Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 23

Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 23
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 21 borðið sé alsett gróhirslum sveppsins, og fella laufin snemma. Slík tré eru þó ekki mjög algeng. Ryðþol er undir svo kölluðum valþrýstingi. Þar sem birkiryð er algengt og sýkingar tíðar verða þau tré sem lítið eða ekkert ryðþol hafa fyrir meiri skemmdum og vaxtartapi en hin sem þolnari eru. Þau drattast aftur úr í vexti, lenda að lokum í skugga stærri trjáa og drepast. Ryðþolnari tré standa betur, eignast fleiri afkvæmi og með tímanum þróast aukið ryðþol meðal birkis á svæðinu. Séu slæm ryðár vægari eða sjaldgæfari er sá valþrýstingur minni, tré með lítið ryðþol fjölga sér óhindrað og ryðþol stofnsins eykst ekki. Þannig hafa mismunandi kvæmi birkis misjafna sögu ryðsýkingar og hjá þeim hefur þróast mismikið ryðþol. hengibjörk fá stundum á sig ryð í gróðrar- stöðvum, þar sem regluleg vökvun skapar góð skilyrði fyrir útbreiðslu ryðsveppsins. Því er betra að tala um þol frekar en ónæmi. Ryðþol og ryðónæmi Ryðþol birkitrjáa er mjög misjafnt. Sum tré virðast ekki fá á sig ryð og segja má að þau séu ónæm fyrir ryðsveppnum. Önnur sýkjast og gróhirslur myndast á neðra borði blaðanna en í litlum mæli og án þess að blöðin skemmist að ráði. Segja má að þau séu ryðþolin. Enn önnur virðast engar varnir hafa gegn ryði og blöðin verða alsett gróhirslum (3. mynd). Loks eru þau tré sem virðast hafa ofnæmi fyrir birkiryði. Blöð þeirra fá í sig drep (svarta bletti á efra borði blaðanna), án þess endilega að neðra 4. mynd. Ung og efnileg birkiplanta kalin niður um helming. Mynd: ÞE

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.