Golf á Íslandi - 01.12.2014, Síða 40
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
40
Hrafn Guðlaugsson hefur með
mikilli þrautseigju og aga komist
langt í keppnisgolfinu. Hrafn er
einn af fáum afrekskylfingum sem koma
frá Austurlandi en hann stundar meistara-
nám í stjórnun í Bandaríkjunum og leikur
golf með skólaliði Faulkner háskólans
í NAIA-deildinni. Golf á Íslandi rakti
garnirnar úr Hrafni á dögunum og fyrsta
spurningin var hvernig hann hafi kynnst
golfíþróttinni.
„Ég fékk mitt fyrsta golfsett þegar ég var 7
ára gamall og ég bjó á þeim tíma á Djúpa-
vogi. Á þeim tíma var mikill áhugi á golfi og
fór ég í golf með pabba, frændum mínum og
fleirum. Ég flutti síðan til Egilsstaða þegar ég
var 9 ára. Ég spilaði golf mér til gamans en
það var ekki mjög sterkt barna og unglinga-
starf í gangi,” segir Hrafn en hann komst
í fyrsta sinn í kynni við golfþjálfun þegar
Sturla Höskuldsson flutti austur árið 2006.
„Sturla hjálpaði mér mikið og var það í fyrsta
skiptið sem ég var með þjálfara. Það var
gaman að alast upp á Austfjörðum og þar er
mikið af frábæru fólki – og þessi tími er mér
kær. Það eru opin golfmót flestar helgar á
þessu svæði sem eru vel sótt af kylfingum frá
öðrum stöðum.“
Hætti í fótbolta eftir fótbrot
Hrafn, sem er 24 ára, var í fótbolta samhliða
golfinu fram til ársins 2009 en hann fót-
brotnaði í leik það sumar og sneri sér alfarið
að golfinu.
„Ég flutti til Sturlu og Kristínar konu hans til
Torreby í Svíþjóð og bjó þar sumrin 2011 og
2012. Þar var frábært að vera. Ég vann á golf-
vellinum, æfði og spilaði eins og ég gat þess á
milli. Flottar mótaraðir voru þar í gangi fyrir
21 árs og yngri og ég fékk dýrmæta reynslu
frá þeim mótum,” segir Hrafn en hann hefur
stundað nám í Faulkner í Alabama undan-
farin ár.
„Ég hef verið mjög heppinn að hafa bæði
góða liðsfélaga og þjálfara. Við höfum náð
vel saman bæði innan og utan vallar. Að-
stæðurnar eru mjög góðar og spilum við
á heimsklassa völlum, ma. á Robert Trent
Jones Capitol Hill svæðinu þar sem haldið er
LPGA mót og eru þar þrír klassa-vellir.
Á mínu öðru ári í skólanum spiluðum við
mjög vel og komumst í „The NAIA National
Championship“, sem haldið var í Salem,
Oregon, í fyrsta skiptið í sögu skólans. Á
síðasta ári unnum við héraðsdeildina okkar
og komumst sjálfkrafa í lokamótið. Þar
spiluðum við vel, leiddum mótið eftir tvo
hringi en lékum ekki nægilega vel loka-
daginn. Ég spilaði fínt golf yfir árið, meðal-
skor uppá 72.68 högg og var valinn í NAIA
All-America liðið. Það gaf mér keppnisrétt
í Patroit All-American mótinu sem er mót
þar sem All-America leikmenn út öllum
deildum koma saman og keppa. Mótið er
haldið í Phoenix, Arizona og verður sýnt frá
því á ESPN og The Golf Channel.”
Hrafn æfir gríðarlega mikið og ætlar sér
langt. Hann lýsir dæmigerðum degi með
eftirfarandi hætti.
„Síðan ég byrjaði í meistaranáminu hef ég
getað ráðið tíma mínum töluvert sjálfur. Ég
byrja daginn 3-5 sinnum í viku á að fara í
ræktina, læri svo fram að hádegismat og fer
síðan á golfvöllinn eftir hádegi. Kvöldin nota
ég til þess að læra ef þess er þörf. Meiðsli
í úlnlið hafa hrjáð mig að undanförnu og
ég hef lagt minni áherslu á að slá mörg full
högg á æfingarsvæðinu. Í staðinn legg ég
mikla áherslu á að æfa mikið innan við 100
metra, fleygjárn, vipp og pútt, og reyni að
spila daglega.“
Ætlar að klára námið með sóma
Hvað framtíðardraumana varðar segir Hrafn
að hann ætli að klára námið með sóma og
bæta sig í golfinu eins og hægt er.
„Það sem er framundan á næsta ári er í
fyrsta lagi að klára námið með sóma og á
sama tíma leggja hart að mér að bæta mig
í golfi. Meistaranámið sem ég er í núna eru
þrjár annir svo ég mun verja lokaönninni
hér í Alabamahitanum næsta sumar. Ég er
byrjaður að skoða þann möguleika að finna
starf hér í Bandaríkjunum eftir útskrift. Þá
gæti ég haldið áfram að vinna í golfinu allan
ársins hring. Ég ætla að leggja hart að mér
núna á næsta ári í golfinu, sjá hvernig gengur
og hvernig úlnliðurinn verður og vonandi
næ ég þeim markmiðum í golfinu sem ég
hef sett mér. Auðvitað set ég markið hátt í
golfinu og ef ég held áfram að leggja tíma
og vinnu í golfið þá tel ég allt hægt. Annars
verður maður að vera raunsær og þess vegna
hef ég einnig gefið skólanum góða athygli.“
Hrafn telur að hægt sé að byggja upp gott
barna- og unglingastarf á Austfjörðum en
það séu engar galdralausnir.
„Ég hef fulla trú á því að barna og unglinga-
starfið muni styrkjast á næstu árum og
áratugum. Ég veit að margir vinna hörðum
höndum að byggja upp klúbbana en ég tel að
það sé engin galdralausn. Ég sá um barna og
unglinganámskeið þegar ég bjó fyrir austan
og var það vel sótt og fullt af efnilegum
kylfingum. Einar Bjarni Helgason er ungur
kylfingur sem býr á Egilsstöðum, hefur hann
lækkað forgjöfina niður í 6 á stuttum tíma og
tel ég hann eiga framtíðina fyrir sér ef hann
heldur áfram á sömu braut. Í Fljótsdalshéraði
er fjarlægðin frá bænum upp á golfvöll stórt
vandamál. Aðrar íþróttir, eins og fótbolti,
grípa flesta og þar sem flestir vilja stunda
íþróttir með vinum sínum. Lykilatriði er
að byggja upp kjarna af ungum golfurum,
mögulega kynna golfið betur í skólunum og
þá tel ég að mun fleiri myndu bætast við.
Síðan eru meðlimir Golfklúbbsins Baba-Slæs
að dæla út börnum, svo framtíðin er björt,“
sagði Hrafn Guðlaugsson.
„Með mikilli vinnu
er allt hægt“
- Austfirðingurinn Hrafn Guðlaugsson gerir það gott í háskólagolfinu í Alabama