Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 34
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201932
tilheyrandi þurrki. Kepptust þá bændur við
að slá með traktorum sínum túnin hvert
af öðru og allir bundnir við heyskap það
sem eftir lifði sumars. Í hugum sunnlenskra
bænda var meira hugað að praktískum
þáttum lífsins fremur en umhverfinu. Aldrei
var hugað að orsökum né afleiðingum
þessa mikla moldfoks með norðanáttinni
sem geysaði um sveitirnar. Fyrir bændur
var moldkófið ávísun á góðan þurrk fremur
en einhverjar miður góðar breytingar á
landgæðum.
Hversu mörg dagsverk
voru innt af hendi?
Hverfum ögn aftur fyrir aldamótin 1900.
Að koma upp góðum og vönduðum
vörslugörðum var yfirleitt mjög vandasamt
hér á landi. Víða voru aðstæður þannig
að ekki var auðvelt að koma þeim upp
enda var skortur á góðu hleðslugrjóti og
alltaf þurfti að reikna með kröftugum
jarðskjálftum, einkum sunnanlands.
Lengi vel var það starfi íslenskra barna
yfir sumartímann að vaka á næturnar
og gæta þess að búsmalinn færi ekki
í túnin og spillti þar með slægjunum
í heimahögunum. Með innflutningi á
gaddavír um og eftir aldamótin 1900 gátu
sinn starfa. Það hefur aldrei þótt góðs
viti á Íslandi að góður verkmaður sé lengi
matarlaus. Meðan þessi ýtustjóri maulaði í
sig viðurgerninginn og kaffið spurði hann
mig hvort eg þekkti fjöllin sem þarna blöstu
við mót norðri í fagurri heiðríkjunni. Þetta
var nokkru áður en heyannir hófust en
venjulega klæjuðu bændur sunnanlands í
lúkurnar að hefja slátt þá grassprettan væri
talin nægileg. Og auðvitað var beðið uns
vindur snéri til norðlægrar áttar. Einhver
þekkti eg nöfn þessarra fjalla en var samt
ekki alveg viss. Ýtumaðurinn greindi mér
nákvæmlega frá nafni hvers fjalls og sagði
frá einkennum þeirra og umhverfi. Þá bað
hann mig að endurtaka nöfn þeirra og festa
vel í minni rétt eins og góður kennari. Þau
man eg öll enn og greini vel á milli þeirra.
Þetta var mér góð kennsla í landafræði og
hef notið þess síðan.
Moldrok af Haukadalsheiði
Þessi sumur mátti oft sjá mikið uppblástur-
skóf frá Haukadalsheiði smámsaman hylja
fjöllin allt frá Laugarvatnsfjalli í vestri,
Efstadalsfjall, Miðdalsfjall, Högnhöfða,
Kálfstind, Bjarnarfell og Sandafell. Sjaldan
brást það að innan einnar eða tveggja
stunda var brostin á sterk norðanátt með