Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 39
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 37
yfir þeim 2% sem þeir þekja nú á öllu
Íslandi og telja skóg spilla útsýni á Íslandi!
Mætti biðja um minna útsýni sem nóg
er af í landinu en meiri skóg og meira skjól
sem okkur skortir mun meira!
Heimildir
Að hefta uppblástur og stuðla að landgræðslu. Tíminn, 11.09.1977.
Bls. 10-11.
Guttormur Sigbjarnarson. 1969. Áfok og uppblástur. Þættir úr
gróðursögu Haukadalsheiðar. Náttúrufræðingurinn 39 (2):
68-118.
Halldór Laxness. 1970. Hernaðurinn gegn landinu. Morgunblaðið,
31.12.1970. Bls. 10-11.
Hákon Bjarnason. 1938. Friðun Haukadals í Biskupstungum.
Morgunblaðið, 09.10.1938. Bls. 3.
Oddgeir Guðjónsson, Jón Guðmundsson, Páll Lýðsson, Þórður
Tómasson, Björgvin Salómonsson (ritnefnd). 1980. Sunnlenskar
byggðir I. Búnaðarsamband Suðurlands, & Suðuramtsins hús- og
bústjórnarfélög.
i Sunnlenskar byggðir, 1980, bls. 34.
ii Hákon Bjarnason, 1938, bls. 3
iii Tíminn, 1977, bls. 10.
Höfundur: GUÐJÓN JENSSON
mörgu leyti furðulegt. Hvers vegna var ekki
fljótlega upp úr miðri öldinni hafin meiri
skógrækt á vegum sveitarfélaga þar sem lítt
eða algjörlega vannýtt land á láglendi væri
nýtt? Með þessu hefði mátt koma upp mjög
víðáttumiklum og góðum beitarskógum
þar sem kostnaði við smölun væri haldið í
lágmarki. Hvarvetna í siðuðum löndum er
búfé innan girðinga. Hér hefur það of lengi
tíðkast að það ráfi sjálfala yfir sumar-
tímann um lönd allra landsmanna, jafnvel
þeirra sem vilja fá að vera í friði og vera
frjálsir fyrir ágangi búfjár. Sum sveitarfélög
hafa bannað lausagöngu búfjár og er það
lofsvert. En þessi sveitarfélög mættu vera
fleiri!
Ef aðeins nokkrum tugum dagsverka
hefði verið varið í skógrækt á fyrri árum
hefði mátt koma upp mjög góðum og
víðáttumiklum beitarskógum á Suðurlandi.
Það er nægt land á Íslandi fyrir skóg og
vaxandi skógrækt. Þó sjá sumir ofsjónum
Ágæta skógræktarfólk!
Til að ná árangri í loftslagsmálum
verðum við öll að vinna saman að
lausn loftslagsvandans.
Framtíðin krefst þess að við látum
hendur standa fram úr ermum. Það
er enn ekki of seint.
Græðum upp illa farið land,
ræktum skóga og endurheimtum
framræst votlendi.
Baráttukveðjur frá Landgræðslunni,