Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 16
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
16
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800, Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020, Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
HONDA CR-V KOSTAR frá kr. 5.190.000
honda.is/cr-v
Hvort sem þú vilt þægindi og víðáttu innrarými fyrir ferðalagið eða skynvætt
veggrip fyrir krefjandi akstursaðstæður þá er Honda CR-V fyrir þig. Bættu
við hagstæðu verði og 5-stjörnu öryggi og þú sérð heildarmynd hagkvæma
borgarjeppans sem hefur rakað að sér verðlaunum í öllum heimsálfum.
Heildarmyndin endurspeglast í háu endursöluverði og verðlaunum
sem áreiðanlegasti bílaframleiðandi heims áttunda árið í röð.
Keyrðu Honda CR-V, betri 4x4 þegar á allt er litið.
Horfðu á heildarmyndina
Ví-D átta & vEGGRIP
Gríðarleg þátttaka var Regluverði,
spurningaleik Golfsambands Íslands og
Varðar. Rúmlega 5000 manns tóku þátt í
sumar og fjölgaði þátttakendum um 1000 á
milli ára. Í leiknum gafst þátttakendum færi
á að kanna þekkingu sína á golfreglunum
og gátu þeir sem stóðust prófið fengið gull-,
silfur- eða bronsverðlaun. Um 2000 þátt-
takendur hlutu gullverðlaunin og sýndu með
því yfirburða þekkingu á golfreglunum.
Sigurvegari Regluvarðar þetta sumarið var
Kristján Geir Guðmundsson. Hann hlaut að
launum magnaða haustgolfferð með Heims-
ferðum fyrir tvo á Montecastillo golfsvæðið
á Spáni.
Golfsamband Íslands þakkar öllum sem tóku
þátt kærlega fyrir og minnir alla golfáhuga-
menn á að kynna sér golfreglurnar. Þeir
sem ekki eiga eintak af af Golfreglubókinni
ættu að næla sér í hana. Bókin passar vel í
golfpokann en svo er líka gott að rýna í hana
þegar ekki er lengur fært á golfvöllinn.
Kristján með reglurnar á hreinu
og vann golfferð til Spánar
Hörður Arnarson, framkvæmdastjóri golfdeildar
Heimsferða, Kristján Geir Guðmundsson, sigurvegari
Regluvarðar, Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Golfsambands Íslands og Guðmundur Jóhann Jónsson,
forstjóri Varðar, við afhendingu verðlaunanna.
FACEBOOK.COM/KRINGLAN.ISKRINGLAN.IS
GJAFAKORT
KRINGLUNNAR
er gjöf af öllu hjarta
Þú færð kortið á þjónustuborði okkar á
1. hæð, við Hagkaup eða á kringlan.is
Smakkaðu...
SEXTÍU ÁR Á
MILLI KEPPENDA
Í SAMA LIÐI
„Þetta var mjög skemmtilegt. Það voru ekki nema sextíu ár á mili
okkar Kingu þannig að við náðum vel saman í fjórmenningnum,“
sagði Eygló Geirdal úr Golfklúbbi Suðurnesja en hún var í liði GS í
sveitakeppni GSÍ í ágúst.
Það vakti athygli og smá aðdáun þegar Eyló mætti til leiks með hinni
ungu og stórefnilegu Kingu Korpak í sveitakeppninni í sumar í Mos-
fellsbæ. Lið GS var skipað ungum golfkonum og Eygló var hissa þegar
haft var samband við hana um að vera í liðinu. „En ég sló auðvitað
til og lét mig hafa það þó ég hefði þurft að spila fullt af golfi, meðal
annars tvisvar tvo hringi sama daginn, sjötug kerlingin. Ég gæti verið
amma þeirra allra. Þetta var auðvitað mjög gaman, Georg, kallinn
minn dró fyrir mig og svo skemmdi ekki fyrir að okkur Kingu gekk
vel saman,“ sagði Eygló við Golf á Íslandi og bætti því við að hún ætti
nú ekki von á því að vera aftur kölluð til á næsta ári. En yrði líklega
klár í slaginn ef símtalið kæmi.
Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili hefur á þessu ári tekið
risastökk á heimslista áhugakylfinga. Hinn 17 ára gamli Hafn-
firðingur var í sæti nr. 129 í lok september og hafði hann stokkið
upp um 2371 sæti á einu ári. Alls eru 29 íslenskir karlar sem er á
heimslistanum en bæði Íslandsbankamótaröð unglinga og Eim-
skipsmótaröðin hafa fengið aukið vægi á heimslistanum eftir að
mótin urðu 54 holu mót. Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvins-
dóttir efst af Íslendingunum en hún hefur farið upp um tæplega
700 sæti á einu ári. Guðrún Brá er í sæti nr. 321 á heimslistanum
en var í sæti nr. 995.
Efstu íslensku kylfingarnir
í karlaflokki á heimslist-
anum:
129. Gísli Sveinbergsson, GK
272. Bjarki Pétursson, GB
284. Haraldur Franklín
Magnús, GR
588. Kristján Einarsson, GKj.
862. Guðmundur Ágúst
Kristjánsson, GR
1201. Aron Júíusson, GKG
1325. Ragnar Már
Garðarsson, GKG
1386. Andri Þór Björnsson, GR
1493. Axel Bóasson, GK
1841. Rúnar Arnórsson, GK
1991. Stefán Þór Bogason, GR
2097. Fannar Steingrímsson,
GHG
Efstu íslensku kylfingarnir
í kvennaflokki á heimslist-
anum eru:
321. Guðrún Brá
Björgvinsdóttir, GK
502. Sunna Víðisdóttir, GR
1150. Berglind Björnsdóttir,
GR
1273. Ragnhildur
Kristinsdóttir, GR
1296. Signý Arnórsdóttir, GK
1791. Anna Sólveig
Snorradóttir, GK
1911. Sara Margrét
Hinriksdóttir, GK
1964. Ólöf María
Einarsdóttir, GHD
2336. Tinna Jóhannsdóttir,
GK
Risastökk hjá Gísla
á heimslistanum
- hinn 17 ára gamli kylfingur
fór upp um 2.371 sæti á einu ári
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
12
www.siminn.is
E
N
N
E
M
M
/
N
M
6
15
4
6
IP símkerfi fyrir fast
gjald á mánuði
Fyrirtækjaþjónusta Símans er
partur af starfsemi Furu
Endurvinnslufyrirtækið Fura bútar sundur 2.500 bíla og
fimm skip árlega. Eins og 15.000 önnur íslensk fyrirtæki
treystir það á fyrirtækjaþjónustu Símans.
Síminn býður fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum
upp á bæði fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu.
Starfsfólkið getur þannig einbeitt sér að sínu aðal-
hlutverki meðan Síminn sér um rekstur, viðhald
og öryggi kerfanna.
Nánar á siminn.is eð í síma 800 4000.
Láttu sérfræðinga okkar finna lausnina sem hentar þínu fyrirtæki
Árlegir Lávarðaleikar GSF fóru fram 13.
september á Hagavelli Seyðisfirði. Þátt-
takendur voru 32. Heiðursgestir voru sex.
Leikarnir hófust kl. 10.02. Slegið var af öllum
teigum samtímis eftir að ræst hafði verið
út með kröftugum lúðrablæstri. Golfveður
var frábært, Sv-átt, sól og stillt og hiti fór í
+18 þegar best lét. Leikið var leikandi létt
golf með forgjöf og sáust mögnuð fagnaðar-
læti um víðan Hagavöll þegar vel tókst til
við slátt og pútt. Um kvöldið buðu Lávarðar
til mikill uppskeruhátíðar í golfskála þar
sem þátttakendur, girtir el í brók að vanda,
næddu valið grill ð lambakjét með fjöl-
br yttu mauluðu meðlæti sem þeir renndu
niður með mö nuðu Lávarðadrykk.
Riddarar GSF Adolf Guðmundsson
nr. 16. Lárus Bjarnason r.17 og Guð-
mundur Sigurðsson nr. 18 voru „inn-
vígði “ í hæstvirta Lávarð deil GSF
f Yfir Lord og Form. Lá arð með
vísan til 17. gr. 6. mgr. í Lávarðareglum
frá 2006 og 2.gr í viðauka frá 2012.
19. holan „L-B Þorvaldsbrau arbani“ var
leikin kl. 21.45-22.30 á flóðlýstum eig
með blikkandi baugjuljós á flagg 9. flatar.
Taktfastur, kröftugur, raddaður söngur þar
sem allir sungu með sínu nefi,við undir-
leik Hljómsveitar HÚSSINS, braust út milli
Bjólfs og Strandatinds fram til kl. 23.45.
Stundvíslega kl. 23.50 renndi rúta í hlað
golfskála Hagavallar með Sigurð Valde-
r son við stýrið. Léttir í lundu stigu
þátttakendur um borð og keyrt var inn í
kaupstað. Sumir létu þar með gott heita en
aðrir viðruðu sig ögn lengur í ljúfu nætur-
lífi fjarðarins fagra sem engan svíkur.
Lávarðar GSF þakk Riddurum GSF og
öllum öðr m kylfingum frábært golfsumar
og nú anga þ ir brattir inn í haustið og
veturinn með þann eina ásetning að leika
áfram golf á meðan stætt er.
Á Lávarð leikum e leikið um 3 heiðurstitla
GSF og veitt er ein tilnefning ársins. Þessi
varð niðurstaðan:
Meistari Lávarða GSF 2014:
Sigurður Finnbogason.
Meistari Riddara GSF 2014:
Stefán Jóhannsson.
Þorvaldsbrautarbani GSF 2014:
Ólafur Ingi Mikaelsson (5.43).
Tilnefning: Besti vinur Lávarða GSF 2014:
Marco.
Lávarðar GSF þakka eigendum Brimbergs
ehf. og Óttari Magna fyrir veittan stuðning
og bjóða nýja Lávarða nr. 15., 16. og 17., vel-
komna í hópinn
F.h. Öldungaráðs Lávarða Þ.J.
Lávarðaleikar GSF 2014. Stemmning á uppskeruhátíð:
19. holan leikin á flóðlýstum eig með
blikkandi baugjuljós á flag i 9. fl tar
Keppendur á Lávarða-
leikum GSF á Hagavelli á
Seyðisfirði.