Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 44
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
44
í að þriðja æfingasvæðið bætist í flóruna
hjá GKG. Þetta er svipað og þróunin varð
í knattspyrnuhúsunum á landsvísu. Fyrsta
hugmyndin var að Básar yrðu aðeins fyrir fé-
laga í GR en sem betur fer var fallið frá þeirri
hugmynd. Þetta æfingasvæði átti að vera
fyrir alla og það var um tíma þannig ástand
að GR-ingar fengu ekki afslátt í Básum.“
Nýverið tók GR yfir rekstur Bása að nýju
eftir að fyrirtækið ProGolf hafði verið með
rekstur Bása á leigu í nokkur ár. „Samvinnan
hefur alltaf verið góð við ProGolf en pér-
sónulega fannst mér áhuginn dofna þegar
árin liðu. Við vitum núna hvað þarf að gera í
þessum rekstri og eitt af því er að við viljum
að það séu PGA kennarar að kenna í Básum.
Það má einnig skoða opnunartímann betur.
Að mínu mati er ekkert að því að loka yfir
verstu vetrarmánuðina þegar boltarnir
hreinlega týnast í snjósköflunum. Aðsóknin
hefur aðeins dregist saman frá því sem fyrst
var. Fyrsta árið sem Básar voru í gangi þá
voru slegnir á bilinu 6 – 6 ½ milljónir boltar.
Það hefur heldur dregið úr og að jafnaði hafa
verið slegnir 4-5 milljónir boltar undanfarin
ár.“
Golfhreyfingin þarf að vera vakandi
Jón segir að það sér stórt verkefni framundan
í golfíþróttinni að vekja meiri áhuga og
fjölga nýliðum í golfinu. „Er það ekki þannig
að eftir sjö góð ár þá koma sjö mögur. Við
erum kannski að kveikja á því að það vantar
nýliðun. Eitt er veðrið en það er þetta nei-
kvæða spjall í íþróttinni sem dregur okkur
niður. Við þurfum að standa okkur miklu
betur – ég sé í minni vinnu að hjólreiðamenn
að koma í miklu mæli að stunda íþróttina af
krafti. Menn eru að fara í hjólaferðir – ná-
kvæmlega eins og golfferðir. Nánast sömu
„klíkurnar“. Þetta er eitthvað sem þarf að
sporna við og þarna finnst mér að GSÍ þurfi
að spyrna við fótum. Ég hef engar áhyggjur
af barna – og unglingastarfinu, það er í fínu
standi víðast hvar. Kúnnahópurinn í golfinu
er hinsvegar of gamall.
Sér eftir gamla Landsmótsinu í golfi
Jón hefur sterkar skoðanir á Íslandsmótinu í
höggleik og hann hefur lengi verið talsmaður
þess að Íslandsmótið sé á höfuðborgar-
svæðinu fjögur ár í röð og fimmta hvert ár
úti á landsbyggðinni.
„Ég sakna „gamla Íslandsmótsins í höggleik,
sem var flokkaskipt. Það
er ekkert leyndarmál að
ég sakna þess. Kannski
er þetta svipað og sakna
gamla Glaumbars. Á
gamla Íslandsmótinu
var hinn rétti golfandi.
Björgvin Þorsteinsson
og fleiri ágætir menn
fóru fremstir í flokki að
breyta þessu – ég vil sjá
gamla Íslandsmótið aftur.
Meistaraflokkur karla ætti
bara að vera 30 manns.
Við eigum ekki fleiri afrekskylfinga. Hvar í
heiminum myndi líðast það að keppendur
kæmust í gegnum niðurskurðinn á Íslands-
mótinu í höggleik með háa forgjöf. Á Opna
breska komast áhugamenn í gegnum niður-
skurðinn en þá er búinn að vera forkeppni.
Ég sé fyrir mér Íslandsmót með 30 körlum
og 20 konum. Og þeir bestu í flokka-
skiptingunni tækju þátt. Það er eitthvað að
þegar við náum ekki að fylla Íslandsmótið í
höggleik á Korpunni. Í fyrra var ekki fullt.
Hvað þurfum við að halda mörg Íslandsmót
með þessum hætti áður en GSÍ áttar sig á því
að þetta er ekki að ganga upp. Kannski þarf
að fara með mótið á tvo velli en það þarf að
hugsa þetta upp á nýtt.
Í formannstíð Jóns hefur Íslandsmótið í
höggleik farið tvívegis fram hjá GR, árið
2009 í Grafarholtinu og 2013 í Korpunni.
Framkvæmdin við mótið er mikil og tals-
verður kostnaður sem fylgir því. „Íslands-
mótið í Korpunni kostaði um 14-15 milljónir
í framkvæmd og við í GR borguðum um
5-7 milljónir kr. í það mót. Það er allveg
þess virði því við vildum sýna hvernig hægt
er að gera hlutina og við vildum líka kynna
nýju Korpuna. Það var dramatík í karla –
og kvennaflokki allt fram á síðustu holu.
Sérstaklega í kvennaflokki. Sjónvarpsút-
sendingin frá Íslandsmótinu í höggleik
hefur gríðarlega mikið að segja. Það var
draumaveður – og eitt það jákvæðasta sem
við höfum lent í á seinni árum. Slíkar stundir
gefa þessu gildi. Af þvi maður veit að þessar
útsendingar styðja við bakið á hreyfinguna.
Mér leið einnig mjög vel þegar GR fékk
loksins Íslandsmeistara í höggleik karla eftir
27 ára bið. Það eru ekki margir formenn GR
sem hafa upplifað slíka stund og Haraldur
Franklín Magnús kætti mig mjög með þeim
titli.“
Stingum ekki niður skóflu
án aðstoðar Reykjavíkurborgar
Að mati Jóns verður það framtíðarmúsíkin
hjá GR að borga niður skuldir áður en ráðist
verði í framkvæmdir og þar er aðkallandi
verkefni að breyta ýmsu á Grafarholtsvelli.
„Við fengum ekki þá fjármuni sem við teljum
okkur eiga rétt á frá borgaryfirvöldum vegna
ýmissa framkvæmda. Borgin stóð sig ekki og
við höfum því verið að greiða niður skuldir
á undanförnum árum. GR stefnir á að koma
skuldunum niður í 20-30 milljónir kr. sem er
eðlilegt fyrir klúbb af þessari stærðargráðu.
Hvað Grafarholtsvöllinn varðar þá sé ég fyrir
mér að það verði ráðist í miklar endurbætur
á vellinum á næstu árum. Ég tel að slík fram-
kvæmd kosti á bilinu 500-700 milljónir kr.
Markmiðið ætti að hafa völlinn okkar opinn
enda er hægt að gera margt án þess að trufla
leik, og mikið að hausti til. Vonandi verður
þetta komið í framkvæmd á næstu 10 árum
því við rekum ekki skóflu niður án þess að
hafa komist að samkomulagi við Reykja-
víkurborg áður en af þessu verður. Það er
alveg á hreinu. Við eigum alveg jafnmikinn
rétt á því að fá stuðning við endurnýjun á
íþróttamannvirki eins og Grafarholtið er.
Eftir áratug verður komin nýr og miklu betri
Grafarholtsvöllur. Ef við fáum að vera í friði
þá verður Grafarholtið eitt af kennileitum
Reykjavíkurborgar eins og hann er í dag.
Það er magnað að geta leiki golf inn í miðri
„stórborg“ – gerir það eftirsóknarverðara að
búa í Reykjavík. Annars þarf maður bara að
flytja í Hafnarfjörð því að Keilir fær að vera í
friði með sitt starf og uppbyggingu.“
Vantar um 40 félaga
Jón segir að það sé ekkert leyndarmál að það
vanti um um 40 félaga í GR.
„Miðað við það markmið að við viljum vera
með 2.750 félaga sem borga fullt ársgjald.
Biðlistinn er frekar stuttur – við tökum
inntökugjald sem er helmingur af árgjaldi.
Þetta er regla sem er sett á aðalfundi GR en
kannski verður að endurskoða þetta ákvæði.
Við höfum ekki leyfi til þess að kvarta. Við
eigum að geta rekið klúbbinn með 10—15%
hagnaði – og það eiga að vera 40-50 milljónir
á lausu til þess að framkvæma. Rekstraráætl-
unin fyrir þetta ár er að ganga upp 99% og
sýnir að við erum að ná tökum á rekstr-
inum,“ segir Jón Pétur Jónsson.
Það sem hefur gerst á Korpunni eftir stækkun-
ina er að það er til nóg af teigtímum eins og
ástandið hefur verið undanfarin tvö sumur.
M400.
Run beyond ordinary.
polar
facebook.com/polarislandi
HVAÐ GERIR POLAR M400 GPS HLAUPAKLUKKAN FYRIR ÞIG?
GPS mælir
Púlsmælir
Hreymælir
Skrefateljari
Mælir svefn
Ængadagbók
Kaloríuteljari
Klukka
Vatnsheld
... og margt eira
Jón með tveimur af helstu
samstarfsmönnum sínum í
GR, þeim Birni Víglundssyni,
varaformanni og Garðari Ey-
land framkvæmdastjóra.
Jón Pétur fagnar með Haraldi
Franklín sem varð Íslands-
meistari í höðggleik á Hellu.