í Maastrich og lauk brottfara-
prófi þaðan árið 1986.
Íris hefur starfað og búið á Íslandi og á Norður-
löndunum fyrir utan Finnland en á síðustu árin
hefur hún búið í Danmörku í bænum Sønderborg
skammt frá þýsku landamærunum. Hefur hún jöfnum
höndum kennt listnám við Sønderjylland Kunstskole
og Haderslev Kunstskole en auk þess tengst ýmsum
listaverkefnum er tengjast næsta nágrenni og umhverfi.
Íris hefur haldið fjölmargar einkasýningar og
samsýningar bæði hér á landi og í Danmörku og
Þýskalandi. Um myndlistarmanninn segir Bragi
Ásgeirsson í Morgunblaðinu 23. mars árið 2000 m.a.
og gæti öðru fremur lýst fjölbreyttum hugðarefnum
og nálgun Írisar í sinni myndlistarsköpun; „En fari
maður að hugleiða hlutina, er það alveg rétt að ekkert
er alveg eins í náttúrunni þótt hún sé byggð upp af
örfáum frumformum, en hins vegar ekki kórrétt að
ekkert sé alveg eins í mannanna verkum, því þar gilda
önnur lögmál. Heimspekin er þó á vissan hátt fullgild
og framslátturinn vekur upp gagnlegar hugleiðingar hjá
hverjum og einum ef vill“. Íris var valinn bæjarlista-
maður ArtPrize2019 í Sønderborg á þessu ári og er
orðinn málsmetandi listamaður sem tekið er eftir. Í
umsögn formanns úthlutunarnefndar verðlaunanna
segir hann að Íris hafi sprungið út sem myndlistamaður
á síðustu árum. Myndlist hennar sé framsækin með
djúpar upprunalegar rætur þar sem oft er unnið með
endurnýjanleg hráefni með náttúruna og tilvísanir til
hennar sem leiðarstef.
Tryðu þér óðlegt ár
Áskri í jólapakka
VERÐ Í ÁSKRIFT: 6.730 kr.
4 eintök í lausasölu: 7.920 kr.
* með áskri fylgir 1 blað frá 2019
15%
afsláttur
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn er lífsstílstímarit
sem fjallar um sumarhúsalíf, garðyrkju og umhverfis-
mál. Tímaritið hefur verið gefið út frá 1994. Gefin
verða út 4 tölublöð á næsta ári. Fyrsta tölublað
ársins kemur út í byrjun mars, vorblaðið í maí,
sumarblaðið í byrjun júlí, og í nóvember kemur út
aðventu- og jólablaðið.
Íslensk jólatré
Opið helgarnar
7.–8., 14.–15. og 21.-22. desember
kl. 10:00–18:00
Viðskiptavinir fá
heitt súkkulaði í kaupbæti
Skógræktarfélag
Hafnafjarðar
við Kaldárselsveg
Sími: 555 6455
Netfang: skoghf@simnet.is
Heimasíða: www.skoghf.is
Skreytingar úr efniviði skógarins