Golf á Íslandi - 01.12.2014, Qupperneq 10
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
10
„Kominn á ný í baráttuna
með þeim bestu“
Birgir Leifur lék í ellefta
sinn á lokaúrtökumóti
Evrópumótaraðarinnar
en náði ekki alla leið.
Eskifjörður:
„Frábær sumar“
„Sumarið var frábært í einu orði sagt. Veðrið var stórkostlegt í allt
sumar og það eru engar ýkjur. Völlurinn var í góðu standi og við
fengum mikið af heimsóknum frá ferðamönnum,“ segir Jóhann. Um
80 félagsmenn eru í GBE sem var stofnaður árið 2009 eftir að Golf-
klúbbur Eskifjarðar lagðist af. „Við höfum verið með ýmsar fram-
kvæmdir á vellinum og lengt hann í 2.600 metra. Byggðarholtsvöllur
er par 36 í dag en var áður 33 og það munar miklu. Við höfum fengið
15 nýja félaga í sumar og það er heilmikil fjölgun miðað við stærð
klúbbsins“ segir Jóhann Arnarson formaður Golfklúbbs Byggðarholts
á Eskifirði.
Brynjar Sæmundsson golfvallafræðingur hjá GrasTec hefur verið
rágjafi GBE hvað vallarmálin varðar á undanförnum árum og segir
Jóhann að völlurinn hafi breyst mikið frá þeim tíma. „Við þurfum að
gera meira fyrir barna- og unglingastarfið hjá okkur en það er dýrt
fyrir lítinn klúbb að fá kennara og leiðbeinendur á svæðið. Við erum
að gera okkar besta með því að leiðbeina sjálfir en það er verk að
vinna á þessu sviði.“
Jóhann segir að Byggðarholtsvöllur hafi fengið mikið hrós frá gestum
á undanförnum misserum og meira að segja félagar í Golfklúbbi
Norðfjarðar hafi hrósað vellinum. „Þegar það gerist þá vitum við að
völlurinn er jafnvel betri en Grænanesvelli á Norðfirði,“ segir Jóhann
í léttum dúr.
Hella:
„Varnarsigur og fjölgun
þrátt fyrir úrkomuna“
„Við unnum varnarsigur í sumar og það eru ívið fleiri sem léku á
Strandarvelli en árið áður,“ segir Óskar Pálsson formaður Golf-
klúbbsins Hellu. „Það er ekki okkur að þakka, Strandarvöllur hefur
verið óendanlega flottur í sumar. Þetta er yfirburðavöllur, þó ég segi
sjálfur frá. Ég er búinn að vera hérna lengi og völlurinn hefur aldrei
verið betri. “
Óskar býst ekki við því að margir vellir á Suðurlandi hafi aukið
heimsóknafjöldann á rigningasumrinu 2014 frá því í fyrra, sem
reyndar var einnig rigningasumar. „Ég held að margir átti sig á því
að Strandarvöllur er fljótur að þorna eftir miklar rigningar. Það er
ekkert vesen, flatirnar taka bara betur við og málið er dautt.“
Félagafjöldinn hjá GHR breytist lítið á milli ára en félagafjöldinn
hefur verið 100 í mörg ár en Óskar segir að einn hafi bæst í hópinn.
„Við erum 101 og það er fín tala. Allt saman frábært fólk sem leggur
mikið á sig fyrir klúbbinn.“
Tvö stórmót á vegum Golfsambands Íslands fóru fram á Strandar-
velli í sumar. Egils Gull mótið á Eimskipsmótaröðinni og Íslandsmót
unglinga í höggleik á Íslandsbankamótaröðinni. Óskar segir að Golf-
sambandið hafi leitað mikið til GHR með mótahald í gegnum tíðina.
„Það býr mikil reynsla hjá okkur hvað þetta varðar og það er góður
og samstilltur hópur sem er alltaf tilbúinn að leggja sitt að mörkum
til að þetta gangi upp,“ segir Óskar.
Frá Strandarvelli á Hellu 2.
Byggðarholtsvöllur á Eskifirði.
Frá Strandarvelli á Hellu.
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG
þræddi nálaraugað á öllum þremur
stigum úrtökumótsins fyrir Evrópu-
mótaröðina en Íslandsmeistarinn náði
ekki að komast í gegnum niðurskurðinn
á lokaúrtökumótinu. Birgir var einn af
39 kylfingum sem komust inn á lokaúr-
tökumótið með því að komast í gegnum 1.
og 2. stig úrtökumótsins – en alls léku 156
kylfingar á lokaúrtökumótinu og komust
25 þeirra alla leið inn á Evrópumótaröðina.
Birgir endaði í 101-110. sæti á lokaúr-
tökumótinu á PGA Catalunya á Spáni
en hann lék hringina fjóra á +3 samtals
(74-73-68-72). Birgir Leifur var einn af 68
kylfingum sem komust í gegn af völlunum
fjórum á öðru stigi úrtökumótsins. Við
þann hóp bættust 90 kylfingar sem kÓhætt
er að segja að Birgir Leifur sé þrautreyndur
á úrtökumótunum fyrir Evrópumóta-
röðina. Hann lék í ellefta sinn á lokaúr-
tökumótinu frá því hann tók fyrst þátt árið
1997 og í heildina var þetta í 16. sinn sem
hann reynir við úrtökumótið. Hann er eini
íslenski kylfingurinn sem hefur komist
alla leið í gegnum úrtökumót Evrópu-
mótaraðarinnar en það gerði hann tvö ár í
röð, 2006 og 2007.
Ætti að fá um 10 mót á Áskorenda-
mótaröðinni
Birgir hafði ekki komist inn á lokaúr-
tökumótið frá árinu 2010 og þrátt fyrir að
hann hafi ekki náð alla leið að þessu sinni
er staða hans á styrkleikalista atvinnu-
kylfinga mun betri en á síðustu árum.
Birgir ætti að geta leikið á um 10 mótum á
Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili en
þar hefur hann fengið fá tækifæri á undan-
förnum árum.
„Það var mjög mikilvægt skref fyrir mig
að komast á lokastigið. Núna er ég k minn
aftur inn í baráttuna með þeim bestu í Evr-
ópu. Það r svekkjandi að komast ekki alla
leið á lokaúrtökumótinu. Meðal o ið mitt
í ár er í kringum 69 högg sem ég er svaka-
lega sáttur með. Staðan á næsta ári er betri
en í ár því núna er ég kominn með stöðu
á styrkleikalistanum á Áskorendamóta-
röðinni,“ sagði Birgir Leifur en hann ætlar
að meta framhaldið hjá sér með sínum
nánustu áður en hann tekur ákvörðun um
framhaldið.
Alls reyndu fjórir íslenskir kylfingar sig
við úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina,
Axel Bóasson úr Keili komst ekki í gegnum
1. stigið en þeir Þórður Rafn Gissurarson
úr GR og Ólafur Björn Loftsson úr Nes-
klúbbnum komust líkt og Birgir í gegnum
1. stigið en þeir féllu úr leik á öðru stiginu.
Frá því að Ragnar Ólafsson og Sigurður
Pétursson reyndu fyrstir íslenskra kylfinga
við úrtökmót Evrópumótaraðarinnar árið
1985 hafa aðeins tveir náð að komast á
lokaúrtökumótið. Birgir Leifur alls 11
sinnum og árið 2001 komst Björgvin Sigur-
bergsson úr Keili inn á lokaúrtökumótið.
216 holur á 8 höggum undir pari
Birgir Leifur lék alls 216 holur á öllum
stigum úrtökumótsins fyrir Evrópumóta-
röðina á þessu hausti og var hann samtals á
8 höggum undir pari.
1. stig Ribagolfe – Portúgal - 5.-8. sæti
(69-70-69-72) -8.
2. stig Compo de Golf El Saler, Spánn –12.-14.
sæti
(73-70-72-70) -3.
3. stig PGA Catalunya – Spánn – 103. sæti
(74-73-68-72) +3.
1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópu-
mótaröðina fór fram á 10 mismunandi
keppnisvöllum víðs vegar um Evrópu.
2. stig úrtökumótsins fór fram á fjórum
keppnisvöllum samtímis 7.-10. nóvember
á Spáni og lokaúrtökumótið fór fram 15.-
20. nóvember á Spáni. Um 700 keppendur
tóku þátt á 1. stigi úrtökumótsins.
Okkar vinsælu
golfferðir
Islantilla, El Rompido, Valle del
Este, Nuevo Portil á Spáni,
Morgado og Penina í Portúgal.
Islantilla, El Rompido, Nuevo Portil
Penina og Morgado:
28. mars – 6. apríl
6. – 13. apríl
13. – 23. apríl
23. apríl – 3. maí
Valle del Este:
7 og 14 nætur í boði
21. apríl
28. apríl
5. maí
12. maí
ISLANTILLA
Vinsældirnar aukast
og aukast. Frábær
staður. Nauðsynlegt
að bóka strax!
EL ROMPIDO
Tveir 18 holu vellir,
5 stjörnu hótel og
íbúðagisting þar sem
allt er innifalið.
PENINA
Okkar lúxus 5 stjörnu
flaggskip sem hefur
slegið í gegn.
MORGADO
Tveir gríðarlega
skemmti legir og fjöl-
breyttir vellir í algjörri
náttúruparadís.
Hótelið við vellina er
fyrsta flokks.
VALLE DEL ESTE
Nýuppgert hótel við
frábæran golfvöll.
Ótrúlega hagstæður
pakki. Golfbíll og fullt
fæði innifalið.
NUEVO PORTIL
Huggulegt og sjar-
merandi hótel við
fallegan 18 holu
skógarvöll á ótrúlega
hagstæðu verði.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Ótakmarkað
golf í vetur
„Þessi áfangastaður er sá mest spennandi sem ég hef
séð lengi, jafnt fyrir kylfinga og þá sem spila ekki golf.“
Peter Salmon, VITA golf.
Tenerife – Golf Del Sur
á mjög hagstæðu verði
TENERIFE – Golf del Sur
Morgunrástímar á flottum 27 holu golfvelli í 2 mínútna
akstursfjarlægð frá glæsilegu hóteli við ströndina. Fjölmargir
veitingastaðir, barir og skemmtistaðir eru í göngufæri við
hótelið. Golf del Sur pakkinn okkar á Tenerife er einfaldlega
mest spennandi haust- og vetrarnýjung sem við höfum boðið
upp á lengi.
Fararstjóri: Sigurður
Hafsteinsson, golfkennari.
UPPSELT
Islantilla - 23. apríl
Brottfarardagar:
17. og 27. jan.,
3., 17., og 24. feb.,
3. mars
Páskaferð
7 nætur (Golf í 8 daga)
10 nætur
10 nætur
Nýtt
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
V
IT
7
18
04
1
1/
14