Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 47

Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 47
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 45 næstu garðyrkjustöð, sem henta ekki til útiræktunar á Íslandi.“ Nautgripir nýta skóginn Skógrækt bætir enn fremur skilyrði til skepnuhalds og njóta dýrin í Kristnesi góðs af því. „Nú er svo komið hér í Eyjafjarðar- sveit að hér eru stór svæði þar sem er gerbreytt veðurfar og gerbreyttir ræktunar- möguleikar, ekki síst fyrir þá sem eru með nautgripi. Þetta er til dæmis gríðarlega mikilvægt upp á heilsu gripanna að vera ekki í stöðugum vindi,“ segir Helgi. „Við sjáum það á nautgripunum hérna að þeir eru algerlega búnir að læra að nýta sér skjólið af skóginum. Ef það er rigning, þá fara þeir undir trén,“ bætir Beate við. „Við höfum hleypt kúnum í einn elsta skógarreitinn hérna seinni part sumars, jafnvel þó að það séu smábarrtré inni á milli og þær fara ekki í þau nema fyrir slysni. Ef við hleypum þeim þangað fyrri part sumars, fara þær í börkinn á víði og birki og naga hann,“ segir Helgi og bætir við að íslenska birkið sé í sérstöku uppáhaldi hjá kúm. „Þær láta sér ekkert nægja að narta í blöð heldur hegða þær sér líkt og maður hefur séð á myndum af fílum í Afríku. Þeir rústa trénu, brjóta það niður og éta svo. Á hinn bóginn eru þær skóginn bak við sig. þá myndast allt annað veðurfar en úti á berangri. Núna er Helgi til dæmis að planta hindberjum í skógarjaðrana sem gerir líka skóginn skemmtilegri og maður fer frekar út í hann ef maður getur tínt í sig hindber á leiðinni,“ segir Beate sem kemur frá Norður-Noregi þar sem mikil hefð er fyrir berjaræktun. „Fólk hváði þegar það heyrði að við ætluðum að rækta ber utandyra og sagði okkur að við yrðum að vera með gróðurhús en ég sagði bara nei,“ segir hún. „Við fengum svo bara hellings uppskeru þannig að við höfum bara haldið því áfram,“ skýtur Helgi inn í og bætir við að miklu skipti að finna út hvaða yrki virki og hver ekki. „Það er alveg feykilegur munur eins og allir garðyrkjumenn vita. Það má segja að í jarðarberjunum og hindberjunum sé stærsti munurinn því að langflest evrópsk yrki fúnkera ekki hérna, nema í mjög góðum sumrum skila þau uppskeru. Í miðlungsgóðum eða slökum sumrum skila þau aftur á móti lítilli sem engri uppskeru. Það væri gaman að koma þessum kúltúr í almennilegt horf þannig að þegar fólk er að rækta ber úti, velji það sortir sem virka. Það er leiðinlegt að vita af því að fólk sé að leggja vinnu í beð og kaupir sér síðan plöntur, þess vegna á POTTIPUTKI geispur og burðaráhöld ásamt fleiri vörum fyrir skógarfólk VORVERK.IS sími 665 7200 vorverk@vorverk.is

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.