Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 52
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
52
Hólmfríður: „Ég
hef sterkar skoð-
anir á útbúnaði
en ég pæli ekki
mikið í slíku. Ég
er það heppinn að
maðurinn minn
hefur meiri áhuga
á þessu en ég.
Hann hefur séð um
þessa „deild“ en
ég er með Taylor
Made í pokanum
og líkar það vel.“
Helgi: „Ég skipti út kylfum á um sjö ára fresti
en það aldrei að vita að það gerist örar með
aldrinum. Mér finnst gaman að prófa nýjar
kylfur og ég pæli aðeins í slíkum hlutum.“
Afreksgolfið hér heima og erlendis er á mis-
munandi stað á forgangslistanum hjá
viðmælendunum en þau fylgjast þó öll eitt-
hvað með Eimskipsmótaröðinni á Íslandi.
Gressi: „Ég reyni að fylgjast með Eimskips-
mótaröðinni eins vel og ég get. Ég var í átta
ár kylfusveinn hjá Tryggva Traustasyni vini
mínum. Ég hef líka fylgst vel með Sveita-
keppninni og að sjálfsögðu unglingagolfinu
þar sem Atli sonur minn leikur.“
Grímur: „Ég fylgist töluvert með afreks-
golfinu hérna heima. Ég geng stundum með
okkar bestu kylfingum og tek ljósmyndir í
leiðinni en það er áhugamál hjá mér. Ég hef
virkilega gaman af því að fylgjast með okkar
bestu kylfingum.“
Hólmfríður: „Ég er dugleg að fylgjast með
afreksgolfinu hér á Íslandi. Emil Þór sonur
minn er á Eimskipsmótaröðinni og dóttir
mín Alma Rún er á Íslandsbankamóta-
röðinni. Ég fæ stundum að vera „kaddý“ hjá
dóttur minni.“
Helgi: „Ég verð að viðurkenna að ég er ekki
nógu duglegur að fylgjast með afreksgolfinu
á Íslandi. Ég les kylfingur.is og fylgist með því
sem þeir segja. Ég hef ekki mætt á vellina og
gengið með kylfingunum.“
Þau fylgjast öll eitthvað með bestu kylfingum
heims á mótaröðunum erlendis og flest eiga
þau „uppáhaldskylfing.“
Gressi: „Ég fylgist töluvert með PGA móta-
röðinni. Vellirnir heilla mig meira á PGA
mótaröðinni og kylfingarnir sem eru þar
eru betri. Tiger Woods er í uppáhaldi og ég
skammst mín ekkert fyrir það.“
Grímur: „Ég fylgist aðallega með Opna
breska og Ryderkeppninni. Ég hef upplifað
það nokkrum
sinnum að vera
í Evrópu með
golfhóp þegar
Ryderkeppnin er í
Ameríku og það er
mjög skemmtileg
stemmning sem
myndast. Á árum
áður var það „Hvíti
hákarlinn“ – Greg
Norman, sem var
minn maður. Á
seinni árum hef ég fundið aðeins til með Ser-
gio Garcia og ég held líka með Rory McIlroy.“
Hólmfríður: „Á mínu heimili er fylgst með
flestum golfmótum í sjónvarpinu en ég læt
lokaholurnar á sunnudeginum duga. Rory
McIlroy er sá kylfingur sem ég hef fylgst hvað
mest með frá því hann gerðist atvinnumaður.
Hann er flottur íþróttamaður og fyrirmynd,
með flotta sveiflu og kemur alltaf vel fyrir.“
Helgi: „Stórmótin eru það sem ég fylgist mest
með og þá sérstaklega Opna breska og Ryder-
keppninni. Ég missi varla af Opna breska og
það er bara skylda að horfa á Ryderinn. Phil
Mickelson er skemmtilegur kylfingur en það
eru margir þarna úti sem ég fylgist með.“
Fjórmenningarnir hafa flest farið til golf-
kennara og það er markmið hjá þeim
mörgum að leita meira til fagmanna í stétt-
inni. Kennsluefni
á veraldarvefnum
er í uppáhaldi hjá
Helga.
Gressi: „Ég hef
ekki verið dug-
legur að fara til
golfkennara en
ég spila oft með
golfkennurum og
þeir hafa gefið mér
ýmis ráð. Þeir láta
mig annars nánast
alveg í friði. Ég
reyni að fylgjast með í blöðum en ég er ekkert
sérstaklega að leita eftir því.“
Grímur: „Ég byrjaði eins og margir aðrir
með félögunum í golfi. Ég veit það sjálfur að
það skilar árangri að fara til golfkennara. Ég
hef farið í golfskóla í Ameríku sem var mjög
skemmtilegt. Ég er ekki duglegur að viða að
mér kennsluefni.“
Hólmfríður: „Þegar ég var að byrja var ég
dugleg að fara til golfkennara og það skilaði
árangri. Ég lækkaði um 4 í forgjöf á fyrsta
tímabilinu. Ég hef ekki verið nógu dugleg að
fara til golfkennara á undanförnum árum. Ég
les Golf á Íslandi og skoða pistlana sem eru
þar.“
Helgi: „Ég hef ekki verið nógu duglegur að
nýta mér golfkennarana á undanförnum
árum. Ég hef verið duglegur að pæla sjálfur í
sveiflunni minni.“
Öll hafa þau „metnaðarfull“ markmið um að
lækka forgjöfina í vetur með stífum æfingum.
Eða svona næstum því.
Gressi: „Það blundar alltaf í manni að verða
betri í golfi en til þess þarf maður að æfa sig.
Ég hef ekki verið sá duglegasti á því sviði. Ég
hef náð að fara niður í 5 í forgjöf en ég hef
aldrei æft mig í golfi – ég spila bara og reyni
að hafa gaman af þessu.“
Grímur: „Forgjöfin er 16,1 og hefur farið
hækkandi undanfarin ár. Af þeim sökum tók
ég þá ákvörðun í haust að ná henni niður. Ég
hef nú þegar hafið æfingar hjá golfkennara
og mun stunda það í vetur. Markmiðið er að
komast neðar – ekki ofar.“
Hólmfríður: „Ég ætla að vera dugleg að æfa
mig í vetur en langtímamarkmiðið er að
komast undir 10 í forgjöf. Fyrst þegar ég var
að byrja að spila golf þá mátti maðurinn minn
lítið segja mér til. Í dag er ég duglegri að
spyrja hvað sé að. Ég er óhrædd við að spyrja
en ég vanda valið hvern ég spyr.“
Helgi: „Fyrir tveimur árum fór ég að taka
sveifluna mína upp og komst að því að hlut-
irnir eru ekki eins og maður heldur. Ég hef
verið að prófa mig áfram, nota greiningar-
forrit. Mark Crossfield hefur hjálpað mér
mikið – og svo hef ég prófað að tengjast
rotaryswing.com. Þar gat ég sett inn mynd-
band, fengið ráð og æfingar í kjölfarið.“
Að lokum voru viðmælendurnir beðnir um
að nefna þrjár uppáhaldsgolfholurnar hér á
landi og þrjá velli.
Gressi: „Ein skemmtilegasta golfhola á Íslandi
er Bergvíkin í Leirunni. Það er erfitt að sleppa
henni í slíkri upptalningu. Í Vestmannaeyjum
er 17. holan í miklu uppáhaldi, sú 7. í Keili er
frábær en annað höggið þar krefjandi blint
högg. Hvað vellina varðar þá er Hólmsvöllur
í Leiru góður, Vestmannaeyjar einnig en í
uppáhaldi er Hvaleyrin.“
Grímur: „Ég nötra alltaf á teignum á
nokkrum holum. Þar má nefna 16. brautina
í Vestmannaeyjum, Bergvíkina í Leirunni og
12. í Korpunni. Á þessum holum þar maður
að íhuga vel hvað maður ætlar að gera og það
eru margir þættir sem geta haft áhrif á teig-
höggið. Korpan er skemmtileg, Hvaleyrin og
Urriðavöllur eru líka í uppáhaldi. Ég þarf að
fara fljótlega norður í land því Jaðarsvöllur er
einnig í miklu uppáhaldi hjá mér.“
Hólmfríður: „ Það margar fallegar golfholur
á Íslandi. Bergvíkin, 2. holan á Akranesi er
mjög falleg en 1. holan í Leirdalnum er í
mestu uppáhaldi
hjá mér. Braut sem
er mikil áskorun og
býður upp á marga
möguleika. Hvað
vellina varðar er
Leirdalsvöllurinn
í uppáhaldi, –
Hvaleyrin er
einnig fjölbreyttur
og Garðavöllur á
Akranesi. Leiran er
einnig í uppáhaldi
þar sem ég náði
mínu besta skori
fram til þessa – 79 högg.“
Helgi: „Bergvíkin er í uppáhaldi, 15. í Grafar-
holtinu var komin á sálina hjá mér þegar ég
var félagi í GR en ég kann vel við þá holu í
dag. Önnur holan í hrauninu í Hvaleyrinni er
einnig í uppáhaldi, maður þarf alltaf að hugsa
á teignum hvað maður þarf að gera. Leiran
er minn heimavöllur – ég hef verið félagi þar
í átta ár og helsti kosturinn við völlinn er
að tímabilið er langt. Hvaleyrin kemur þar á
eftir en þar er umhirðan alltaf til fyrirmyndar.
Grafarholtið er uppáhaldsvöllurinn – mér
finnst alltaf gaman að spila þar og því fylgir
sérstök upplifun.“
Grétar
Hólmfríður
Helgi
Grímur