Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 36

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 36
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 36 Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014? „Yfir heildina var hún mjög góð. Sigraði á þremur mótum á Íslands- bankamótaröðinni og var nokkrum sinnum í baráttunni á Eimskips- mótaröðinni.“ Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið? „Það var frábært að sigra með GKG í sveitakeppni unglinga í Þorláks- höfn.“ Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014? „Mér fannst Kristján Þór Einarsson koma mest á óvart í sumar.“ Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það? „Það væri örugglega inn á höggið mitt á 18. holu á Íslandsmótinu í holukeppni unglinga. Var um 160 m frá stöng viss að par myndi duga til að komast í bráðabana. Ég dreg boltann með vindinum og enda í runna sem er 30 m fyrir aftan grínið sem kom mér í vonlausa stöðu og ég tapaði leiknum.“ Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar? „Fyrir næsta tímabil þarf ég að leggja áherslu er að styrkja mig og taka púttin í gegn. Markmiðin eru að reyna að vera í toppbaráttunni á Eimskipsmótaröðinni og vonandi ná að sigra.“ „MARKMIÐIN ERU AÐ REYNA AÐ VERA Í TOPPBARÁTTUNNI Á EIMSKIPSMÓTARÖÐINNI OG VONANDI NÁ AÐ SIGRA“ Arnór Snær Júlíusson Hvað segja afrekskylfingar okkar? Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014? „Á heildina lítið var hún bara nokkuð góð, en það er alltaf hægt að gera betur, náði 62% af markmiðunum mínum.“ Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið? „Það er fátt sem toppar það að vera í forystu á Íslandsmótinu í ein- hvern tíma. Síðan er alltaf jafnmikill heiður að vera valin í landsliðið.“ Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014? „Það voru fáir sem komu mér á óvart, en það voru margir sem sprungu út þetta sumarið.“ Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það? „Það er helst tvö högg sem ég vil fá að endurtaka nokkrum sinnum, bæði þessi högg voru á lokaholunni á Íslandsmóti unglinga í höggleik á Hellu. Fyrsta lagi er það upphafshöggið og síðan annað höggið, þar gerði ég allt sem á ekki að gera á þessari holu. Of löng og vinstra megin við flötina.“ Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar? „Halda áfram þeirri vinnu sem ég er búin að vera í, sem er bæta púttin hægt og rólega, ásamt ákvarðanatöku í stutta spilinu. Aðal- markmiðið að gera betur en seinasta sumar.“ „AÐALMARKMIÐIÐ AÐ GERA BETUR EN SEINASTA SUMAR“ Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014? „Sumarið var ekkert sérstakt hjá mér, bæði jákvæðir og neikvæðir punktar sem ég get tekið með mér inn í veturinn og vonandi bætt mig á þeim sviðum.“ „ÉG MUNDI ENDURTAKA LOKAPÚTTIÐ MITT Á ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU Í HOLUKEPPNI“ Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið? „Íslandsmeistaratitillinn í sveitakeppni var hápunkturinn.“ Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014? „Það var svo sem enginn sérstakur kylfingur sem kom mér svakalega á óvart en Gísli Sveinbergsson var ansi magnaður í sumar.“ Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það? „Ef ég mætti endurtaka eitt högg mundi ég endurtaka lokapúttið mitt á Íslandsmeistaramótinu í holukeppni á móti Karen Guðnadóttur.“ Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar? „Gæti alltaf bætt mig í púttunum. Markmiðin ekki komin niður á blað eins og er en ég ætla að halda áfram að njóta þess og hafa gaman af því að spila golf.“ Signý Arnórsdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir ÁNÆGJAN HEFUR LOKS FUNDIÐ SINN SÁLUFÉLAGA HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Búnaður í Outlander Intense: 18" álfelgur, aðgerðastýri, upplýsingaskjár í mælaborði með bakkmyndavél, USB tengi og handfrjáls símabúnaður, hraðastillir, tvískipt tölvustýrð miðstöð, upphituð framsæti, upphituð framrúða, AM/FM útvarp, CD/MP3 spilari, rafdrifnir og upphitaðir útispeglar með stefnuljósum, vindskeið að aftan með LED lýsingu, þokuljós að framan, regnskynjari á rúðuþurrkum, sjö öryggispúðar, skyggt gler í hliðar- og afturrúðu, langbogar á þaki, þvottasprautur á aðalljósum, dagljósabúnaður. 35 VIÐ FÖGNUM ÁRUM MEÐ ÍSLENDINGUM NÝR MITSUBISHI OUTLANDER INTENSE FYRIR HUGSANDI FÓLK Mitsubishi Outlander Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 5.290.000 kr. Mitsubishi Outlander Intense er fjórhjóladrinn fjölskyldubíll sem dúxar í sparneytni og lágum útblæstri kolefnis en skilar samt framúrskarandi afköstum. Háþróaður öryggisbúnaður, bakkmyndavél og handfrjáls símabúnaður eru bara örfáar ástæður til að hjálpa þér að gera upp hug þinn. Komdu og prófaðu ævintýralegan Outlander Intense. Xenon aðalljós með sérstaklega víðu birtusviði. Sjö SRS loftpúðar vernda ökumann og farþega. Sparneytin 2.0 lítra vél skilar lágum útblæstri kolefnis.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.