Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 68
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201966
Horft yfir miðbæ Barcelona af hæðinni Montjuïc. Mynd: BJ
virðist ekki vera í sjónmáli. Efnahagur
Katalóníu er öflugur og skapar miklar
gjaldeyristekjur og ágreiningurinn m.a. að
hluta til þess eðlis að heimamenn telja lítið
af þeim skattlögðu tekjum renna aftur til
Katalóníu. Þá munu draugar borgarastyrj-
aldarinnar á öndverðri sl. öld einnig hafa
sitt að segja, en Katalóníubúar voru alfarið
á móti einræðisstjórn Francisco Franco,
sem ríkti frá 1939 allt til ársins 1975, og
er sú staðreynd vafalaust einnig undirrót
þess óróa sem virðist aukast frekar en hið
gagnstæða.
Um kvöldið gafst svo tækifæri til
að upplifa flamenco-dans sýningu á
Tablao Flamenco Cordobes. Þar komu
fram miklir flamenco-snillingar, þau
Jesús Carmona, Karmime Amaya auk
Laura González og Mara Rey svo helstu
meðleikarar séu upp taldir. Enginn
sem heimsækir Spán ætti að láta slíkan
23. október
– Frjáls dagur í Barcelona
Frjáls dagur í borginni og nú gafst hverjum
og einum tími til að skoða þessa dásamlegu
borg upp á sitt einsdæmi. Stórborgin
Barcelona verður hins vegar ekki skoðuð
til hlítar á einum eða tveimur dögum en
þar er margt að finna og iðandi mannlíf
á hverju torgi, spennandi markaðir og
ótal smáverslanir sem skapa einstaklega
notalega stemningu. Þá er ekki síður
ljúft að rölta inn í íbúðagötu, þar sem
hægt er að setjast á lítil kaffihús þar sem
heimamenn fá sér hressingu og ræða
heimsmálin. Sjálfstæði Katalóníu og
pólitískur órói hefur verið í fréttum nú
um nokkurt skeið og voru fánar héraðsins
dregnir fram í íbúðum og víða áberandi í
götumyndinni. Þetta er sýnilegt dæmi um
þá undiröldu sem virðist vera í samskiptum
við Spán en einhvers konar málamiðlun