Skógræktarritið - 15.10.2019, Síða 44

Skógræktarritið - 15.10.2019, Síða 44
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201942 eru komin til hér á bænum og skógurinn líka. Seljan og annar víðir er með mikið af sútunarefni í berkinum og hentar því betur en börkur annarra trjáa og gefur mýksta leðrið,“ bendir hún á og þau taka bæði undir að víðir sé vanmetið hráefni. „Víðirinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur fyrir margra hluta sakir. Humlurnar eru sjúkar í hann fyrst á vorin og ekki myndi maður vilja missa af því. Þegar maður er svo að tálga alls konar smámuni úr blautum viði, er víðirinn alveg toppefni, það mýksta og besta fyrir alls konar útskurð og tálgun,“ segir Helgi. Bæði eru þau opin fyrir að reyna eitthvað nýtt þegar viðarnytjar eru annars vegar og það nýjasta er jarðvegsgerð úr viðarkolum en Helgi hefur gert tilraunir með hana ásamt Bergsveini bróður sínum. „Við höfum verið að leita leiða til að gera þessi kol og það kemur í ljós að það er hægt að fara margar leiðir. Einfaldasta leiðin er þó sennilega sú að gera helvíti mikið bál og slökkva svo í því með vatni. Þú þarft ekki meiri mekanisma. Ég veit ekki hvort þetta er umhverfisvænasta leiðin en þetta er að minnsta kosti sú einfaldasta,“ segir Helgi og bendir á að ef menn eru með sérstaka ofna til kolagerðarinnar geti þeir einnig nýtt gös sem til verði við brunann. Kolin nýtir hann svo til jarðvegsbóta. „Ég er byrjaður að nota kol í pottana í minni ræktun og mér finnst þetta koma djöfulli vel út. Maður vill helst ekki vera að flytja inn mikið af jarðvegi. Það virðist vera að gallinn við íslenska jarðveginn miðað við sphagnum-jarðveginn sé hvað hann er þéttur í sér. Kolin aftur á móti minna á vikur að vissu leyti og gera jarðveginn léttari og loftríkari.“ Berjarækt í skjóli skógar Auk þess að gefa af sér margvís- legar skógarnytjar, styður skógrækt á Kristnesi við aðrar búgreinar sem þar eru stundaðar. Þannig bætir skógurinn til dæmis skilyrði til berjaræktunar sem er gerði fyrir kanínur. „Lerkið er sérstaklega gott í innréttingar fyrir hross því að þau éta það ekki,“ bendir Beate á. Þess má einnig geta að sjálf er hún eldsmiður að mennt og smíðar því sjálf allar lamir og annað járnverk á innréttingunum. Í garðinum við Kristnesbæinn er að finna lítinn burstabæ sem þau smíðuðu að hluta til úr eigin timbri og þá hafa þau í gegnum tíðina byggt ótal ævintýralega kofa og leiktæki þar sem gjarnan er blandað saman grisjunarviði og aðkeyptu efni. „Ég ásamt Georg Hollanders og Inga [Ingólfi Jóhanns- syni] í Kjarnaskógi komum að útisvæði við Hrafnagilsskóla. Þar smíðuðum við eitt heljarinnar víkingaskip og fleiri mannvirki. Þar vorum við einmitt að blanda saman náttúrulegum efnum, rekavið og skógar- timbri. Það kom virkilega vel út og það má segja að þetta skip sé eitt af táknum Eyjafjarðarsveitar,“ segir Helgi. Barkarsútað leður Skógarnytjar felast í fleiru en beinhörðu timbri til smíða og handverks. Geiturnar á bænum eru til að mynda afar sólgnar í víðigreinar og naga blöð og börk upp til agna. Þá nýtist börkurinn einnig við leðurvinnslu og því til sönnunar dregur Beate fram tösku úr barkarsútuðu leðri. „Helgi er búinn að vera að sauma kjóla og þess háttar úr þessu leðri. Lömbin Heimasmíðaðar innréttingar í hesthúsinu í Kristnesi þar sem lerki úr eigin ræktun leikur burðarhlutverk enda sýna hrossin lítinn áhuga á að naga lerkið öfugt við aðrar viðartegundir. Mynd: EÖJ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.