Skógræktarritið - 15.10.2019, Síða 63

Skógræktarritið - 15.10.2019, Síða 63
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 61 Við skoðuðum nú skógarbeyki skóg sem ekki hefur verið hreyft við að marki síðustu hundrað árin. Hér voru því bæði gömul tré og gríðarmikil og um leið fallnir öldungar sem voru komnir að fótum fram og þar sem þau falla kemur upp nýgræðingur sem nýtir sér rými og ljósglufur í laufþekjunni til að vaxa og dafna. Á föllnum trjám var að finna fjölbreyttar niðurbrotslífverur bæði úr dýra- og plönturíki sem eru sérhæfðar og lifa af því að brjóta í smæstu eindir lífmassa sem áður var byggður upp í nokkur hundruð ár, m.a. skordýr, maura, barkar- bjöllur, sveppi, og aðrar lífverur, fléttur og mosa sem eru ásætur eða lifa sérstaklega við slíkar umhverfisaðstæður. Niðurbrot gefur svo aftur færi á uppbyggingu og heldur hringrásinni gangandi. Um þetta samband fjallaði Oscar meira og minna og gerði af mikilli innlifun og þekkingu. Genginn var stór hringur um dalbotninn meðfram ánni Rio Ara en á þessu svæði var trjágróður að mestu leyti skógabeyki og stoppað á völdum stöðum. Hugfangin eftir þennan áfanga héldum við niður dalinn góða en komum svo við í litlu þorpi, Torla-Ordesa, í útjaðri þjóðgarðsins, hvar einnig var að finna þjónustumiðstöð. Gengið var þar um fallegar og þröngar götur og hér var eðlilega að finna ýmsa muni og vöru sem túristar eru hallir undir. Þegar komið var til baka í rútuna sló Þórarinn fararstjóri upp klassískum tónleikum í lúkar rútunnar og hinn knái bílstjóri Oscar Moral reyndist líka vera liðtækur á gítarinn. Það var vel við eigandi og notalegt að enda þennan dag á silkimjúkum nótum eftir upplif- anir dagsins. Við héldum glöð í sinni til náttstaðar í Jaca. 21. október – Frá Jaca til Barcelona Kominn var ferðadagur því við kvöddum bæinn Jaca og Pýreneafjöllin og ókum til baka til Barcelona. Eðlilega var ferðin nýtt eins og kostur er en Spánn er þekkt víngerðarland um allan heim og því eðlilegt Skógarbeyki í þjóðgarðinum í Ordesa. Mynd: BJ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.