Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 38
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
38
Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?
„Miðað við aldur og fyrri störf þá geng ég bara nokkuð sáttur frá
sumrinu, átti góð mót inni á milli og nokkuð stöðugur bara heilt yfir.“
Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?
„Fyrir mér stóð Íslandsmótið í holukeppni á Hvaleyrarvelli upp
úr, spilaði frábært golf alla þrjá dagana og fékk púlsinn í gang með
nokkrum bráðabönum og endaði í þriðja sæti. Það var líka einn
leikur í Grafarholtinu mjög eftirminnilegur í sumar, þar sem 19
punkta sigur var niðurstaðan. Ég nefni engin nöfn til að hlífa koll-
egum mínum.“
Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?
„Ég hafði gaman af því að sjá hvað margir ungir strákar eru farnir að
hugsa eins og atvinnumenn. Þeir eru komnir langt í sportinu og það
styttist í góða hluti að mínu mati. Sá sem kom mér mest á óvart hlýtur
að vera Haraldur Heimisson, gömul kempa sem er með betri tölfræði
í stutta spilinu en þeir bestu á Evróputúrnum. Ég þurfti að horfa upp
á þessa „short-game“ veislu í meistaramótinu hjá GR.
Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða
högg væri það?
„Tveggja feta púttið á móti Bjarka Péturssyni á 19. holu í undanúr-
slitum holukeppninnar. Ég reikna með jólagjöf frá honum þetta árið.“
Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver
eru markmiðin?
„Æfa stutta spilið, halda því í formi þar sem það er mikilvægast í
þessari frábæru íþrótt. Annars er ég lítið í markmiðssetningum öðru
en að hafa gaman af því að keppa, halda mér hungruðum í golf – þá
gætu góðir hlutir gerst.“
„ÉG HAFÐI GAMAN AF
ÞVÍ AÐ SJÁ HVAÐ MARGIR
UNGIR STRÁKAR ERU
FARNIR AÐ HUGSA EINS OG
ATVINNUMENN“
Stefán Már Stefánsson
Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?
„Ég er bara nokkuð ánægður með frammistöðuna í sumar heilt yfir
litið, 8. sæti á stigalistanum á Eimskipsmótaröðinni og klúbbmeistari
GR.“
Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?
„Það var klárlega klúbbmeistaratitillinn hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.“
Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?
„Ég verð að segja að Kristján Þór hafi komið mér mest á óvart eftir að
hafa ekki verið valinn í landsliðið og svo steig hann upp og sýndi hvað
hann getur.“
Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014
- hvaða högg væri það?
„Ég er ekki mikið fyrir það að dvelja við slæmu hlutina og því kýs ég
að segja seinasta púttið á meistaramótinum því það veitti mér hvað
mesta ánægju.“
Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver
eru markmiðin fyrir næsta sumar?
„Ég ætla að leggja áherslu á sveifluna og púttin í vetur. Markmiðin
fyrir næsta sumar eru að komast í landsliðið og að berjast um sigra á
mótaröðinni.“
„MARKMIÐIN FYRIR NÆSTA
SUMAR ERU AÐ KOMAST Í
LANDSLIÐIГ
Stefán Þór Bogason
Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?
„Frammistaða mín að afloknu golfsumri var viðunandi alltaf má gera
betur og alltaf má æfa meira er yfir heildina sátt með mitt.“
Þórdís Geirsdóttir
„ALLTAF MÁ GERA BETUR OG
ALLTAF MÁ ÆFA MEIRA“
Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?
„Hápunkturinn var að sjálfsögðu að vinna Sveitakeppnina.“
Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?
„Gísli Sveinbergsson kom mest að óvart ef það er hægt að segja. Hann
er frábær kylfingur bæði á velli og utan vallar. Hlakka mikið til að
fylgjast með honum á komandi árum.“
Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða
högg væri það?
„Það er ekkert eitt högg frekar en annað sem ég vildi endurtaka það
má alltaf gera betur en ekkert eitt högg sem hafði nein úrslitaáhrif.“
Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver
eru markmiðin fyrir næsta sumar?
„Það sem ég þarf að leggja áherslu á í æfingum vetrarins eru púttin og
ætti ekki að koma neinum á óvart. Spurning um að heyra í Pall Ket
enda er hann allur að vilja gerður að kenna mér að pútta. Markmið
mín fyrir næsta sumar er að æfa meira og skila betri golfhringjum en
á síðasta sumri svo er ég komin í þá stöðu að geta spilað á tveimur
mótaröðum þar sem ég verð 50 ára á næsta ári og er stefnan sett á að
mæta á nokkur mót á öldungamótaröðinnni – og jafnvel að finna mót
erlendis ef ég finn eitthvað áhugavert.“
Hvernig tekst flugfélag á við eldfjall
sem þeytir frá sér 750 tonnum af
ösku á sekúndu aðeins 250 km
frá miðstöð flugrekstrarins?
Svar Icelandair við gosinu í Eyjafjallajökli
var að færa miðstöð flugrekstrarins og
á þriðja hundrað starfsmanna til Glasgow.
Sérfræðingar Nýherja fengu það
hlutverk að trygg ja að tölvukerfið
stæðist álagið enda sjáum við um
upplýsingatækni Icelandair.
Við köllum það tafarlausn.
TAFARLAUSN
NÝHERJI ER LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI UPPLÝSINGATÆKNI
Við höfum góða reynslu af framtíðinni!
BORGARTÚNI 37
SÍMI 569 7700
WWW.NYHERJI.IS
E
N
N
E
M
M
/
N
M
6
5
8
4
5