Skógræktarritið - 15.10.2019, Síða 11
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 9
tómum kofanum. Lagði hún ávallt áherslu
á að skógrækt væri mælikvarði á menningu
þjóðarinnar. Skógrækt væri ekki bara
spurning um timburauðlind heldur ekki
síður hvernig við hugsuðum um ræktun
og skyldur okkar gagnvart landinu. Þar
væri verk að vinna við fræðslu og kennslu
ungviðis og nýrra kynslóða sem tækju við
eftir því sem vitneskja og reynsla yxi úr
grasi, meðvitaðar ákvarðanir um aðgerðir
gagnvart landeyðingu, uppblástur og
skógrækt. Að almennur skilningur ríkti í
landinu um þessi mál var henni tamt að
fjalla um á stjórnarfundum. Á þessum
árum tókst félagið á við aukin verkefni
á landsvísu, m.a. Landgræðsluskóga-
verkefnið. Það hefur ótvírætt gjörbreytt
umhverfi þéttbýliskjarna á landinu en
uppvaxandi skógar prýða nú nánast alla
þéttbýliskjarna landsins. Á sama tíma var
stofnaður Yrkjusjóður fyrir tilstilli Vigdísar
Finnbogadóttur og fer Skógræktarfélag
Íslands með umsýslu sjóðsins en þar er
fyrst og fremst hugað að æsku landsins
og skeytingarleysi gagnvart landeyðingu
var almenn í landinu. Hún upplifði hins
vegar þá miklu viðhorfsbreytingu sem varð
meðal þjóðarinnar sem segja má að hafi
m.a. byrjað á Ári trésins árið 1980 þegar
hún tók að sér framkvæmdastjórn 50
ára afmælisárs Skógræktarfélags Íslands.
Þá varð það einnig gæfa skógræktar á
Íslandi að fá forseta sem beindi athygli
landsmanna að skógrækt en Vigdís
Finnbogadórttir hafði vitaskuld jákvæð
áhrif á almenningsálit um allt land. Það
má því með sanni segja að tvær konur í
ábyrgðarstöðu hafi átt drjúgan þátt í að
breyta viðhorfi landsmanna til skógræktar.
Hulda var góður gestgjafi heim að
sækja en hún bauð gjarnan stjórn og
starfsmönnum félagsins heim til sín í
Sólheima 5, þar sem oft var glatt á hjalla.
Þessi boð juku á samheldni og treystu bönd
sem nauðsynleg eru í hverju samstarfi. Í
viðræðum við Huldu kom glöggt fram
að hún var víðlesin og þegar kom að
menningu og listum var ekki komið að
Frá gróðursetningu Yrkjusjóðsins á Úlfljótsvatni árið 1996. Í öftustu röð má m.a. sjá stjórnarmenn í Yrkjusjóðnum
– Matthías Johannessen, formann sjóðsins, Huldu, Þorbjörgu Sæmundsdóttir, fulltrúa íslenskrar æsku og Kristinn
Þorsteinsson, umsjónarmann Orkuveitunnar á Yrkjuverkefninu á Úlfljótsvatni.