Golf á Íslandi - 01.12.2014, Síða 15
Ert þú á leiðinni í
Golfferð í vor?
Nánar á urvalutsyn.is/golf
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Villaitana – Aftur í sölu!
FLOTTIR GOLFVELLIR
Í EINSTÖKU LANDSLAGI
„Golfvellirnir eru tveir, hannaðir af hinum
þekkta kylfing, Jack Nicklaus. Levante par
72, hálfgerður links-völlur en án kargans
sem kemur sér reyndar vel fyrir þá ekki
svo beinu. Brautirnar eru frekar harðar,
með mikið af glompum og flatirnar stórar
með miklu landslagi. Af öftustu teigum er
Levante 6.612 metrar og býður því þeim
högglengri til veislu.
Levante völlurinn er hannaður með
það í huga að vera keppnisvöllur á
alþjóðavísu en þrátt fyrir það hefur hann
reynst forgjafarhærri kylfingum nokkuð
viðráðanlegur. Brautirnar eru nokkuð
breiðar og ekki mikið um erfiðan karga.
Það eru einna helst glompurnar og 4 púttin
sem hafa verið að stríða fólki. „Okkar álit
er að Levante sé frábær valkostur fyrir
alla kylfinga“ segir Ingibergur sem hefur
margoft verið fararstjóri á Villaitana.
Poniente par 62. „algjöra perla“. Fallegra
landslag í golfvelli er erfitt að finna og þrátt
fyrir að vera aðeins 3.858 metrar þá reynist
hann mörgum ansi erfiður þó það sé engin
par 5 braut. Ingibergur segir að Poniente
sé frábær æfingavöllur fyrir alla kylfinga
ekki síst þá forgjafarlægri. Forgjafarhærri
kylfingum ráðleggjum við að taka með
nóg að boltum. Golfbíll er innifalinn þegar
spilað er á Poniente.
Ingibergur segir að af fenginni reynslu
þá er morgunnmatur aðeins innifalinn
í ferðunum til Villaitana. Fólk hafi ekki
viljað binda sig við kvöldverðahlaðborð
þar sem á hótelinu sjálfu er að finna úrval
veitingastaða auk þess að örstutt er að
renna niður á Benidorm þar sem er mikið
úrval veitingastaða.“
Vegna mikillar eftirspurnar býður Úrval Útsýn nú aftur upp á golfferðir til Villaitana á Spáni.
Við báðum Ingiberg Jóhannsson deildarstjóra golfdeildar Úrvals Útsýnar að segja okkur aðeins
meira frá Villaitana svæðinu og hvað það er sem skýrir vinsældirnar.
Villaitana er sannkölluð ævintýraveröld kylfingsins, bara í 40 mín fjarlægð frá
flugvellinum í Alicante. Tveir 18 holu vellir, flott 4 stjörnu hótel sem er byggt eins og
lítið þorp, fullkomið SPA og frábær sólbaðsaðstaða. Öll umgjörð er hin glæsilegasta
og ekki skemmir að það er örstutt að skjótast með leigubíl niður á Benidorm í
verslanir, veitingahús og næturlíf.
PLANTIO
VERÐDÆMI
23. – 30. mars 2015
214.900 KR
RODA
VERÐDÆMI
23. – 30. mars 2015
179.900 KR
HUSA
VERÐDÆMI
6. – 13. apríl 2015
189.900 KR
VILLAITANA
VERÐDÆMI
21. apríl – 1. maí 2015
229.900 KR
TENERIFE
VERÐDÆMI
28. janúar – 4. febrúar 2015
229.900 KR
El SALER
VERÐDÆMI
1. – 5. apríl 2015
169.900 KR
„Það eru ófáir kylfingarnir sem hafa byrjað
ferilinn í golfskóla Úrval Útsýnar á Spáni og
sem vott um ánægju nemenda með skólann
þá er talsvert um það að fólk komi ekki bara
einu sinni heldur 2 til 3 sinnum í skólann.
Þrátt fyrir stífa kennsludagskrá þá leggjum
við einnig mikið upp úr því að það sé gaman
í skólanum sem skýrir kannski að hluta
endurkomu nemenda.
Eitt atriði vil ég þó nefna sérstaklega en það
er að skólinn er ekki bara fyrir byrjendur.
Algengt var að við fengum eiginkonuna
í skólann og karlinn fór sálfur bara út að
spila en það hefur verið að færast í vöxt
að karlarnir eru að koma með konunum
í skólann og sjá ekki eftir því. Ég hef ekki
enn hitt þann kylfing sem er fullnuma í
íþróttinni og aðstæðurnar verða varla
betri til að bæta sig. Sem dæmi þá var
forgjafarlægsti kylfingurinn sem ég man
eftir í augnablikinu, með rétt um 4 í forgjöf
þegar hann kom í skólann. Í 6 daga skóla eru
nemendur 18 klukkutíma undir handleiðslu
golfkennara þar sem ekki er aðeins farið
í gegnum golfsveifluna og stutta spilið
(vipp og pútt) heldur líka leikskipulag,
siða- og umgengnisreglur, leikhraða og
forgjafarkerfið. Við leggjum mikla áherslu
á að fjöldi nemenda á hvern kennara sé
hámark 6-7 manns þannig að allir fái góðan
tíma með kennaranum. Kennslan fer fram
á morgnana og eftir hádegismat þá býðst
nemendum að fara út að spila, allt eftir
áhuga hvers og eins.
Nú í þeim tilvika sem t.d. annar aðilinn er
í skóla og makinn að spila þá reynum við
að stilla þannig saman að viðkomandi geti
farið saman út að spila eftir hádegismatinn.
Fyrir vorið 2015 þá eru í boði 2 fyrirfram
skipulagaðar skólaferðir á tvo mjög ólíka
staði. Husa/Alicante Golf, gott 4* hótel,
mjög gott æfingasvæði og flottur 18 holu
golfvöllur og val um að hafa innifalið morgun
og kvöldmat eða eingöngu morgunmat þar
sem aðgengi að ólíkum veitingastöðum
er mjög gott. Bæði í göngufæri eða með
stuttum akstri. Hinn staðurinn er Plantio en
þar eru frábærar íbúðir, gott æfingasvæði
og 2 golfvellir, annar 9 holu par 3 völlur sem
hentar byrjendum í mörgum tilfellum mjög
vel. Á Plantio er allt innifalið í mat og drykk,
bæði í klúbbhúsinu sem og í veitingasölunni
við íbúðirnar.
Ef við fáum beiðni um kennslu utan þessara
2 vikna þá skoðum við það að sjálfsögðu
hverju sinni.
Sjálfur er ég menntaður PGA golfkennari og
kenni við skólann. En skólastjóri golfskólans
er enginn annar en Þorsteinn Hallgrímsson
og ekki skemmir fyrir að Júlli, Júlíus
Hallgrímsson bróðir hans hefur verið að
kenna við skólann líka, og þeir sem þekkja
þá bræður vita að þar sem þeir eru er ekki
leiðinlegt.“ segir Ingibergur Jóhannsson
GOLFSKÓLINN ER JAFNT FYRIR
BYRJENDUR SEM LENGRA KOMNA
Golfskólinn